Skírnir - 01.01.1960, Blaðsíða 156
Skímir
154 Jacqueline Simpson
skrá hans yfir heimildarmennina leiðir til eftirfarandi sund-
urliðunar:
I. Reykdœlaþáttur, 1.—3. kap.: sjónarvottur að bardagan-
um og samningaumleitununum, sem hélt fram hlut Eyjólfs
og ísleifs Hallssonar; Arnþrúður Fornadóttir.
II. Fljótamannaþáttur, 4. kap.: maðurinn úr Fljótum og Ól-
afsfirði.
III. GuSrúnarþáttur, 5. og 6. kap.: Arnþrúður.
IV. Þáttur Helga prests og SumarliSa, 7. og 8. kap.: sjónar-
vottur að Gásarbardaga; Arnþrúður.
V. Þáttur Þorfinns og Ingibjargar, 9. kap.: sjónarvottur að
bardaganum milli Illuga og Þormóðar; Arnþrúður.
VI. Þáttur ögmundar sneisar, 10. kap.: heimildarmaður
óvilhallur önundi; Arnþrúður.
VII. Þáttur ÓlafsfirSinga, ll.kap.: maðurinn úr Fljótum
og Ólafsfirði.
VIII. önundarbrennu þáttur, 12.—15., 17.—19., 21.—23.
kap.; i þessum langa og margbrotna þætti sér Magnús eðli-
lega merki um marga heimildarmenn: manninn úr Fljótum
og Ólafsfirði í 12. kapítula; Erlend Þorgeirsson í 13. kap.;
mann úr flokki önundar í síðustu málsgrein 13. kap.; Guð-
mund sjálfan eða einn af mönnum hans í frásögninni af
brennunni og af dómi Jóns Loptssonar; Brand Arnþrúðarson,
Erp prest og Þorgrím alikarl eða einn af mönnum hans í 17.
—19. kap.; Guðmund sjálfan í frásögninni af Bakkabardaga
og ef til vill einnig í frásögninni af Grundarbardaga.
IX. Þáttur Erlends rauSa, 16. kap.: maður, sem var kunn-
ugur Illuga — ef til vill munkur frá Þingeyrum.
X. Þáttur BöSvars lítilskeitu, 20. kap.: maðurinn úr Fljót-
um og Ólafsfirði; ef til vill nokkur áhrif frá Amþrúði.
XI. Þáttur af Austmönnum og ÞórSi í Fagraskógi, 24. kap.;
ekki er stungið upp á neinum heimildarmanni hér.
XII. Þáttur af Valladeilum og áverka viS Skæring, 25. og
26. kap.: maður, sem heldur fram hlut ögmundar sneisar, er
talinn heimildarmaður fyrir 25. kap.; ekki er stungið upp á
neinum heimildarmanni fyrir 26. kap.4)
4) Magnús Jónsson bendir á efni í 1.—3., 15. og 21. kap., sem hann