Þjóðmál - 01.12.2013, Page 73
72 Þjóðmál VETUR 2013
Norð ur landanna . Í yfirlýsingu fundarins
segir m .a . að „til að styrkja þá þegar öfluga
samvinnu á sviði öryggismála, tvíhliða og
svæðisbundna, ákváðum við að koma á fót
Samráði Bandaríkjanna og Norðurlandanna
í Öryggismálum — U .S .-Nordic Security
Dialogue“ . Þetta er sérstaklega þýðingar-
mikið fyrir Ísland vegna öryggis á norður-
skautinu . Þau mál eru annars til reglu legs
tvíhliða samráðs við Bandaríkin
(ii) ESB
Væntanlega hefur þróunin í NATO varðandi norðurskautsmál, eftir brott-
för Bandaríkjamanna frá Keflavík, verið
túlkuð á ýmsa vegu . Að lega Íslands væri lítt
áhugaverð og vanrækt af NATO hefur varla
verið talið fara milli mála . Þá hefur það
vafalaust vakið athygli, að forseti Íslands
lýsti því yfir, að Evrópusambandið hvorki
vildi né gæti haft Ísland sem aðildarríki .
Skömmu síðar 2013 lýsti þýski kanslarinn
því yfir að ESB bæði vildi og gæti tekið á
móti Íslendingum . Í kjölfar þessa gerði ný
ríkis stjórn hlé á langt komnum aðildar-
viðræðum Íslands og ekkert hefur heyrst
frá ráðherrum hennar um ávinning aðildar
fyrir Ísland . Í desember stöðvaði fram-
kvæmda stjórnin IPA-styrkina ætl aða til
undirbúnings aðildar og var lítt að furða
miðað við yfirlýsta neikvæðni ut an ríkis-
ráðherra til aðildarviðræðnanna og styrkj -
anna . Engu að síður er það yfirlýst ur vilji
framkvæmdastjórnar ESB og allra aðilda-
r íkjanna að halda samningum við Ísland
áfram .
Af sjónarhóli öryggismála skal fullyrt, að
það er úrslitaatriði fyrir sjálfstætt og full-
valda Ísland að vera innan sameiginlegra
landamæra Evrópuríkja . Það var Finnlandi
og Eystrasaltsríkjunum mikið mál af öryggis-
ástæðum . Reyndar á það sama við um Ís-
land; aðstæður eru ólíkar en ástæður þær
sömu, þ .e . að vilja tryggja það að lifa í friði
í nánu samstarfi við grannríki . Hin hliðin á
þeim peningi er efnahagslegt öryggi . Íslandi
er lífsnauðsyn að eiga sem fyrr aðgang að
þeim markaði sem ber uppi góð lífskjör
þjóð ar innar og þá ekki síður að gerast aðili
að Mynt bandalagi Evrópu . Reyna þarf á
þann ávinning, sem við gætum haft við að
gera upp skuldavanda föllnu bankanna, við
að vera á leið eða komnir alla leiðina að
þátttöku í ERM II . Þá er heillavænlegast að
fylgja stefnu Evrópuríkja í samningum um
víðtæka fríverslun og efnahagssamvinnu við
Bandaríkin — The Transatlantic Trade and
Investment Pact .
(iii) Kína
Á form Kínverja um að vinna sér aðstöðu á Íslandi er vafalaust hugsað sem lang-
tímaverkefni . Þeir hafa hins vegar talið að
hefja bæri leikinn því að Ísland væri utan
Evrópu sambandsins og í óskilgreindu sam-
bandi við Bandaríkin . Upp úr hruninu er
A f sjónarhóli öryggismála skal fullyrt, að það er
úrslitaatriði fyrir sjálfstætt og
fullvalda Ísland að vera innan
sameiginlegra landamæra
Evrópu ríkja . Það var Finnlandi
og Eystrasaltsríkjunum mikið
mál af öryggis ástæðum .
Reyndar á það sama við um
Ísland; aðstæður eru ólíkar en
ástæður þær sömu, þ .e . að vilja
tryggja það að lifa í friði í nánu
samstarfi við grannríki .