Lögmannablaðið - 01.12.2005, Side 37
LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2005 > 37
Á FUNDI stjórnar Lögmannafélags Íslands þann
8. nóvember 2005, voru samþykktar eftirfarandi
verklagsreglur í tengslum við vanskil fjárvörslu-
yfirlýsinga, en um er að ræða viðbrögð við þeim
breytingum sem gerðar voru á lögmannalögum
nr. 77/1998 með lögum nr. 93/2004:
„Hafi lögmaður ekki skilað fjárvörsluyfirlýsingu
til félagsins í samræmi við ákvæði 2. mgr. 23. gr.
lögmannalaga nr. 77/1998, sbr. 14. gr. laga nr.
93/2004, skal honum þegar í stað send ítrekun.
Berist félaginu ekki fjárvörsluyfirlýsing innan 14
daga frá útsend-ingu ítrekunarbréfsins, skal hlut-
aðeigandi send lokaaðvörun, þar sem honum er
veittur 7 daga frestur til að skila inn fullnægjandi
upplýsingum. Hafi umbeðnar upplýsingar ekki
borist félaginu innan tilgreinds lokafrests, skal
leggja til við dómsmálaráðherra að réttindi lög-
mannsins verði felld niður, sbr. ákvæði 4. mgr.
13. gr. lögmannalaga, sbr. 8. gr. laga nr. 93/
2004.“
Lögmannafélag Íslands
VERKLAGSREGLUR
VEGNA VANSKILA Á
FJÁRVÖRSLUYFIRLÝSINGUM