Jón á Bægisá - 01.11.2008, Page 111

Jón á Bægisá - 01.11.2008, Page 111
Ævintýri Tsjitsjikovs VIII Fingri var ýtt á bjölluhnapp. - Boðbeli. Dyrnar opnuðust og við blasti Petrúshka. Hann var nú löngu farinn frá Tsjitsjikov og búinn að taka við starfi sendiboða á ríkisskrifstofu. - Takið við þessum böggli tafarlaust og leggið tafarlaust af stað. Petrúshka sagði: — Skal gert, herra. Hann tók böggulinn tafarlaust, lagði tafarlaust af stað og týndi hon- um tafarlaust. Þau hringdu í bílskúrinn til Selifans. - Bíl. Undir eins. — Strax. Selifan tók kipp, breiddi hlýjar buxur yfir vélina, snaraði sér í blússu, stökk uppí sætið, blístraði, bíbaði og flaug af stað. En hver er sá Rússi, sem ekki elskar þeysireið? Selifan unni henni líka og neyddist því, beint fyrir framan innreiðina að Ljúbjönku, til að velja á milli sporvagns og búðarglugga úr speglagleri. A örskotsstundu kaus Selifan hið síðarnefnda, vék sér undan sporvagninum, og veinandi „Hjálp!“ keyrði hann eins og hvirfilvindur inn um gluggann. Þá brást jafnvel Tentétníkov þolinmæði, þann sem stjórnaði öllum Se- lifönum og Petrúshkum: - Rekið þá báða til svínanna! Báðir voru þeir reknir og sendir uppá vinnumiðlun. Þaðan voru skip- aðar eftirfarandi mannabreytingar: í stað Petrúska kom Proshka hans Pljúskhíns, í stað Selifans kom Grigorij Farðu-þangað-sem-þú-ekki-kemst. En á meðan hélt áfram að krauma í málasúpunni. — Skjalið um fyrirframgreiðsluna! — Gjörið svo vel. - Biðjið Ivan Oþveginn að koma. Ekki var unnt að verða við þeirri beiðni. Fyrir um tveimur mánuðum hafði hann verið rekinn úr Flokknum, en hann hafði líka rekið sjálfan sig frá Moskvu strax eftir það, enda nákvæmlega ekkert þar fyrir hann að gera. - Ivar Krukkufés? Hann fór lengst út í krummaskuð að leiðbeina Sýslunefnd. Þá tóku þau til við Jelísavetu Spör. Hér er engin slík! Hér er, að vísu, vélritunardaman Jelísaveta, en hún er ekki Spör. Hér má finna Spör, hjálp- armann staðgengils undirritara aðstoðarútibússtjórans ... en hann er eng- in Jelísaveta! á — Að geta sagt „shit“ fyrir framan dömu 109
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.