Skírnir - 01.01.1960, Blaðsíða 160
158
Jacqueline Simpson
Skirnir
er kapítuli þessi fjallar um, og er sagt, að hann hafi nokkur
persónuleg áhrif í Eyjafirði, sem er mjög ólíklegt, að hann
hafi haft í raun og veru.10) Einungis er lítillega minnzt á
Guðmund dýra í þessum kapítula, og fremur virðist það út
í hött að hafa kapítula þenna með í sögu hans.
Ég hygg, að svo kunni að vera, að kapítuli þessi hafi upp-
haflega ekki heyrt til GuÖmundar sögu dýra, en að honum
hafi verið bætt inn í af safnanda Sturlungu, en vitað er, að
hann hefur oft bætt efni inn í og breytt efnisröð í byrjun
og enda þeirra sagna, sem hann felldi í verk sitt. Nú eru tveir
siðustu kapítular GuÖmundar sögu dýra skildir frá hinum
hlutum sögunnar með tveim köflum úr Prestssögu Guömund-
ar góða, og á eftir koma aðrir hlutar Prestssögu. Ég tel lík-
legt, að safnandinn hafi steypt þessum tveim sögum saman
með þvi að fella hér inn i efni, sem kom báðum nokkuð við,
en tilheyrði hvorugri.11)
En rök Magnúsar Jónssonar virðast ekki einungis veikj-
ast vegna þess, hve ósamræmi það, sem hann tiltekur, er litil-
fjörlegs eðlis. Jákvæðan stuðning við þá kenningu, að um
einn höfund sé að ræða, má finna í, hve tilgangur sá, er kenna
má í verkinu, er sjálfum sér samkvæmur og hve skapgerðar-
lýsingar Guðmundar sjálfs og annarra aðalpersóna (nema
ögmundar sneisar, eins og minnzt er á hér að framan) eru
sjálfum sér samkvæmar. Blær og viðhorf sögunnar allrar
breytist svo lítið, að mjög líklegt er, að um einn höfund sé
að ræða. Ötrúlegt er, að heill hópur sögumanna, hversu ná-
tengdir sem þeir hefðu verið hver öðrum og Guðmundi, hefði
getað náð sliku samræmi.
Aðaltilgangur sögunnar er að veria eða að minnsta kosti
að útskýra hvatir Guðmundar fyrir verknaði, sem sennilega
10) Magnús Jónsson, sama rit, bls. 29.
n) ögmundur sneis var frændi og trúr vinur Guðmundar Arasonar,
en sá síðarnefndi var lika skyldur Araþrúði og sonum hennar (sem oft er
minnzt á í Prestssögu), og bjó hann að Völlum í átta ár. Enn fremur
kemur fram í 16. kapítula Prestssögu, að Þorsteinn Þraslaugarson (en frá
óförum hans er sagt í 25. kapítula Guömundar sögu dýra) hafi verið mik-
ill fjandmaður Guðmundar Arasonar. 1 handritunum er 16. kapituli Prests-
sögu næst á undan 25. kapítula GuSmundar sögu dýra.