Orð og tunga - 01.06.2015, Page 112

Orð og tunga - 01.06.2015, Page 112
100 Orð og tunga b. Talið er hugsanlegt að tíðkast hafi að brandar og hjölt væru ... (Kristín Huld Sigurðardóttir 2004:70-71) c. Tvö hjölt með engilsaxnesku skrauti benda til tengsla við England. (Kristín Huld Sigurðardóttir 2004:71) d. sverð og sverðshjölt, hringprjónar, bjöllur og kambar. (Kristín Huld Sigurðardóttir 2004:75) e. Rúmlega 90 sentimetra löng, hjöltin og knappurinn úr kopar ... (Lesbók Morgunblaðsins, 28. ágúst 2004) f. Hjöltin koma í veg fyrir að hönd þess sem heldur á sverðinu renni til. (Sigrún Ásta Jónsdóttir 2005:13) g. Blaðið er úr Valyríustáli og hjöltin úr drekabeini. (Martin 2012:147) h. klótið var eins og fálkahöfuð og gaddhjöltin voru í formi vængja. (Martin 2012:463) Síðustu tvö dæmin í (6) eru í þýðingu fyrsta bindis ævintýrareyfarans Game of Thrones (Martin 2012) en þar kemur orðið hjalt alloft fyrir. I nf./þf.ft. kemur orðið a.m.k. 16 sinnum fyrir og alltaf er höfð myndin hjölt(in). Hér hefur mátt sjá að sumir nota hjöltu(n), aðrir hjölt(in). En einnig hefur mátt sjá að sami maður getur notað báðar myndirnar. Höfundur textans í (5e) er einnig höfundur textans í (6a-d). Auðvitað getur verið að prófarkalesarar hafi breytt upphaflegri orðmynd og höfundinum sé í raun töm aðeins önnur myndin. En það er ekki víst. Ef höfundurinn notar í raun hjöltu(n) og hjölt(in) sitt á hvað er hann ekki einn um það, skv. vitnisburði nokkurra heimildarmanna sem spurðir voru um fleirtölu orðsins hjalt. Málfræðingur, fæddur 1944, segir að sér sé tamt að segja hjöltu en líka hjölt. Tveir aðrir málfræðingar, fæddir 1946 og 1980, telja báðar myndirnar góðar. Karl fæddur 1944 kveðst mundu segja hjöltu en þó þykir honum hjölt alls ekki óhugsandi eða fráleit mynd. Kona fædd 1947 er sömu skoðunar. Hér má minna á að í (3) komu hjöltun og hjöltin fyrir með örskömmu millibili í sama riti. En svo eru aðrir heimildarmenn sem dæma orðmyndirnar á eindregnari hátt. Þrír karlar, fæddir 1933,1953 og 1977, og kona fædd 1974 kveðast segja hjöltu, ekki hjölt; konur fæddar 1944 og 1975 og karl fæddur 1976 taka á hinn bóginn hjölt fram yfir hjöltu. I lítilli, óformlegri könnun, sem hópur nemenda við Háskóla Is- lands gerði haustið 2010, komu fram báðar fleirtölumyndirnar, hjölt- un og hjöltin. Hver nemandi bað tvo íslendinga að fylla í eyðuna í þessum texta:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Orð og tunga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.