Þjóðmál - 01.12.2013, Qupperneq 15
14 Þjóðmál VETUR 2013
málari dró upp árið 1860, en ljósmyndin er
varðveitt í Ljósmyndasafni Íslands .*
Mynd sína gerði Sigurður málari eftir blý-
antsteikningu, vangamynd, sem Helgi Sig -
urðs s on dró upp af Jónasi þar sem hann lá á
líkbörum á Friðriksspítala í Kaup manna höfn
27 . maí 1845, myndinni af líki Jónasar .
Frá blýantsteikningu Helga Sigurðssonar
til steinprentsins framan við ljóðmælin
1883 er löng leið, milliliðir tveir eins
og fram hefur komið: teikning Sigurðar
málara og ljósmynd af þeirri teikningu
sem ritnefndin 1883 hafði undir höndum .
Þess er því naumast að vænta að myndin,
sem við höfum oftast fyrir augunum, sé
lík Jónasi Hallgrímsyni eins og hann var
í lifanda lífi, enda segir sagan, að frændur
* Ljósmyndin er merkt Mms 978 .
3 . Teikning Sigurðar málara frá 1860 . Undir mynd-
inni stendur í sveig: Sigurðr Guðm. eptir frum m.
Helga Sigurðssonar og lysíng 1860.
4 . Blýantsteikning Helga Sigurðssonar frá 27 . maí
1845 . Myndin af líki Jónasar. LÍ 151 .
hans í Eyjafirði hafi talið steinprentið
framan við ljóðmælin 1883 lítið minna á
hann og „verið á móti myndinni“ .**
** Heimildarmaður minn er Kristín Gunnars-
dóttir frá Helgastöðum í Eyjafirði [f . 1924] .
Hefur hún eftir ömmu sinni, Rannveigu
Jónsdóttur [f . 1860], að faðir hennar, Jón Pálsson
[1821–1905], bóndi á Helgustöðum í Eyjafirði,
hefði talið steinprentið framan við Ljóðmæli og
önnur rit eptir Jónas Hallgrímsson (1883) minna
lítið á Jónas Hallgrímsson og „hafi hann verið
á móti myndinni“ . Þeir Jón Pálsson og Jónas
Hallgrímsson voru þremenningar, afar þeirra,
Davíð Tómasson á Arnarstöðum [1747–1799]
og Jónas Tómasson í Hvassafelli [1748–1808]
voru bræður . Páll Melsteð segir hins vegar
í endurminningum sínum: „Mynd Jónasar
Hallgrímssonar, tekna af honum dauðum af séra
Helga Sigurðssyni, tek eg líka framyfir þessa mynd
af Steingrími biskupi“, en umrædda biskupsmynd
segir Páll að vísu hafa verið mesta ótæti að allra
dómi er sáu hana . Endurminningar Páls Melsteð .
Kaupmannahöfn 1912, 42 .