Frjáls Palestína - 01.07.2001, Qupperneq 7
FRJÁLS PALESTÍNA6
Félagið Ísland-Palestína for-dæmir harðlega grimmdarleg-
ar árásir Ísraelshers á varnar-
lausa íbúa herteknu svæðanna
sem nú sæta daglegum
sprengjuárásum frá árásarþyrl-
um, skriðdrekum og sprengju-
flugvélum af fullkomnustu gerð.
Nú hafa á sjötta hundrað manns
fallið í árásum Ísraelshers og
landtökumanna, þar af um 200
börn undir 18 ára aldri og nærri
eitthundrað stúdentar.Tala
særðra og limlestra nálgast
25.000 og eru 40% þeirra börn.
Fjöldi fatlaðra af völdum þessara
árasa er kominn upp í 2.300
manns sem eru nærri jafnmargir
og urðu örkumla í fyrri Intifada-
uppreisn Palestínumanna árin
1987–1992. Fjórir palestínskir
læknar hafa verið drepnir. Her-
nám Ísraela á palestínsku landi
og sívaxandi landtaka þeirra fela
í sér margföld brot á alþjóða-
lögum og samþykktum Sam-
einuðu þjóðanna.
Samkvæmt Genfarsáttmálan-
um er hernámsveldi ábyrgt fyrir
öryggi íbúanna. Í þessu ljósi eru
loftárásir Ísraelshers og morð
dauðasveita þeirra, sem leita uppi
ákveðna einstaklinga og taka þá
af lífi án dóms og laga, enn glæp-
samlegri en ella. Hér er um að
ræða ríki sem reynir að flagga
lýðræði en ástundar í þess stað
hryðjuverk fyrir opnum tjöldum.
Félagið bendir á að hernámið er
undirrót átakanna og full ábyrgð
hvílir á Ísraelsstjórn og hernáms-
liðinu gagnvart þeim ódæðisverk-
um sem unnin eru jafnt af hendi
Ísraelshers og landtökuliði sem
og palestínskum aðilum. Það skal
jafnfram áréttað að þjóð sem býr
við hernám hefur samkvæmt
stofnsáttmála S.þ. ótvíræðan rétt
til að veita andspyrnu til að losa
sig undan hernáminu.
Félagið Ísland-Palestína tekur
undir þær kröfur sem hljóma um
heim allan að Palestínumenn á
herteknu svæðunum fái alþjóð-
lega vernd. Palestínumenn eru
herlaus þjóð, að því leyti svipuð Ís-
lendingum, og hún á enga
möguleika á að verjast Ísraelsher,
einum fullkomnasta og öflugasta
her í heimi.
Félagið minnir á samhljóða
ályktun Alþingis frá 18. maí 1989
þar sem lögð er áhersla á að
viðurkenna sjálfsákvörðunarrétt
palestínsku þjóðarinnar, tilveru-
rétt Ísraelsríkis og rétt palest-
ínskra flóttamanna að fá að snúa
aftur til fyrri heimkynna sinna í
Þann 21. febrúar birtu mann-
réttindasamtökin Amnesty
International skýrslu um átök-
in í Mið-Austurlöndum. Í henni
kemur fram að samökin for-
dæma „ríkismorð“ (State
assassinations) Ísraelsmanna
á óbreyttum Palestínumönn-
um. Jafnramt fordæma sam-
tökin árásir vopnaðra hópa
Palestínumanna á óbreytta Ís-
raelsmenn og byggðir Ísraels-
manna.
Skýrslan er unnin eftir
heimsókn sendinefndar Amn-
esty International til herteknu
svæðanna; Gaza og Vesturbakk-
ans. Í henni kemur fram að ís-
raelskar öryggissveitir hefðu
hæglega getað handtekið suma
þeirra sem þær skutu til bana.
Nefnt er dæmi um leigubíl-
stjórann Hani Abu Bakra sem
grunaður var um aðild að Hamas
samtökunum og var skotin til
bana í desember af fimm Ísra-
elskum hermönnum af 2 metra
færi þegar hann var að keyra
mini-rútu. Einn af farþegunum
lést einnig í skotárásinni og
annar örkumlaðist.
„Samþykki Ísraelsmanna
við ólögmætum drápum og það
að hvert dráp skuli ekki vera
rannsakað af öryggisástæðum
leiðir til samviskuleysis ísra-
elskra hermanna og ýtir undir
hringrás ofbeldis og hefnda á
svæðinu.“ Sendinefndin lýsir
einnig yfir áhyggjum sínum að
ísraelskar öryggisveitir noti
vopn á borð við sprengivörpuna
M203, en sprengjur úr henni
springa í 15 metra hæð og
drepa eða særa fólk á stóru
svæði.
Eldar Ástþórsson
Amnesty
International
fordæmir
morð Ísraels-
manna
samræmi við margítrekaðar álykt-
anir S.Þ. Félagið skorar á íslensk
stjórnvöld að slíta stjórnmála-
sambandi við Ísrael á meðan þetta
ríki telur sig hafið yfir alþjóðalög
og samþykktir S.Þ.“
Grimmdarlegar
árásir Ísraela
fordæmdar
Stjórn
Félagsins
Ísland-
Palestína
sendir frá
sér
eftirfarandi
ályktun 21.
maí 2001