Orð og tunga - 01.06.2015, Page 133
Jón Friðrik og Kristín: Kvistur: Vélræn stofnhlutagreining
121
fyrsti stofnhlutinn, anda, er annaðhvort eignarfall fleirtölu af önd
eða andi. Hinir liðirnir tveir í orðinu eru einræðir, a.m.k. í nefningu
(lemmun), þ.e. hyggja og maður. Meginskipting orðsins er anda-
hyggju+maður eins og sést af samanburði við önnur orð í gagnasöfn-
um. í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans eru t.d. 63 samsett orð með
hausinn maður þar sem ákvæðið er samsett orð með hausinn hyggja.7
í langflestum þessara orða er samsetta ákvæðið einnig til sem upp-
flettiorð í Ritmálssafni (efnishyggja, rökhyggja, andahyggja o.s.frv.) en
orðið hyggjwnaður er aðeins að finna í einu dæmi frá 16. öld: Hliodur
er hyggiu madr.
efnishyggjumaður 44 efnishyggja 68
einstaklingshyggjumaður 21 einstaklingshyggja 40
undirhyggjumaður 18 undirhyggja 15
hughyggjumaður 19 hughyggja 30
rökhyggjumaður 17 rökhyggja 7
djúphyggjumaður 18 djúphyggja 6
vélhyggjumaður 1 vélhyggja 10
andahyggj umaður 1 andahyggja 6
fortíðarhyggjumaður 1 fortíðarhyggja 0
þrönghyggjumaður 1 þrönghyggja 0
afstæðishyggjumaður 0 afstæðishyggja 8
Tafla 4. Fjöldi dæma um nokkur orðapör í Ritmálssafni með hyggja sem ákvæðishaus
og haus.
Það eru einmitt vensl af sama tagi og þau sem koma fram í Töflu 4 sem
Kvistur notar til þess að finna rétt orðhlutatré orða með óþekktum
orðhlutum, sjá kafla 4.2 hér á eftir. Tenging orðhlutanna við nefni-
myndir sínar er hins vegar verkefni sem bíður betri tíma en gagna-
safnið, sem nú er notað, ætti að duga til þeirrar vinnu líka.
3 Aðferðafræði við orðskiptingu
Kvistur er eina orðskiptingartólið sem höfundar vita um þar sem
stofnhlutagreining er nýtt til þess að finna líklegustu skiptingu orðs
7 í Töflu 4 eru 11 af 63 samsettum orðum sem enda á -hyggjumaöur í Ritmálssafni.
Leitað var bæði í uppflettiorðum og orðum í dæmum. Samsett nafnorð, sem enda
á hyggja, eru 229 í Ritmálssafni. Nokkur hending er hvort bæði orðin í hverju pari
skila sér í Ritmálssafni og stundum er auðvelt að finna dæmi á öðrum stöðum til
þess að fylla í götin. Orðið þrönghyggja finnst t.d. 24 sinnum á timarit.is en ekki í
Ritmálssafni.