Lögmannablaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 23
LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2005 > 23
ráðuneytis sem átti að sinna erindum frá
fólki úti í bæ. Ráðuneytið var að reyna fá
einhvern rykfallinn lúser til að taka við skíta-
málaveseninu í ráðuneytinu og því afþakk-
aði Mörður boðið. Tvívegis hefur Mörður
talað sig uppí að sækja um dómarastöðu við
Hæstarétt, en hætt við á síðustu stundu.
Þrátt fyrir að Mörður hafi verið einyrki í
öll þessi ár þá hefur hann átt sér þann draum
að komast í sameinaða stofu með stjörnulög-
fræðingum. Hann tapar hins vegar málum
óþægilega oft. Óhætt er að segja að Mörður
sé breyskur maður en hann hefur oft verið á
„gráa svæðinu“ í störfum sínum sem lög-
maður. Hann er dulítið þunglyndur og van-
sæll enda er hann haldinn þeim erfiða kvilla
„middle age crisis“.
Áhugamál Marðar
Fyrir utan að hafa gaman af því að tefla
skák eða kasta fram vísu á góðum stundum,
þá eru áhugamál Marðar ekkert til að hrópa
húrra yfir. Hann hefur aldrei átt nein brenn-
andi áhugamál en hefur þó reynt að fara í
golf til að geta tekið þátt í umræðum um
Tiger Woods, hús, fugla og slæs. Því síður er
hægt að flokka Mörð til hugsjónamanna þar
sem hann flokkar mannréttindi með fóta-
nuddtækjum og segir að allir vilji eiga þau en
enginn noti þau. Þrátt fyrir að hafa farið í
afvötnun í upphafi lögmannsferils síns
drekkur Mörður áfengi og hann þolir ekki
þetta léttvínssull sem er í tísku heldur fær sér
alltaf einn tvöfaldan af sterku...Um hver ára-
mót strengir Mörður fögur heit um að nýjan
og betri lífsstíl.
Einkalíf Marðar
Mörður hefur alltaf talið sig þokkalega
frjálslyndan og víðsýnan þótt hann sé mjög
íhaldsamur í klæðaburði og líti út eins og
starfsmaður örnefnanefndar eða manna-
nafnanefndar. Þegar Mörður var giftur
fyrstu konu sinni fór hann í sumarhúsaferðir
með fjölskyldunni í eitthvert rigningarbælið
á Jótlandi eða í Hollandi. Annars hefur hann
átt erfitt með samskipti sín við konur og er
raunar mjög mótfallinn því að konur hafa
haslað sér völl í lögmennsku, ýmist kallar
hann þær lögfreyjur eða lögkonur. Þó hefur
Mörður alltaf talið sig vera jafnréttissinn-
aðan. Fyrir nokkrum árum ætlaði hann að
ráða sér fulltrúa og það var ein kona sem
sótti um. Hann var mikið að hugsa um að
ráða hana en hann var alveg í stökustu vand-
ræðum með það hvað hann ætti að borga
kvenlögfræðingi svo hann sleppti því bara.
Svo hjálpaði ekki að hann hafði eitt sinn haft
slíkan fulltrúa, Þorgerði. Hann hafði talið að
konur væru samviskusamari, með minni
launakröfur og hægt að nota þær í upp-
vaskið. Eftir nokkur ár hætti Þorgerður og
tók helminginn af kúnnunum með sér.
Þegar Mörður fór að skipta um konur þá
mætti hann á árshátíðir og flesta lögfræðivið-
burði til að reyna að fanga hug einhverrar
lögfreyjunnar. Einhverjar þeirra hefur hann
stært sig af því að hafa deitað en fæstar vilja
þó viðurkenna það! Þótt Mörður teljist seint
fjallfríður hefur hann engu að síður verið
fjöllyndur í kvennamálum í gegnum árin. Þó
skal taka það skýrt fram að Mörður er af
þeirri kynslóð karlmanna sem fer ekki á fjör-
urnar við konur nema undir áhrifum
áfengis!
Getur verið að þetta sé
Mörður?
Kunnugir segja að Mr.
Burns og Mörður séu svo
líkir í útliti að ekki sé hægt
að greina þá í sundur á
mynd. Ekki er vitað hvor
þeirra er á þessari mynd
en ef þetta er Mörður er
hann skegglaus og það er
mjög óvenjulegt.
Þrátt fyrir mikla leit að mynd af Merði lögmanni hefur það ekki tekist með óyggjandi
hætti. Þó var leitað í ljósmyndasafni dagblaðanna, Lögfræðingatalinu og hjá
lögreglustjóra svo eitthvað sé nefnt. Nokkrar myndir hafa þó fundist en ekki er vitað
hver þeirra er af lögmanninum. Lögmannablaðið ákvað því að birta þær allar.