Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Page 45

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Page 45
DV NORÐURLAND MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2008 45 Heimskautsgerði á Raufarhöfn vekur athygli og áhuga MIÐNÆTURSÓUN FÖNGUÐ „Staður sem hefur ekkert upp á að bjóða fær enga ferðamenn," segir Er- lingur Thoroddsen, hótelstjóri á Rauf- arhöfii, en hann fékkþá hugmynd fyr- ir nokkrum árum að byggja svokallað Heimskautsgerði á Melrakkaás við Raufarhöfii, næst heimskautsbaug. Þetta gerði hefur vakið mikla athygli og áhuga, en Heimskautsgerðið hlaut nýlega 20 milljóna króna íjárveitinu fráAlþingi. „Vinnsla er að hefjast núna í júm'. Fyrirtækið Sandöx er að klára grjót- losun og námuvinnslu og síðan tek- ur Álfasteinn við og byrjar að smíða hliðin, miðsúlu og veggi," segir Erling- ur. Hann segir Alþingi hafa sýnt verk- efriinu einstakan skilning og áhuga. „Alþingi hefúr alveg ráðið því að þetta verkefiii sé komið svona langt á veg. Þetta væri enn á teikniborðinu hefði Alþingi ekki sýnt þessu skilning." Heimskautsgerðið er einstakt fyr- irbæri. Gerðið sjáfft er hlaðið úr grjóti og á rætur sínar að relqa til goða- fræðinnar. „Með Heimskautsgerðinu erum við að fanga miðnætursólina sem spilar stærsta hlutverkið," útskýr- ir Erlingur. Frumkvöðull Erlingur Thoroddsen hótelstjóri fékk hugmyndina að Heimskauts- gerðinu fyrir nokkrum árum. „Heimskautsgerðið erhugsað til þess að reyna að búa til eitthvað sérstætt hérna sem ekki til ann- ars staðar. Ekki ernóg að hafa fallega náttúru og fjölskrúðugt fuglalíf" HEIMSKAUTSGERÐIÐ Melrakkaás Raufarhöfn Innrihrinj Ferðamannastaður „Staður sem hefur ekkert upp á að bjóða fær enga ferðamenn," segir Erlingur en Heimskautsgerðið mun draga mikið af ferðamönnum, íslenskum sem erlendum, til Raufarhafnar. U T ■, gaaa ’.Typr „Heimskautsgerðið er hugsað til þess að reyna að búa til eitthvað sérstætt hérna sem ekki er til annars staðar. Ekki er nóg að hafa fallega náttúru og fjöfskrúðugt fuglalíf. Fólk vill eitthvað meira áþreifanlegt." Erlingur segist ekki vita hvað Heimskautsgerðið mun taka lang- an tíma í uppbyggingu. „Þetta hefur aldrei verið gert áður. Við þekkjum ekki hraðann. Þegar tekur að líða á haustið kemur í ljós hvað þetta mun taka langan tíma," segir Erlingur en hann áætlar að Heimskaustsgerðið muni verða fullgert innan þriggja til fimm ára. hanna@dv.is SÉRSNIÐNAR SPA-FERÐIR Slóvenía á sér margra alda hefð í rekstri heilsuhótela og SPA-tengdri þjónustu. Tilvalið að heimsækja fleiri en einn stað og njóta náttúrufegurðar landsins. Bjóðum einnig upp á gönguferðir og tilvalið að tengja saman heilsugöngur mmm og dekur á SPA hótelum. Gerum tilboð fyrir hópa. Ferðaskrifstofan NONNITRAVEL Skipuleggjum ferðir samkvæmt ykkar óskum Hafið samband í síma eða tölvupóst á nonni@nonnitravel.is Nonni Travel • Brekkugata 5 • 602 Akureyri • Sími 461 1841 • nonni@nonnitravel.is • www.nonnitravel.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.