Þjóðmál - 01.12.2013, Blaðsíða 91
90 Þjóðmál VETUR 2013
una . En samtalið var stutt því allt var á
suðu punkti .
Aðdragandinn var þannig enginn . Ekk-
ert tækifæri til að melta þetta allt saman,
vega og meta . Þegar símtalinu lauk var ég
farin að skjálfa .
Ég skalf af áhyggjum yfir því hrikalega
verkefni sem Jóhanna átti í vændum ef
hún yrði forsætisráðherra . […]
Ef Jóhönnu tækist að mynda ríkisstjórn
yrði allt sem hún gerði umdeilt .
Vakin er athygli á síðustu setningunni í
hinum tilvitnuðu orðum . Jónína er þeirrar
skoðunar að einhver vafi hafi verið um að
Jóhanna yrði forsætisráðherra, hún ætti eftir
að mynda stjórnina . Ef marka má fréttina
frá forsetaembættinu myndaði Ingibjörg
Sól rún ríkisstjórnina án þess að hafa heilsu
til þess . Össur Skarphéðinsson segist hafa
lagt spilin í hendur Ingibjörgu Sólrúnu .
Steingrímur J . Sigfússon lætur eins og hann
hafi ráðið miklu um myndun stjórnarinnar .
Össur segir hins vegar að Steingrímur J .
hafi ekki komið að málinu fyrr en eftir að
lokahönd hafi verið lögð á meistaraverkið .
Þá er einnig athyglisvert orðalagið hjá
Jónínu þegar hún segir að Ingibjörg Sólrún
hafi lagt til að „Jóhanna yrði í forystu við
tilraun til myndunar nýrrar ríkisstjórnar“ .
Þrátt fyrir þetta tók Ingibjörg Sólrún við
umboði úr hendi forseta Íslands vegna
stjórnarmyndunar 27 . janúar 2009 og
skilaði því aftur 1 . febrúar 2009 . Hvers
vegna var Jó hönnu ekki veitt umboðið 27 .
janúar 2009? Af hverju var þessi leikara-
skapur talinn nauð synlegur?
Samkomulagið um Jóhönnu Sigurðar-
dótt ur sem forsætisráðherra snerist um
hana sem einstakling en ekki um að Sam-
fylk ingin „ætti stólinn“ . Var samið um að
Stein grímur J . yrði „staðgengill hennar og
vara forsætisráðherra en ekki einhver úr
hennar flokki“ eins og Steingrímur J . segir, í
„þröngu tali“ var einnig orðað að hann yrði
for sætis ráðherra ef Jóhanna hætti .
Óheilindi Samfylkingar
Líklegt er að haustið 2008 hafi Össur Skarp héðinsson og Ögmundur Jónas -
son sest á rökstóla um samstarf Samfylking ar,
VG og Framsóknarflokksins . Frá því að Sam -
fylk ingin ákvað haustið 2008 að setja ESB-að -
ild á oddinn skipti mestu að ryðja ESB-hindr-
un um úr vegi gagnvart VG og fram sókn .
Til að laða framsóknarmenn að borðinu
og hafa eitthvert óskamál Jóhönnu á dagskrá
ríkisstjórnar hennar var stjórnarskrármálið
síðar einnig gert að höfuðatriði . Tvö augljós
ágreiningsmál urðu helstu stefnumál ríkis-
stjórnar sem þóttist ætla að efla samstöðu
meðal þjóðarinnar!
J ónína er þeirrar skoðunar að einhver vafi hafi verið um að
Jóhanna yrði forsætisráðherra,
hún ætti eftir að mynda
stjórnina . Ef marka má fréttina
frá forsetaembættinu myndaði
Ingibjörg Sólrún ríkisstjórnina
án þess að hafa heilsu til
þess . Össur Skarphéðinsson
segist hafa lagt spilin í hendur
Ingibjörgu Sólrúnu . Steingrímur
J . Sigfússon lætur eins og hann
hafi ráðið miklu um myndun
stjórnarinnar . Össur segir hins
vegar að Steingrímur J . hafi ekki
komið að málinu fyrr en eftir
að lokahönd hafi verið lögð á
meistaraverkið .