Fréttablaðið - 21.07.2015, Blaðsíða 18
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Ef um lífsógn er að ræða fer útkallið í forgangsflokk 1 eða F1. Þá eru alltaf sendir
tveir sjúkrabílar. Í hverjum bíl
eru tveir menn. Ástæðan fyrir
því að við sendum tvo bíla er
einfaldlega sú að í alvarlegum
tilfellum þarf fleiri hendur,“
upplýsir Ólafur Sigurþórsson,
slökkviliðsmaður og bráða-
tæknir hjá Slökkviliði höfuð-
borgarsvæðisins. Aðspurður
segir hann þetta geta verið í
tilfellum þar sem orðið hefur til
dæmis eldsvoði, alvarlegt slys
eða þar sem sjúklingur er með-
vitundarlaus eða í hjartastoppi.
Á það við um bæði fullorðna og
börn.
„Yfirleitt kemur lögregla með
okkur í alvarlegustu útköllin
og er okkur til aðstoðar fyrstu
mínúturnar þar til annar bíll
kemur á vettvang. Sú samvinna
er ómetanleg. Ef við þurfum að
fara af vettvangi í flýti þá fer
lögreglan á undan okkur, lokar
gatnamótum og hjálpar til svo
við komumst á sem skemmst-
um tíma á sjúkrahús,“ útskýrir
Ólafur.
BLIKKANDI LJÓS
Mál eru flokkuð í F2 þegar um
er að ræða önnur alvarleg tilvik
svo sem brjóstverk, öndunar-
erfiðleika og truflun á meðvit-
und svo dæmi séu nefnd. Þau
geta þó hæglega breyst í F1 á
leiðinni og/eða þegar komið er
á vettvang og þá er kallað eftir
öðrum bíl. Bílarnir keyra með
blikkandi ljós og sírenur þegar
um er að ræða útköll sem flokk-
ast í F1 og F2.
Útköll fara í F3 þegar sjúkling-
ur er í stöðugu ástandi. Oft er
þar um að ræða útlimaáverka,
kviðverki og annað í þeim dúr.
Hafi sjúklingur slasast úti og
er hugsanlega orðinn kaldur
breytist útkallið í F2 eða F1
og fer það líka eftir alvarleika
áverkans. Stærsti hluti útkalla
flokkast í F4 en það eru sjúkra-
flutningar á milli sjúkrahúsa,
heimila og elliheimila.
MEÐ HNOÐTÆKI
Ólafur segir alla sjúkrabíla vel
tækjum búna. „Uppistaðan
í öllum bílunum er eins. Við
erum þó með þrjá bíla sem eru
að auki búnir LUCAS-hnoðtæki.
Það kemur í stað mannshand-
arinnar við að hnoða og eru
þeir bílar alltaf í kallfæri. Allir
bílarnir eru búnir öndunarvél
og hjartastuðtæki sem getur
sent hjartalínurit strax af vett-
vangi. Þá erum við með töluvert
af bráðalyfjum og hefur mann-
skapurinn okkar leyfi til að gefa
þau.“
UMFANGSMIKIÐ STARF
Nám sjúkraflutningamanna er
þrískipt. Fyrst er um að ræða
grunnmenntun og eftir 36 mán-
uði er hægt að bæta við sig
neyðarflutninganámi. Að því
loknu er hægt að fara í bráða-
tækninám en það er kennt í
Bandaríkjunum. Að sögn Ólafs
eru ávallt bráðatæknar og
neyðarflutningamenn á vakt
til að manna neyðarbílana.
Allir starfsmenn slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins eru bæði
skráðir á sjúkra- og slökkvibíla
og eru kross-skráðir þegar þeir
eru á vakt. Starfið er því ansi
umfangsmikið en auk þess
sinnir hluti starfsmanna köfun
og fjallabjörgun.
VÍKIÐ ÚR VEGI
Aðspurður segir Ólafur mikla
vakningu hafa orðið í umferð-
inni varðandi það að víkja fyrir
sjúkrabílunum og telur hann
líklegt að upplýsingamyndbönd
sem Umferðarstofa lét gera fyrir
sjónvarp hafi skilað sínu. „En
svo eru auðvitað álagspunktar
í umferðinni sem enginn ræður
við.“ Ef fólk verður vart við
sjúkrabíla með blikkandi ljós
sem jafnvel eru í fylgd lögreglu
ætti það eftir fremsta megni að
reyna að víkja og greiða þeim
leið. ■ vera@365.is
TVEIR BÍLAR Í ALVAR-
LEGUSTU TILFELLUM
GOTT STARF Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn á höfuðborgarsvæðinu
fara að jafnaði í 50 til 100 útköll á sólarhring en jafnan eru 6-10 sjúkrabílar í
notkun hverju sinni. Útköllin eru flokkuð í fjóra flokka eftir alvarleika; F1 til
F4. Stundum má sjá tvo bíla í samfloti og oft í fylgd lögreglu. Þá er um lífsógn
að ræða. Starfið getur verið mjög umfangsmikið og erfitt.
ÁVALLT Á VAKTINNI Ólafur Sigurþórsson segir að ef fólk verði vart við sjúkrabíla
með blikkandi ljós eigi það að víkja og greiða leið bílanna. MYND/ANDRI MARINÓ
ÓLÍK VERKEFNI Verkefni sjúkraflutninga- og slökkviliðsmanna eru mörg og mis-
munandi.
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
Heldur kynningarnámskeið
og fyrirlestur 24. - 27. júlí
5 helstu ástæður þess að iðka qigong
Qigong (borið fram “tsí-gong”) er yfir 5.000 ára gamalt
æfingakerfi í heilsurækt þarsem saman fer qi, sem merkir
“lífskraftur”, og gong, sem merkir “nákvæmar æfingar”.
1. Aukin vellíðan og lífsþróttur
Minnkar blóðþrýsting, bætir hjarts- og æðastarfsemi,
jafnar hjartsláttartíðni og minnkar kólesteról.
2. Dregur úr þrálátum sársauka
Með hjálp sjónar og stjórn hugar og líkama getur
þú dregið úr þrálátum sársauka frá liðagigt.
3. Betra blóðstreymi
Með sérstökum öndunaræfingum getur þú aukið
súrefnisflæði í líkamanum.
4. Dregur úr spennu
Með því að minnka viðbrögð við spennuvekjandi álagi.
Hjálpar gegn þráhyggu- og áráttuhegðun, þunglyndi
og kvíða og persónuleikaeinkennum af A-gerð.
5. Byggir upp sjálfsvirðingu
Með því að leyfa þér að líða vel og þægilega.
Skráning
í síma
553 8282
DREKINN
WUSHU FÉLAG REYKJAVÍKUR
Alþjóða heilsu
Qigong samband
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
TU
N
.IS
P
R
E
N
TU
N
.IS
Flatur magi á sjö dögum
One Week Flat dregur úr lofti í maga
og gerir þaninn kvið flatari.
”
“
Ég mæli með því að nota vandaða
meltingargerla eins og frá
OptiBac Probiotics til að viðhalda
heilbrigðri meltingu og bæta
almenna heilsu
Hanna Rún Bazev Óladóttir
dansari.
REIKNAÐU
DÆMIÐ
á 365.is
365.is Sími 1817
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
3
-6
D
C
C
1
7
5
3
-6
C
9
0
1
7
5
3
-6
B
5
4
1
7
5
3
-6
A
1
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
0
s
_
2
0
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K