Frjáls Palestína - 01.07.2001, Side 10
FRJÁLS PALESTÍNA 11
þekki ekki lengur. Þú líkist lífinu
eins og það á að vera en er ekki
lengur. Nokkrum lögum seinna
klappar maðurinn minn á öxl mér.
Ég tek eyrnatólið af öðru eyra og
hlusta á hvað hann hefur að segja.
Núna eru þeir að sprengja al-Bir-
eh, rétt hjá Ramallah. Ég sem
hélt að hann ætlaði að spyrja mig
hvort mig langaði út að borða, eða í
göngutúr að finna rósailminn, eða
fara í bíó … eða jafnvel fara og
hlusta á jazz!
Æ, afsakið minnistapið. Ör-
skotsstund gleymdi ég að ég væri
í Palestínu. Við gerum ekki svona
bjánalega hluti hér. Við bíðum
frekar eftir því hvort við deyjum
eða ekki. Alvarleikinn er okkar ær
og kýr. Sprengjuárásir, flug-
skeytaárásir, líkin hrannast upp
… teldu Muna … teldu alltaf.
Teldu svo þú gleymir því ekki.
Bráðum veistu kannski ekki hvað
einn plús einn eru … teldu og
kastaðu upp … kastaðu upp og
teldu. Tapaðu þyngd, það er í lagi.
Tapaðu vitinu líka ef þú þorir …
þetta er aðeins byrjunin. Þeir hafa
enn ekki drepið nógu mörg okkar.
Blóð hinna dauðu og særðu fyllir
ekki einu sinni sundlaug enn.
Ekki enn!
Á morgun kemur nýr dagur.
Munum við vakna eður ei?
Munum við lifa eður ei? Munum
við missa handlegg, auga, nýra?
Munum við vera í hópi eftirlif-
enda? Munum við lifa til að geta
sagt frá? Og er við lifum … mun
einhver hlusta? Halló … eruð þið
þarna? Palestína kallar. P A L E S
T Í N A !
Muna Hamzeh-Muhaisen,
Dheisheh flóttamannabúðirnar
Palestínu
(þýðing: Bergsteinn Jónsson)
Það er oft talað um að heim-urinn sé orðinn lítill og víst er
það að fólk ferðast heimshorna á
milli rétt eins og menn skruppu
bæjarleið áður fyrr. En það hefur
lengi verið til siðs að rétta ná-
granna hjálparhönd ef hann býr
við neyð. Palestínumenn eru orðn-
ir nágrannar okkar. Þar er mikil
neyð og margir tína lífi og limum
dag hvern vegna vegna ofsókna
ofstækisfulls herveldis sem
byggðist upp á landi þeirra fyrir
tilstuðlan Vesturveldanna.
Hernumið land
Árið 1947 úthlutuðu Sameinuðu
þjóðirnar aðeins litlum hluta þess
lands sem nú er undir
yfirráðum Ísraels. Meiri-
hluta landsins hefur
Ísrael hernumið. Jerú-
salem er t.d. hernumin
borg. Með Óslóarsam-
komulaginu létu Pal-
estínumenn af kröfum
um að fá til baka land
sem tekið var af þeim
með hervaldi 1948, en
standa fast á því að fá
sem mest af landsvæð-
unum sem hernumin
voru í sex daga stríðinu
1967 og að flóttamenn
fái að snúa heim. Það var þeirra
ógæfa að Bandaríkjastjórn skyldi
sveipa sig skikkju hins hlutlausa
sáttasemjara, því þeir hafa alla
tíða haldið Ísrael uppi, pólitískt,
efnahagslega og hernaðarlega.
Ofsótt þjóð án mannréttinda
Aðeins um þriðjungur Palestínu-
manna býr á sjálfstjórnarsvæðun-
um á Vesturbakkanum og Gasa.
Svæði þessi eru öll sundurskorin
af yfirráðasvæðum Ísraels (land-
nemabyggðum og vegum sem Ís-
rael ræður) og ferðafrelsi fóks er
svo skert að mánuðum saman
kemst það ekki til vinnu og út-
flutningur á vörum nánast
ómögulegur. Af þessum sökum
er efnahagur sjálfstjórnarsvæð-
anna í rúst, sultur sverfur að og
erfitt að halda skólum og heilsu-
gæslu gangandi. Vel á þriðju
milljón manna býr í flóttamanna-
búðum sem Sameinuðu þjóðirnar
hafa tilsjón með.
Ofan á þetta ófrelsi bætist
stöðug hernaðarógn, morð (ekki
síst á börnum), eyðilegging
íbúðarhúsa og akra með jarðýtum
og upptaka eigna. Hefnigirni
síonosta í Ísrael er óhugnanleg.
Þeir virðast enn ekki hafa lært sitt
eigið lögmál um auga fyrir auga
og tönn fyrir tönn, því þeir þurfa
helst að limlesta og drepa fjölda
manns ef einhver skerðir hár á
höfði eins þeirra. Hóprefsingar
sem þessar stríða gegn alþjóða-
lögum, svo og ótal margt annað í
þeirra daglegu hegðun.
Hjálpum þeim!
Síðustu mánuði hafa Palestínu-
menn beðið um alþjóð-
lega vernd gegn árás-
um Ísraelshers. Stór-
veldin hafa skellt skolla-
eyrum við þeirri bón.
Hvers vegna? Hvers
vegna stöðva landvinn-
inga Serba og Íraka en
láta morð og landvinn-
inga Ísraela afskipta-
laust?
Í Palestínu herjar eitt
af öflugustu herveldum
heims á óbreytta borg-
ara sem langflestir eru
vopnlausir. Þó að nokkr-
ir palestínskir skæruliðar hafi
komist yfir vopn hafa flestir
ekkert til að verja sig og réttindi
sín með nema orð, berar hendur
og grjót. Tölur um fallna eru til
vitnis um mismun í hernaðarstyrk
og grimmd. Þetta er því ekki stríð
heldur morðárásir á óbreytta
borgara. Það er íslenskum stjórn-
völdum til skammar að láta af-
skiptalaus slík níðingsverk rétt ut-
an við túngarðinn.
Stóru féttamiðlarnir eru hallir
undir þann sem meira má sín og
gefa oftast hlutdræga mynd af
átökunum í Palestínu. Það er auð-
velt að kynna sér hvernig málið
lítur út frá sjónarhóli hinna undir-
okuðu Palestínumanna, með því að
fara inn á internetið, t.d. inn á
nýja vefsíðu Félagsins Ísland-Pal-
estína, www.palestina.is, þar
sem m.a. er að finna slóðir mann-
réttindasamtaka í Palestínu og
Ísrael.
(Greinin birtist í DV í apríl sl.)
Neyðarkall
Þorvaldur
Örn
Árnason
skrifar
Munið glæsilega og
efnismikla heimasíðu
Félagsins Ísland-
Palestína
www.palestina.is
Skellið ykkur á netið
og skoðið.