Frjáls Palestína - 01.07.2001, Side 2
FRJÁLS PALESTÍNA 3
unum frá 1967 [Austur-Jerúsal-
em, Vesturbakkanum og Gaza]
og að réttur flóttamanna verði
virtur.
– Ert þú sjálfur flóttamaður?
Nei, ég er ekki flóttamaður. En
mér finnst ég, og börn mín, ekki
geta lifað við frið og öryggi á
meðan meirihluti þjóðar minnar er
landflótta. Við Palestínumenn
sem erum ekki flóttamenn erum
aðeins 28% af þjóðinni.
– Hvernig er ástandið þar
sem þú býrð í Betlehem á
Vesturbakkanum?
Það er ekki gott að lifa undir
hernámi. Hernámsliðið hefur gert
palestínsk svæði að fangelsum og
fangabúðum. Þú getur ekki ferðast
fra þorpi til þorps, frá einum
borgarhluta til annars. Þær að-
gerðir Ísraelsmanna að nota
þungavopn til árása á íbúðar-
hverfi eru ekkert annað en ríkis-
hryðjuverk. Ísraelskir hermenn
skjóta á barnaleikvelli, skóla,
moskur, kirkjur, verksmiðjur og
rafveitur. Þeir eyðileggja ólífutré,
grænmetis- og ávaxtabýli og
drepa börn og fullorna á meðan
það situr í stofunni heima hjá sér
eða sefur í rúmum sínum. Hvað
get ég sagt? Ég get ekki heimsótt
móður mina sem er í þorpi 20 km
frá Betlehem. Palestínumenn í
Betlehem geta ekki iðkað sína trú í
Jerúsalem sem þó er í aðeins 6
km fjarlægð. Herir hernámsliðsins
eru allstaðar og breiða út dauða og
eyðileggingu. Betlehem er bær
sem er heilagur í augum
kristinna manna um allan heim.
Áður en átökin hófust var hérna
mikið líf, en nú er þetta eins og
draugabær. Efnahagur okkar,
sem byggðist mikið á ferðaþjón-
ustu, er í rúst. Engir ferðamenn,
engir pílagrímar og engir gestir!
– Hefur fólk enn trú
á friðarferlinu?
Trúðu mér, fólk vildi trúa á hið
svokallaða friðarferli. En nú trúir
fólk aðeins á eitt: hernáminu verð-
ur að linna og flóttafólkið verður að
fá rétt til að fá snúa aftur. Að öðrum
kosti munum við Palestínumenn,
sem og Ísraelsmenn, verða að
horfast í augu við meiri átök og
frekari hörmungar.
Friður mun komast á einhvern
daginn, þegar grundvallarmann-
réttindi Palestínumanna eru
tryggð og skrifað verður undir rétt-
látt friðarsamkomulag.
– Telurðu mögulegt að ísraelskir
hermenn muni einhverntíma
neita að skjóta á börn og
óbreytta borgara á herteknu
svæðunum?
Það mun koma að því að ísra-
elskir hermenn óhlýðnist leiðtog-
um sínum. Þú getur þegar séð
fyrstu merki þess í dag, en þó
veit maður ekki hve mikil óhlýðni
nær að myndast meðal þeirra. Ég
trúi því að ekkert sé ómögulegt
og allt sé mögulegt á meðan fólk
heldur áfram að veita andspyrnu
og viðheldur vonarneistanum.
Ætli við séum ekki þjóð með mik-
inn baráttuanda sem trúir á
breytingar. Þess vegna lítum við á
ísraelsku hermennina sem
manneskjur sem ættu að finna
fyrir og skilja hverskonar hrylling
þeir eru að leiða yfir palestínsk
börn og óvopnaða borgara. Við
vonum að þessi hugsun byrji að
mótast í hugum og hjörtum her-
mannanna og fjölskyldna þeirra,
og að þeir vilji koma í veg fyrir að
þeirra börn drýgi samskonar
glæpi og þeir í herbúningi.
–Kristinn stuðningsmaður Ísraels
hér á Íslandi skrifaði í dagblaða-
grein fyrir nokkrum misserum
um að eftir að heimastjórn
Palestínumanna tók við völdum í
Betlehem hafi hún skipulega
mismunað kristnum íbúum
borgarinnar og nú væri svo
komið að kristnir íbúar bæjarins
væru aðeins hluti af þeim fjölda
sem þeir voru fyrir Oslóar-friðar-
samkomulagið. Er eitthvað til í
þessu?
Hverju getum við Palestínu-
menn búist við af zíonistum og
stuðningsmönn-
um þeirra í heim-
inum? Við getum
því miður búist við
fullyrðingum á
borð við þessa. Ég
býð þér og þeim
sem skrifaði þetta
rusl til að heim-
sækja Betlehem
og „njóta“ þess
að sjá PLO og
heimastjórnina
mismuna hluta af
sinni eigin þjóð
og reka hana
burt. Er þetta
Árgjald 2001
Félagsmenn! Vinsamlega greiðið árgjald fyrir
2001, kr. 1.800, beint inn á reikning félagsins
og sparið okkur þannig gíróseðilinn.
Kennitala félagsins er 520188-1349, banki nr.
542, Hb 26, reikningur nr. 6990.
Margir hafa þegar greitt félagsgjaldið og
margir greiða það jafnt og þétt með greiðslukorti.
Við þökkum þessu fólki
fyrir skilvísar greiðslur.
brandari? Ef svo er þá er hann
verulega slæmur! Betlehem-
svæðinu er að mestu stjórnað af
kristnum Palestínumönnum. Ég
fer ekki meir út í bull af þessu
tagi. En ég vil þó segja að PLO og
allar þjóðarstofnanir Palestínu-
manna hafa ekkert með mis-
munum á sínu eigin fólki að gera,
hvort sem er gagnvart sam-
félags- eða trúarhópum. Ef kristn-
um zíonistum þykir vænt um
kristni og mannréttindi kristinna
manna ættu þeir að berjast gegn
árásum ísraelska hernámsliðsins
sem er að eyðileggja Betlehem og
drepa fylgjendur Jesú í Betle-
hem, Beit Jala og Beit Sahour.
Eru þessar árásir Ísraela kannski
hugsaðar til að bjarga fólkinu frá
PLO og Palestínsku heimastjórn-
inni?
– Getur almenningur á Íslandi
eitthvað gert til að styðja við
baráttu Palestínumanna gegn
hernáminu?
Tvímælalaust! Það er ýmislegt
sem hægt er að gera, þar á meðal
að þrýsta á um að íslensk stjórn-
völd endurmeti stuðning sinn við
stjórnvöld í Ísrael. Einnig skorum
við á íslenskan almenning að snið-
ganga ísraelskar vörur þar til
Ísraelsmenn fari eftir alþjóðalög-
um og samþykktum SÞ, þar á
meðal samþykkt nr. 194 sem segir
að palestínskir flóttamenn eigi að
fá að snúa aftur til heimalands
síns og að Ísraelsmenn fari frá
herteknum svæðum Palestínu-
manna og araba sem tekin voru í
stríðinu 1967. Við vonum að fólk á
Íslandi horfi ekki á baráttu okkar
fyrir mannréttindum frá sjónar-
hóli Ísraela, heldur sjái það sem
er að gerast út frá mannlegu sjón-
arhorni.
Viðtal þetta var
tekið í gegnum
tölvupóst þann
21. apríl 2001.
Eldar
Ástþórsson