Þjóðmál - 01.12.2013, Blaðsíða 77
76 Þjóðmál VETUR 2013
til að auglýsa það sérstaklega . Sjálfstæðis-
mað urinn Skúli Thoroddssen vann ötulega
með kvenréttindakonum og barðist fyrir
kosningarétti þeirra .
Af einhverjum ástæðum sækjast færri
konur eftir háum embættum en karlar,
ætli það sé ekki meginskýringin á því
að færri konur hafa verið í forystusveit
Sjálfstæðisflokksins en karlar .
Hægt er að fara flatt á ákafri PR-mennsku,
það fengu vinstri menn að reyna á síðasta
kjörtímabili, þegar þeir vildu sýna hvað þeir
voru duglegir að pota konum í mikilvæg
embætti . Jóhanna Sigurðardóttir lenti í
því að verða fyrsti kvenforsætisráðherra
lýðveldisins, henni og þjóðinni til lítis
sóma .
Frumkvæði vinstri manna í málefnum
kvenna er lygi, ein af mörgum . Hægt er að
skrifa heila bók um lygar vinstri manna í
garð Sjálfstæðisflokksins en það bíður betri
tíma . Svo er það lygin varðandi „helvítis
íhaldið“ .
Á Íslandi hefur aldrei verið íhald í stjórn-
málum . Ástæðan fyrir nafni Íhalds flokksins
var sú að Jóni Þorlákssyni þótti það vel
við hæfi, því honum fannst nauðsyn legt
að boða íhaldssemi í fjármálum og fara
gætilega í breytingar . Enda kom í ljós þegar
Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn
ákváðu að sameinast, að stefnur þeirra voru
eins í öllum málum . Eina ágreiningsmálið
fjallaði um hvort sérstakur seðlabanki ætti
að sjá um peningaútgáfu eða Landsbankinn .
Nafnið á Íhaldsflokknum var mörgum
félög um hans þyrnir í augum og hefðu þeir
séð óþverrahátt vinstri manna fyrir hefði
því verið breytt eins og skot .
Svo er það hálfsannleikurinn varðandi ættarveldin á Íslandi .
Á fyrstu áratugum tuttugustu aldar skap-
aðist stórt tómarúm í atvinnu- og stjórn-
málalífi þjóðarinnar, það skorti forystu menn
á báðum sviðum . Óbreyttir alþýðumenn
svöruðu þessari eftirspurn og lyftu þjóðinni
upp úr fátækt til bjargálna . Hefðbundin
ættarveldi liðu undir lok á nítjándu öld .
Ætli tal vinstri manna um Engeyjar-
ættina sé ekki best heppnaði hálf sannleikur
sögunnar? Þeir hafa notað hana til að
lýsa ofurvaldi „íhaldsins“ á öllum sviðum
þjóðlífsins . En hver er sannleikur inn um
þessa ágætu ætt sem getið hefur af sér
fjölda manna og kvenna, sumir hafa sett
mikinn svip á íslensk stjórnmál og skapað
sér veglegan sess í atvinnulífinu? Einhverjir
hafa efnast vel, svo er fullt af afkomendum
Engeyinga sem fáir þekkja, þ .e .a .s . óbreytt
almúgafólk .
Greinilegt er að vinstri menn undirbúa sig
illa þegar þeir hefja árásir á sjálfstæðismenn,
sennilega vegna þess að við erum svo
auðveldir andstæðingar .
Ef vinstri menn hefðu skoðað Eng-
eyjar ættina áður en þeir notuðu hana sem
áróðurs bragð til að fela eigin vanhæfni, þá
er líklegt að þeim hefði líkað hún nokkuð
vel, séu þeir að einhverju leyti sjálfum sér
sam kvæmir .
Ætli tal vinstri manna um Engeyjar ættina sé ekki
best heppnaði hálf sannleikur
sögunnar? Þeir hafa notað hana til
að lýsa ofurvaldi „íhaldsins“
á öllum sviðum þjóðlífsins . En
hver er sannleikur inn um þessa
ágætu ætt sem getið hefur af sér
fjölda manna og kvenna, sumir
hafa sett mikinn svip á íslensk
stjórnmál og skapað sér veglegan
sess í atvinnulífinu?