Þjóðmál - 01.12.2013, Blaðsíða 18
Þjóðmál VETUR 2013 17
hnappagöt á jakkaboðungnum standast
ekki á . Sjálf vangamyndin er eðlilega
skyggð, eyrað teiknað mjög nákvæmlega
og hárið niðurkembt og teiknaðar bólur á
vanga og skegghýjungur á kjálkabörðum .
Hugsanlega er þetta mynd sú sem lögð var
fram á fundi í Fjölnisfélaginu 16 . nóvember
1845 og vikið verður að hér á eftir .*
Fjórða teikning Helga Sigurðssonar í
Listasafni Íslands af Jónasi er ófullgerð
blýantsteikning, vangamynd, merkt LÍ
154 (7 . mynd) . Þessi blýantsteikning er
sennilega gerð eftir svartkrítarteikningunni .
Hlutföll eru enn óeðlileg, höfuð of stórt
miðað við bolinn og vinstri handleggur of
grannur . Hugsanlega er þessi ófullgerða
teikning frumgerð myndar þeirrar sem lögð
var fram í Fjölnisfélaginu 18 . janúar 1846
og vikið er að hér á eftir .
* Athygli lesandans skal vakin á því, að ef mynd inni
er snúið um 90º, sést að þetta er teikn ing af manni
sem liggur á bakinu . Á þetta einnig við um myndina
LÍ 151 (1 . mynd) .
V
Fyrsti íslenski ljósmyndarinn
Helgi Sigurðsson fæddist á Ísleifsstöð-um á Mýrum 2 . ágúst 1815, var
tek inn í Bessastaðaskóla haustið 1835 og
lauk þaðan prófi vorið 1840, en sigldi þá til
Hafnar og tók um haustið inntökupróf í há-
skól ann . Hann gaf sig fyrst að lögfræði en
las læknisfræði á sjötta ár og var kominn að
lokaprófi vorið 1846 . Fyrir bænastað móður
sinnar, sem lá fyrir dauðanum, fór hann heim
áður en hann lauk prófi í læknisfræði, til þess
að reyna að lækna hana, að því er Matthías
Þórðarson segir, en með þeim ásetningi að
fara aftur til Hafnar og ljúka námi .** Ekkert
varð hins vegar úr því . Helgi Sigurðsson tók
við búi á móðurleifð sinni á Jörfa og bjó þar
til 1866 . Þá vígðist hann til prests, fimmtugur
að aldri, sat fyrst að Setbergi í Eyrarsveit og
síðar að Melum í Melasveit .
Í áður nefndri grein í Óðni segir Matthías
Þórðarson að þegar Jónas dó hafi engar
myndir verið til af honum, og Matthías
bætir við:
Hann hafði að sögn aldrei í lifanda lífi leyft
nokkrum að gera mynd af sjer . Þetta vissi
Helgi Sigurðsson frá Jörva, sem þá dvaldi
við nám í Höfn er Jónas dó . […] Helgi
hefur líklega verið kunnugur Jónasi og
vitað vel hver maður hann var . Hann lagði
meðal annars stund á dráttlist og hefur
máske oft beðið Jónas um að mega reyna
að gera mynd af honum, en ekki fengið .***
Helgi Sigurðsson lagði hins vegar ekki aðeins
stund á dráttlist í Det kongelige danske
kunst akademi í Charlottenborg við Kong ens
Nytorv . Haustið 1842 tók hann að nema þar
** Matthías Þórðarson: Íslenzkir listamenn . Reykjavík
1920, 48–66 .
*** Matthías Þórðarson: „Myndir af Jónasi
Hallgrímssyni .“ Óðinn, 3 . blað, júní 1908, 18 .
7 . Ófullgerð blýantsteikning eftir Helga Sig-
urðss on . LÍ 154 .