Þjóðmál - 01.12.2013, Blaðsíða 25
24 Þjóðmál VETUR 2013
og Hreiðars á Akureyri“ . Það styttist því í
sjötíu ára útgáfuafmæli .
Tugir þúsunda eintaka
Bækurnar um Öddu nutu mikilla vinsælda og voru oft endurútgefnar .
Jenna, sem er 95 ára, vill lítið gera úr vin-
sældunum en segist þó enn hitta fólk sem
þakkar fyrir bækurnar og minnist þeirra
frá uppvaxtarárunum . „Heildarupplagið
er víst um sextíu til sjötíu þúsund eintök,“
segir hún, en það mun vera mjög mikið á
íslenskan mælikvarða . „Þær voru mikið
lánaðar út í bókasöfnum .“
Aðspurð segir Jenna að bækurnar byggi
mikið á hennar eigin reynslu og því sem
hafi gerst . Persónurnar eru settar saman
úr fólki sem varð á vegi hennar . Hún var
fædd og alin upp í Dýrafirði, fór sextán ára
að heiman, dvaldi um skeið í Stykkishólmi
og fór síðan til Reykjavíkur og settist í
Kennaraskólann . Þar kynntist hún Hreið-
ari . Þau bjuggu á Akureyri í rúma tvo
ára tugi og kenndu í sínum eigin skóla og
einnig í Barnaskólanum á Akureyri og
Gagn fræða skólanum . Árið 1963 fluttu þau
til Reykjavíkur og störfuðu lengi sem kenn-
arar í Langholtsskóla .
Fyrstu sex Öddubækurnar í útgáfu Uglu, en sjöunda
bókin, Adda trúlofast, kemur út á næsta ári .
Sagt um Öddubækurnar
Kærkomin bók fyrir vinina hennar
Öddu, en þeir munu vera orðnir
margir. Léttur og látlaus stíll, lipur
og flækjulaus frásögn og sönn lýsing.
Halldór Kristjánsson,
Tíminn 9 . desember 1950 .
Börnin hafa tekið bókum þeirra
hjóna með fögnuði.
Eiríkur Sigurðsson,
Dagur 15 . desember 1956 .
Sagan er liðleg og skemmtileg.
Andrés Kristjánsson,
Tíminn 19 . desember 1965 .
Öddubækurnar eru siðbætandi í
þeirri merkingu að þær halda fram
hinu góða á kostnað hins illa.
Jóhann Hjálmarsson
Morgunblaðið 16 . mars 1995 .
Hlýjan og væntumþykjan fyrir
persónunum skín í gegn.
Ritstjórnargrein,
Morgunblaðið 21 . nóvember 2010 .