Jón á Bægisá - 01.11.2008, Page 127

Jón á Bægisá - 01.11.2008, Page 127
Hœversk uppástunga konungdæmið, þar eð verðið á næringu og fatalörfum fyrir þau er að minnsta kosti fjórfalt hærra. 8. Eg mun nú auðmjúklega leggja fram mínar eigin hugleiðingar sem ég vona að bjóði ekki upp á nein mótmæli. 9. Ameríkumaður5 nokkur sem ég kynntist í Lundúnum og sem hefur gott vit á þessum málum, fullvissar mig um að vel alið,6 ungt og heilbrigt barn um eins árs aldur, sé mjög gómsæt, næringarrík og heilsusamleg fæða, hvort sem er í kássu, sem steik, bakað eða soðið, og ég efast ekki um að það muni bragðast jafn vel í sósu með núðlum eða í kryddkássu.7 10. Ég legg því auðmjúklega fram fyrir almenning til íhugunar, að af þeim eitt hundrað og tuttugu þúsund börnum sem koma fram í útreikningi mínum hér að ofan, megi halda eftir tuttugu þúsund til undaneldis, þar af einungis einum fjórða karlkyns; sem er stærra hlutfall en við notum fyrir sauðfé, nautpening eða svín; rök mín eru þau að þessi börn eru sjaldnast ávextir hjónabands, sem er nokkuð sem villimenn- irnir okkar virða lítils, og því mun einn karl vera nóg til að gagnast fjórum konum. Þau eitt hundrað þúsund sem eftir eru má um eins árs aldurinn bjóða til sölu til fjársterks heldri fólks í konungdæminu. Móðurinni skal ráðlagt að leyfa barninu að sjúga vel síðasta mánuðinn, til að barnið verði bústið og vel feitt fyrir matarborðið. Eitt barn nægir í tvo rétti þegar gestum er boðið í mat, og þegar fjölskyldan borð- ar saman mun frampartur eða læri ásamt lendum duga í einn rétt. Kryddað með pipar eða salti verður það mjög gott soðið á fjórða degi, sérstaklega að vetrarlagi. 11. Ég hef reiknað út að meðaltalsþungi nýfædds barns sé um 12 pund, og á einu ári getur það aukið þyngd8 sína í 28 pund ef það fær viðunandi fæðumagn. 12. Ég viðurkenni að þetta mun verða nokkuð dýr matur og því sérlega við- eigandi fyrir landeigendur, sem má segja að eigi best tilkall til barnanna því þeir hafa hvort sem er þegar að mestu leyti étið upp foreldrana. 13. Ungbarnakjöt verður fáanlegt árið um kring, en mest framboð verður í marsmánuði og aðeins fyrir og eftir; því okkur er sagt af háalvarleg- um höfundi, mikils metnum frönskum lækni, að þar sem fiskmeti sé frjósemisaukandi, þá fæðist fleiri börn í löndum rómversk-kaþólskra manna um níu mánuðum eftir lönguföstu, og því mun framboð á á JoeBatóá — Að geta sagt „shit“ fyrir framan dömu 125
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.