Frjáls Palestína - 01.07.2001, Síða 15
FRJÁLS PALESTÍNA14
Edward Said er prófessor í bók-
menntafræði við Columbia-há-
skóla í New York og er í hópi
þekktustu talsmanna Palestínu-
manna. Hann nýtur almennrar
virðingar fyrir fræðistörf sín, og
ber þar hæst bókina Orientalism,
sem er sögulega yfirgripsmikil
og afar fræðileg úttekt á viðhorf-
um evrópskra fræðimanna,
stjórnmálamanna, rithöfunda og
landkönnuða sem skrifað hafa um
Austurlönd í gegnum aldirnar.
Said telur að þessi viðhorf, sem
oftar en ekki sé best lýst sem for-
dómum og ranghugmyndum,
séu enn til staðar í vitund Vestur-
landabúa.
Öllu aðgengilegri er bók hans
Covering Islam, sem er gagnrýni
á óvandaðan fréttaflutning í
Bandaríkjunum um þjóðfélög
Múslima. Bókin var upphaflega
skrifuð í tilefni af fjölmiðlafári í
tengslum við gíslatökuna í banda-
ríska sendiráðinu í Teheran árið
1979, en hefur nú verið uppfærð
og inniheldur fjöldamörg nýleg
dæmi. Ítarlega umfjöllun Saids
um sögu deilunnar milli Ísraela
og Palestínumanna má finna í
The Question of Palestine þar
sem sagan er sögð frá sjónarhóli
Palestínumanna.
Said hefur ekki legið á skoð-
unum sínum um ævina, og eru til
eftir hann tvö greinasöfn. Greinar
sínar hefur hann birt víða í dag-
blöðum og tímaritum, allt frá Dag-
ens Nyheter í Svíþjóð til Al-Ahram
í Egyptalandi. Fyrra safnið, The
Politics of Disposession, inni-
heldur greinar frá tímabilinu 1969
til 1994. The End of the Peace
Process nær yfir tímabilið 1994 til
2000. Í seinni bókinni fer það
viðhorf Saids ekki leynt, að hann
telur Yasser Arafat og forystu PLO
í heild hafa svikið palestínsku
þjóðina með Oslóarsamningun-
um. Bækur Saids hafa verið bann-
aðar af palestínskum yfirvöldum á
hernumdu svæðunum.
Out of Place er sjálfsævisaga
Saids.
Ísraelskir
sagnfræðingar
Lengi vel eftir stofnum Ísraels
var þar í landi haldið á lofti afar
þjóðernissinnaðri túlkun á stríðinu
1948–1949. Sú mynd var dregin
upp að vanmáttugt Ísrael hefði
barist gegn ofurefli Arabaríkj-
anna en á endanum borið sigur
úr býtum á kraftaverkakenndan
hátt, rétt eins Davíð sem sigraði
Golíat. Með þessari túlkun var
hægt að mála harkarleg ofbeldis-
verk sem sjálfsvörn eða réttláta
baráttu og var þetta lengi vel hin
viðurkennda söguskoðun í Ísrael.
Á síðari árum hafa ísraelskir
sagnfræðingar tekið að gagnrýna
þessa söguskoðun nokkuð, og
margir þeirra gengið fram af aðdá-
Forsætisráðherra Ísraels, Ariel
Sharon, hefur verið kærður
fyrir belgískum dómstólum
fyrir ábyrgð sína á fjöldamorð-
unum í flóttamannabúðunum
Sharon ákærður fyrir fjöldamorð í Belgíu
Sabra og Shatila. Sam-
kvæmt ákærunni er Sharon
talin hafa leyft kristnum her-
sveitum að ráðast inn í flótta-
mannabúðirnar með þeim
afleiðingum að 800 til 2.000
Palestínumenn voru myrtir.
Búðirnar voru staðsettar á
svæði sem ísraelski herinn réð
yfir.
Kæran er lögð fram í samræmi við
ný belgísk lög sem samþykkt
voru árið 1993 sem gefur dóm-
stólum leyfi að taka fyrir mál ein-
staklinga af hvaða þjóðerni sem er
fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn
mannkyninu þótt þeir séu framd-
ir fyrir utan Belgíu. Að kærunni
stendur hópur af fólki sem er af
palestínskum, líbönskum, mara-
kóskum og belgískum uppruna.
Sameinuðu þjóðirnar hafa flokkað
fjölamorðin í Sabra og Shatila
sem lið í þjóðarmorði. Ísraelsk
rannsóknarnefnd komst að þeirri
niðurstöðu árið 1983 að Sharon
hefði óbeint borið ábyrgð á fjölda-
morðunum, en sú niðurstaða varð
varð til þess að hann sagði af sér
sem utanríkisráðherra.
Lesefni um Palestínu
Mogens Lykketoft, utanríkisráð-
herra Danmerkur, lýsti því yfir í
viðtali við Berlingske Tidentde 27.
mars að Evrópusambandið ætti
að setja viðksiptabann á Ísrael
vegna áframhaldandi uppbygg-
ingar landnemabyggða gyðinga á
herteknu svæðunum. „Nýjar
landnemabyggðir Ísraela á her-
teknu svæðunum og stækkun
þeirra sem fyrir eru er ein
hættulegasta hindrunin fyrir friði
í Mið-Austurlöndum (…) Nýjar
landnemabyggðir Ísraela ganga
þvert á ákvæði Genfarsáttmálans
og munu aðeins leiða til frekara
ofbeldis“.
Utanríkisráðherrann lét svipuð
ummæli frá sér fara á dönsku
sjónvarpsstöðinni TV 2 um dag-
inn. „Ólöglegar landnemabyggðir
á herteknu svæðunum, sem Ísra-
elsmenn hafa framkvæmt og
Sharon og hans fylgismenn
styðja, vinna mjög gegn mögu-
leikum Palestínumanna á að
stofna sitt eigið ríki“. Mogens hef-
ur í hyggju að kynna hugmynd
sína um að framferði Ísraela verði
mætt með viðskiptahindrunum af
halfu Evrópusambandsins fyrir
öðrum utanríkisráðherrum þess.
Evrópusambandið hefur þeg-
ar ályktað að Ísraelar eigi að aflétta
lokunum á svæðum Palestínu-
manna og greiða þau gjöld sem
þeim ber samkvæmt friðarsam-
komulagi sínu við PLO. Ályktunin
kveður einnig á um að heima-
stjórn Palestínumanna verði að
grípa til aðgerða gegn spillingu og
stefna að meira lýðræði á yfirráða-
svæðum sínum.
Eldar Ástþórsson
Utanríkisráðherra
Danmerkur vill
viðskiptahindranir
á Ísrael