Þjóðmál - 01.12.2013, Blaðsíða 38
Þjóðmál VETUR 2013 37
spila á hljóðfæri mun hafa tekjur af þeirri
iðju . Ætli hinir læri þetta ekki vegna þess að
tónlist auðgar lífið ekki síður en pen ingar .
Í veruleikanum sækist fjöldi fólks eftir alls
konar menntun sem hefur ósköp lítið með
tekjuöflun að gera . Samt er þrástagast á því
að menntun þjóni einkum efnahagslegum
markmiðum og þeir sem eru fastir í þessari
hugsun halda gjarna að fólk sem klárar
ekki framhaldsskólanám hljóti að vilja læra
eitthvert starf . Það er endalaust talað um
stutt ar starfstengdar námsbrautir fyrir þetta
fólk . Þessi síbylja hefur hljómað í að minnsta
kosti þrjátíu ár og á þeim tíma hefur verið
boðið upp á margar slíkar brautir en fáir
innritað sig á þær . Þessar margmisheppn-
uðu tilraunir eru afsprengi hálfsannleika um
gildi menntunar og þessum hálfsannleika
er haldið fram svo einstrengingslega að úr
verður skrumskæling . Ég hef starfað við
fram haldsskóla samfleytt frá 1986, bæði
sem kennari og sem skólastjórnandi, og mér
sýnist reynslan benda til að þorri þeirra sem
ekki nær að ljúka þriggja til fjögurra ára fram-
halds skólanámi vilji fremur almenna mennt-
un með öðrum áherslum en nú tíðkast á
náms brautum framhaldsskóla, heldur en
sér hæfingu eða undirbúning fyrir eitt starf .
Þó þetta sé að sjálfsögðu misjafnt frá
manni til manns virðist vilji fólks til að læra
yfirleitt drifinn áfram af fleiru en löngun til
að búa sig undir starf eða bæta stöðu sína
á vinnumarkaði . Námsval fólks staðfestir
raunar að þetta á við um marga því mikill
fjöldi velur námsleiðir sem ekki auka að ráði
líkur á góðum launum . Nærtækasta skýr-
ingin á þessu er að flestum þyki menntunin
sjálf ekki síður eftirsóknarverð en auðurinn
sem hún aflar . Fólk er ekki upp til hópa svo
heillum horfið að það geri sér ekki ljóst, að
minnsta kosti í aðra röndina, að vísindi,
fræði, tækni, listir og íþróttir eru það besta
sem mennirnir eiga . Menntun gefur fólki
hlutdeild í þessum fjársjóðum . Eitt sinn,
þegar orðið „íþrótt“ náði yfir mun fleira en
það gerir í nútímamáli, voru þau sannindi
að manni sé betra að vera vel menntaður en
að eiga mikla peninga orðuð í stuttu máli
og sagt: Góð íþrótt gulli betri .
Heyskapur, fiskiróðrar
og hálfsannleikur númer þrjú
Þá er komið að þriðja atriðinu í upp-talningunni sem oft helst í hendur við
hin tvö . Þetta þriðja atriði er sú trú að í
skólum eigi menn einkum að læra það sem
gagnast í vinnu . Víst er gott að menn læri
til starfa en áhersla á það eitt horfir fram
hjá því að skólaganga býr fólk undir líf sem
snýst um fleira en vinnu . Það þarf til dæmis
menntun til að rækja borgarlegar skyldur
og til að stjórnmál þróist með farsælum
hætti . Menntun getur líka nýst fólki til að
ala börn sín betur upp . Allt þetta gagnast að
sjálfsögðu atvinnulífinu, því flest fyrirtæki
njóta góðs af því að landinu sé vel stjórnað
og fólk almennt skynsamt og vel að sér .
Atvinnulíf framtíðarinnar græðir líka á
É g hef starfað við fram-halds skóla samfleytt frá
1986, bæði sem kennari og sem
skóla stjórn andi, og mér sýnist
reynslan benda til að þorri þeirra
sem ekki nær að ljúka þriggja
til fjögurra ára framhaldsskóla-
námi vilji fremur almenna
menntun með öðrum áherslum
en nú tíðkast á námsbrautum
framhaldsskóla, heldur en
sérhæfingu eða undirbúning
fyrir eitt starf .