Fréttablaðið - 21.07.2015, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 21.07.2015, Blaðsíða 30
21. júlí 2015 ÞRIÐJUDAGUR22 Það hafa margir skreytt heim- ilið með kaktusum enda eru þeir ódýrari og þurfa mun minni umsjá en blóm. Þeir eru líka fallegir og geta gefið heimilinu skemmtilegan stíl. TRENDIÐ KAKTUSAR KOMA Í STAÐINN FYRIR BLÓMIN FALLEGIR OG FÁGAÐIR Kaktusar eru fall- egir, langlífir og auðveldir meðhöndlunar. MYNDIR/GETTY LÍFIÐ Cameron Diaz og Kate Hudson voru með Alex Rodriguez. Kate og Alex voru saman í stuttan tíma árið 2009 en Cameron stal hjarta hans 2010. Gaman er að segja frá því að hann var einnig með söng- konunni Madonnu. Samkvæmt orðrómn- um hafði lengi verið stirt á milli Kate og Cameron þar sem Kate byrjaði að hitta Justin Timberlake í smástund rétt eftir að hann og Cameron slitu fjögurra ára sambandi sínu. Hollywood-stjörnur með sama smekk Í Hollywood gerist það oft ar en ekki að allir byrja með öllum. Hér eru nokkur dæmi um stjörnur sem hafa átt sama maka. HILLARY DUFF OG LINDSAY LOHAN Rita Ora og Taylor Swift hafa verið með Calvin Harris. Eins og frægt er eru Taylor Swift og skoski plötusnúðurinn Calvin Harris nýbyrjuð saman en hann var áður með breska söngfuglinum Ritu Ora. Ora og Harris voru saman í ár áður en þau hættu saman. Talið er að hún hafi haldið fram hjá honum. Eftir að Taylor og Calvin byrjuðu saman hafa þær nokkrum sinnum spilað á sömu tónleikunum og mætt í sömu partíin en þær hafa a l lt- af forð - ast hvor aðra. Hillary Duff og Lindsay Lohan voru með Aaron Carter. Þó svo að bæði sambönd hafi verið stutt þá voru bæði Hillary og Lindsay á föstu með söngvar- anum Aaron Carter. Þau eiga það öll sameiginlegt að vera barna- stjörnur sem skaut upp á stjörnu- himininn í lok tíunda áratugarins og um aldamótin. Duff og Lohan voru báðar að vinna hjá Disney. Selena Gomez og Miley Cyrus voru með Nick Jonas. Aðrar Disney-stjörnur sem hafa lent í ástarþríhyrningi eru Selena Gomez og Miley Cyrus en þær voru báðar með Nick Jonas. Miley og Nick voru heitasta parið á hápunkti Disney Channel-öldunnar árið 2006. Jonas byrjaði með rísandi stjörnunni Selenu Gomez árið 2009, en það samband entist stutt og hún byrjaði stuttu síðar með Justin Bie- ber sem varð eitt stormasamasta samband Hollywood seinustu ára. Kim Kardashian og Amber Rose hafa verið með Kanye West. Amber lék í tónlistarmyndbandi hjá Kanye árið 2008 en þau byrjuðu saman í kjölfarið og voru saman í tvö ár. Tveimur árum síðar byrjaði hann með raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian en þau höfðu lengi verið vinir. Þau giftu sig árið 2014 og eiga nú von á sínu öðru barni í nóvember. Kanye sagði nýlega að Kim hefði beðið hann um að fara í 30 sturtur eftir að hafa verið með Amber áður en þau gætu byrjað saman. CAMERON DIAZ TAYLOR SWIFT RITA ORAKATE HUDSON MILEY CYRUS SELENA GOMEZ KIM KARDASHIAN AMBER ROSE 21. júlí 2015 ÞRIÐJUDAGUR 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 2 -F C 3 C 1 7 5 2 -F B 0 0 1 7 5 2 -F 9 C 4 1 7 5 2 -F 8 8 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 4 0 s _ 2 0 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.