Skírnir - 01.01.1960, Blaðsíða 103
Skírnir
Séra Ölafur á Söndum
101
6. Jón: Ekki mun vitað, hver kona hans var, en þessi eru
talin börn hans: Bjarni, Jón eldri og Jón yngri.
7. Kristín eldri: Hún giftist Ólafi Þorleifssyni og átti með
honum þrjú börn: Tómas, Agnesi og Þuríði.
8. Kristín yngri: Hún giftist Einari Greipssyni. Þau eign-
uðust eitt barn, sem dó ungt.
Um skáldskap séra Ólafs á Söndum.
Séra Ólafur á Söndum var af 17. og jafnvel 18. aldar mönn-
um talinn eitt af höfuðskáldum þjóðarinnar, og er margt,
sem styður það.
Það hefir áður verið minnzt á, að Brynjólfur biskup hafði
miklar mætur á skáldskap hans, og þegar hann lá banaleg-
una, var það ein helzta huggun hans að láta syngja og hafa
yfir fyrir sig iðrunarsálma séra Ólafs.1)
Stefán Ólafsson, skáld í Vallanesi, hafði einnig miklar mæt-
ur á skáldskap séra Ólafs, eins og eftirfarandi vísa ber vott
um:
Síra Ólafur á Söndum
sálma og vísur kvað,
margt gott hefur í höndum
hver, sem iðkar það.
Því var skáldi skipt
skýrleiks andagipt,
mig hafa ljóð þessa listamanns
langseminni svipt.
Fáir fara nú lengra,
þó fýsi að yrkja þrengra.2)
Finnur biskup Jónsson segir um séra Ólaf í kirkjusögu sinni,
að hann hafi verið maður lærður og stórgáfaður, og talar um
kveðskap hans sem „ágæt, heilög ljóð, full af lífi og anda“,
sem „allir góðir menn og guðhræddir hafi miklar mætur á“.3)
Jón Espólín, sem átti afskrift þá af kvæðabók séra Ólafs,
er séra Hjalti í Vatnsfirði Þorsteinsson skrifaði árið 1693,4)
!) Biskupasögur Jóns Halldórssonar II, 370 og 373.
2) Kvæði Stefáns Ólafssonar gefin út í Kaupmannahöfn 1886 II, 41.
3) Hist. Ecc. III, 199.
4) IB. 70,4to.