Frjáls Palestína - 01.07.2001, Page 3
FRJÁLS PALESTÍNA2
Muhammad Jaradat er 37ára Palestínumaður, fæddur
í þorpinu Sa’ir nærri Hebron á
Vesturbakkanum. Þegar hann
stundaði nám í háskólanum í
Betlehem hóf hann þáttöku í
þjóðfrelsisbaráttu Palestínu-
manna og hefur hann eytt rúm-
lega fimm árum lífs síns í ísra-
elskum fangelsum. Muhammad
er einn af stofnmeðlimum
samtakanna Badil Resource
Center for Palestinian Residency
and Refugee Rights sem meðal
annars miðlar upplýsingum um
stöðu og réttindi þeirra 5,2
Málgagn Félagsins
Ísland-Palestína
1. tölublað, 12. árgangur
júlí 2001
Ritstjóri:
Eldar Ástþórsson
Höfundar efnis:
Eldar Ástþórsson
Sveinn Rúnar Hauksson
Viðar Þorsteinsson
Þorvaldur Örn Árnason
Útlit og umbrot:
Haukur Már Haraldsson
Stjórn Félagsins
Ísland-Palestína:
Formaður:
Sveinn Rúnar Hauksson
Varaformaður:
Eldar Ástþórsson
Ritari:
Guðbrandur Gíslason
Gjaldkeri:
Þorvaldur Örn Árnason
Meðstjórnandi:
Sigurlaug Ásgeirsdóttir
Varastjórn:
Faraj Shwaiki
Viðar Þorsteinsson
Utanáskrift:
Félagið Ísland-Palestína
Glaðheimum 8
Sími og fax: 553-1302
Netfang: palestina@palestina.is
FRJÁLS
PALESTÍNA
milljóna palestínskra flótta-
manna sem búa innan og utan
Palestínu. Badil Resource Center
hefur undanfarið haldið úti bar-
áttuherferð fyrir rétti Palestínu-
manna til að snúa aftur til
heimalands síns, Badil’s Right of
Return Campaign, og er Mu-
hammad einn af forystumönn-
um hennar.
– Hvað eru palestínskir
flóttamenn margir og hvar
búa þeir aðallega?
Palestínumenn eru í raun þjóð
flóttamanna. Rúmlega 800.000
Palestínumenn voru hraktir frá
heimilum sínum þegar Ísraelsríki
var stofnað í stríðinu 1948. Þá voru
um 535 palestínskir bæir og þorp
lögð í rúst af herjum zíonista.
Palestínskir flóttamenn eru í dag
um 5,2 milljónir. Þeir búa
aðallega á Vesturbakknum, Gaza
ströndinni, Jórdaníu, Líbanon og
Sýrlandi, en aðrir búa dreifðir um
alla veröld. Einnig búa um 250
þúsund flóttamenn innan vopna-
hléslínunnar frá 1948, núverandi
landamæra Ísraelsríkis. Þeir hafa
ísraelskan ríkisborgararétt en fá
ekki að snúa til baka til heima-
þorpa sinna.
– Hvers vegna er mikilvægt að
krafa Palestínumanna um að fá
að snúa aftur til heimalands síns
verði virt?
Það eru nokkrar ástæður fyrir
því að nauðsynlegt er að viður-
kenna rétt flóttamanna til að snúa
aftur og að séð verði til þess að þeir
geti nýtt sér þennan rétt. Grund-
vallarréttindi fólks, eins og eign-
aréttur, er eitthvað sem ekki er
hægt að semja um og má ekki
nota sem skiptimynt í samninga-
viðræðum. Markmiðið að gera Ísrael
að hreinu ríki gyðinga felur í sér
augljósa mismunum, allir sem
trúa á gildi mannréttinda og eru
á móti misrétti ættu að berjast
gegn þessari hugmyndafræði
kynþáttahaturs. Það er líka mikil-
vægt að hafa það hugfast að 72%
palestínsku þjóðarinnar eru flótta-
menn. Friðarsamningar verða að
njóta stuðnings meirihluta palest-
ínsku þjóðarinnar og skila meiri-
hluta hennar grundvallar mann-
réttindum til að þeir geti talist
réttlátir og átt möguleika á að
ganga upp. Það verður enginn
varanlegur friður fyrr en stjórn-
völd í Ísrael viðurkenna ábyrgð
sína á sköpun flóttamanna-
vandamálsins og samþykki að
leysa það í samræmi við alþjóða-
lög og samþykkt S.þ. númer 194,
sem segir að flóttamenn eigi
sjálfir að fá að ráða hvort þeir vilji
snúa aftur til heimalands síns.
– Telurðu líkur á að Ísraelar muni
einhverntíman viðurkenna rétt
flóttamanna til að snúa aftur?
Fyrr eða síðar munu Ísraels-
menn verða að viðurkenna rétt
flóttamanna til að snúa aftur. Ísra-
el getur ekki verið ríki hernaðar,
sem reiðir sig á stuðning Banda-
ríkjanna og Evrópu, að eilífu. Eina
tækifærið á áframhaldandi tilveru
Ísraelsríkis er að réttur flótta-
manna til að snúa aftur verði virt-
ur. Annars mun Ísraelsríki þurfa
að horfast í augu við stöðuga bar-
áttu sem ungir Palestínumenn og
kynslóðir araba, sem eru vel
menntaðar og meðvitaðir um ein-
staklingsrétt sinn og rétt þjóðar
sinnar, munu halda uppi. Hin
nýja Intifada uppreisn er gott
dæmi um hvað Oslóar-friðarsam-
komulagið skilaði Palestínumönn-
um. Fólkið ákvað að stóla á friðar-
ferlið í heil sjö ár. Leiðtogar Ísraels
höfðu ekki áhuga á friði. Þeir héldu
að hægt yrði að sniðganga rétt Pal-
estínumanna með endalausum
„samningaviðræðum“ á meðan
þeir byggðu landnemabyggðir á
palestínsku landi, héldu pólitísk-
um föngum, hreinsuðu Jerúsal-
em af arabískum áhrifum, niður-
lægðu fólk með takmörkunum á
ferðafrelsi þeirra, neitaði að viður-
kenna ályktanir S.þ. og svo
framvegis. Þess vegna kom hin
nýja Intifada … til að hrista upp í
Ísraelskum leiðtogum og almenn-
ingi og senda skýr skilaboð um að
það verður engin friður nema Ísra-
elsmenn fara frá herteknu svæð-
Ísrael getur ekki verið
ríki hernaðar að eilífu
Viðtal
við
Muham-
mad
Jaradat
sem berst
fyrir rétti
palest-
ínskra
flótta-
manna