Lögmannablaðið - 01.12.2005, Side 13
„vaxinn“ upp úr! Ég segi alltaf:
„Hvur veit nema ég grennist!“
Draslið þarf að vera skipulagt!
Ég er eins og Baldur Möller. Ég get
gengið að hlutunum og fundið þá,
veit hvar á að leita en ef það væri
einhver sem kæmi að taka til... sá
fengi fyrir ferðina! Þú veist hvað
Kennedy forseti gerði þegar kerl-
ingin sem vann hjá honum kom og
tók til á skrifborðinu hjá honum?
Hann rak hana! Hann fann ekki
neitt eftir það.
Notar þú tölvu við störf þín?
Ég er með tölvu hér á skrifstof-
unni og aðra heima, ég nota þær
bara ekki. Ef ég þarf að skrifa bréf
þá nota ég ritvél, handskrifa fyrst
og vélrita svo. Ég kem ekki nálægt
tölvunum!
tveir læknar meðdómendur. Ég var
nýkominn frá Ameríku og sagði
þeim þessa sögu:
„Ég heyrði helvíti góða lýsingu á
læknastéttinni úti í Ameríku hjá
lögfræðingum sem ég borðaði með.
Þeir sögðu: They are lazy, arrogant,
irresponsable, money-consious,
bastards. Þetta var lýsingin á lækn-
unum.“
Þá sögðu læknarnir við mig:
„En lögfræðingastéttin, getur þú
ekki lýst henni?“
„Jú, viljið þið það?“ sagði ég,
„fjörutíu prósent eru „all right
men“ sem kunna sitt starf og eru
eins og menn og fjörutíu prósent
eru asnar af guðs náð!“
„Hvað með þessi tuttugu pró-
sent sem eftir eru?“ spurðu þá
læknarnir.
„Þeir eru crooks,“ svaraði
ég og held að þessi lýsing
sé nærri lagi! Þeir báðu
mig um að nefna ein-
hver dæmi og ég neit-
aði að gera það.
Skipulögð óreiða
Á skrifstofu Arnar er skipulögð
óreiða, blaðabunkar á borðum og
pappakassar á gólfum sem mál eru
sett í jafnóðum og þeim lýkur. Þeg-
ar skrifstofan var parketlögð fyrir
nokkrum árum var Örn ekki alveg
á því hvort það væri hægt án þess að
riðla skipulaginu. Guðmundur B.
Ólafsson, kollegi hans, tók sig til og
færði allt til án þess að hreyfa við
nokkru á borðum og í hillum.
Þegar Örn settist niður þá vantaði
einn hlut og hann þrumaði: „Guð-
mundur, hvar er penninn?“ Guð-
mundur hringdi í eiginkonu sína,
sem hafði hjálpað honum við tilfær-
ingarnar, og hún gat vísað á penn-
ann. Þannig tókst að breyta engu
þrátt fyrir skipti á golfefni! Örn seg-
ist geyma mun meira en hann þurfi,
bæði af skjölum og öðru.
Konan skammar mig fyrir að
geyma jafnvel föt sem ég er löngu
LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2005 > 13
Læt þvælumál eiga sig
Hefur þú oft þurft að eiga við
samvisku þína í lögmannsstarfinu?
Annað hvort er lögmaður að
hjálpa mönnum eða hann er ekki í
þessu djobbi. Hann má ekki fara
eftir því hvað honum finnst frekar
en dómari. Lögmaður verður að
hjálpa skjólstæðingnum á allan
hátt, hann er eiðsvarinn til þess.
Lögmaður má ekki fara eftir því
hvað honum finnst heldur verður
hann að vera algjörlega objectivur
og gera allt sem hann getur fyrir
skjólstæðinginn án þess að ljúga að
dómstólum, aldrei vísvitandi að
ljúga. Ég kann þess nokkur dæmi
að lögmenn hafi logið en vil ekki
segja þau.
Nú ert þú orðinn 77 ára gamall,
ertu enn á fullu?
Ég hef hægt á mér og sendi iðu-
lega frá mér tímafrek mál sem ég
nenni ekki að sinna. Ég læt alls
konar þvælumál eiga sig en ég vísa
aldrei brjáluðum kerlingum á vini
mína!
Hvert fara þær?
Þær fara og velja sjálfar nýja lög-
menn. Ef ég finn að það er einhver
brjálæðingur þá læt ég ekki vini
mína lenda í því!!!
Ætlar þú halda áfram í lög-
mennsku enn um sinn?
Já á meðan heilsan leyfir, ég sé
enga ástæðu til annars, ekki
nokkra. Sveinbjörn gamli Jónsson
dó 85 ára gamall og var að til síð-
asta dags!