Ský - 01.04.2007, Page 63

Ský - 01.04.2007, Page 63
 sk‡ 63 Ég hefði aldrei komist hjá því að hafa áhuga á söng því ég hef alist upp við hann síðan á fósturstigi. Móðir mín, Guðfinna Dóra Ólafsdóttir kórstjóri, hefur alltaf sungið fyrir mig, meðal annars í móðurkviði og faðir minn er Rúnar Einarsson, rafvirki og söngvari. Ég hefði ekki komist hjá þessu þótt ég vildi. Við systkinin erum öll á kafi í tónlist, Hildigunnur systir er tónskáld og bræður mínir tveir, Ólafur og Þorbjörn, eru báðir tenórsöngvarar,“ segir Hallveig Rúnarsdóttir. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á alls konar tónlist og hlusta á allt nema metal. Fyrir nokkrum árum hlustaði ég heldur ekki á kántrí, en Baggalútur og Norah Jones hafa breytt því. Fyrsti diskur Hallveigar kemur út í vor, en þar er að finna nýja íslenska söngtónlist í hennar anda. Sjálf ætlar Hallveig að fylgja disk- inum eftir með söngferðalagi um landið, auk þess sem hún mun einnig kynna hann erlendis. Hallveig er með létta og lýríska sópranrödd og hér heima hefur hún aðallega vakið athygli fyrir ljóðasöng og flutning á nýrri tónlist. Hún hefur til dæmis frumflutt mörg verk á Listahátíð í Reykjavík og á Sumartónleikum í Skálholti. „Mér er sagt að ég hafi byrjað að syngja áður en ég fór að tala,“ segir Hallveig og hlær. „En ég fór að minnsta kosti að syngja í kór fimm ára og tók fyrsta sólóið mitt þar opinberlega nokkrum árum seinna. Ég byrjaði svo fyrir alvöru að læra að syngja sextán ára hjá Sigurði Demetz og síðar lá leiðin til Rutar Magnússon við Tónlist- arskólann í Reykjavík, Guildhall School of Music og Drama þar sem ég lærði hjá Theresu Goble og svo hef ég farið í einkatíma hjá Jóni Þorsteinssyni. Það hefur oft verið gaman á þessum ferli og ég á nú þegar í fórum mínum marga ógleymanlega og frábæra tónleika og tón- leikaferðalög. Eitt af því skemmtilegasta sem ég hef tekið þátt í var Heimskór æskufólks (World Youth Choir) sem ég var í sumrin ´92 og ´93. Þar eru nokkuð ströng inntökupróf, en ég mæli eindregið með þessu fyrir áhugasama söngnema á aldr- inum 16–24 ára. Í þessum kór koma saman hundrað nemendur sem æfa saman í tvær vikur og ferðast saman um heiminn og halda tónleika í þrjár vikur. Þetta var svolítið sérstök reynsla.“ Hallveig hefur komið fram sem einsöngvari víða um heim- inn og í sumar mun hún m.a. fara til Litháen til að syngja í Carmina Burana. Almennt mun henni ekki leiðast í nánustu framtíð. Auk þess sem hún ætlar að kynna diskinn sinn er hún að æfa tvö hlutverk, Galatea í „Acis og Galatea“ eftir Händel sem Sumaróperan setur upp í ágúst og Echo í „Ariadne auf Naxos“ eftir Strauss sem Íslenska óperan setur upp í haust og hún syngur einnig í Jóhannesarpassíunni um páskana svo eitthvað sér nefnt. „Mig langar mest til að starfa hér heima því það er hægt að gera svo fjölbreytilega hluti hér. Ég er á fullu í barokktónlist og einn af stofnendum barokkhópsins Rinascente í Neskirkju, en ég hef líka brennandi áhuga á nýrri tónlist. Ég verð þar að auki að halda ljóða- tónleika öðru hverju til að halda geðheilsunni og mér finnst það ekki verra ef detta inn einhver óperuhlutverk í ofanálag. Þetta væri ekki auðvelt annars staðar en hér. Hér er líka auðvelt að fá kynningu, aðstöðu og frábæra meðleikara. Ég hef verið alveg sérstaklega heppin með samstarfsfólk, Árni Heimir Ingólfs- son er mín stoð og stytta og einnig á ég frábæran vin og samstarfsmann í Steingrími Þórhallssyni org- anista,“ segir þessi unga og glaðbeitta söngkona. Hallveig Rúnarsdóttir, sópran Með sönginn í blóðinu frá fósturstigi

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.