Fréttablaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 12
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
atvinnuleikhópa
Umsóknarfrestur til 1. október
Styrkir til
Leiklistarráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til starfsemi
atvinnuleikhópa á árinu 2020. Veittir eru styrkir til einstakra
verkefna eða starfssamninga til tveggja ára.
Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2019.
Umsóknum skal skilað rafrænt á www.rannis.is.
Einungis er tekið við rafrænum fylgigögnum með umsókn.
Athugið að umsókn um styrki til starfsemi atvinnuleikhópa
getur einnig gilt sem umsókn til listamannalauna ef
umsækjandi merkir við þar til gerðan reit í umsóknarformi.
Samkvæmt leiklistarlögum nr. 138/1998 skilar leiklistarráð
tillögu til mennta- og menningarmálaráðuneytisins um
úthlutun fjár til stuðnings atvinnuleikhópum.
Nánari upplýsingar:
Guðmundur Ingi Markússon og
Ragnhildur Zoëga, sími: 515 5838.
atvinnuleikhopar@rannis.is,
www.rannís.is
NÝR OG GLÆSILEGUR
RANGE ROVER EVOQUE
VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
landrover.is
LAND ROVER
HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 525 6500
Range Rover Evoque. Verð frá: 7.890.000 kr.
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
5
1
3
9
R
a
n
g
e
R
o
v
e
r
E
v
o
q
u
e
5
x
2
0
a
g
g
u
́
Job.is
Þú finnur draumastarfið á
UTANRÍKISMÁL Íslendingar undir-
búa nú enn eina stórheimsókn
ársins. Eftir að hafa tekið á móti
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Jens Stoltenberg,
framkvæmdastjóra NATO, Frank-
Walter Steinmeier, forseta Þýska-
lands og sjálfum Ed Sheeran, sem
reyndar er tónlistarmaður, er
röðin nú komin að Angelu Merkel,
kanslara Þýskalands. Já og reyndar
leiðtogum hinna Norðurlandanna.
Merkel kemur hingað sem sér-
stakur heiðursgestur á sumarfundi
norrænu forsætisráðherranna og
mun að auki funda með Katrínu
Jakobsdóttur forsætisráðherra
einni. Fyrirséð er að hún virði fyrir
sér Þingvelli og Viðey.
Fáir núverandi þjóðarleiðtogar
hafa setið jafnlengi og Merkel.
Hvað þá á Vesturlöndum. Hún tók
við sem kanslari árið 2005 og mun,
að öllu óbreyttu, sitja til ársins 2021.
Þegar hún lætur af embætti eftir tvö
ár verður hún komin upp í annað
sæti á listanum yfir þaulsætnustu
kanslarana. Með sextán ár líkt og
Kohl og þannig einungis á eftir Otto
von Bismarck, sem sat í 23 ár mínus
einn dag.
Að því er kom fram í úttekt
Deutsche Welle á valdatíð kansl-
arans hefur Merkel-tíminn ein-
kennst af stækkandi þýsku hag-
kerfi og minnkandi atvinnuleysi.
Það sem hefur vakið mesta athygli
er þó hvernig Merkel hefur tekist
á við afar erfið pólitísk mál á borð
við grísku kreppuna, sem ógnaði
evrusvæðinu öllu, hina ólöglegu
innlimun Rússa á Krímskaga, mikið
flæði f lóttafólks til Evrópu og upp-
gang þjóðernisöfgamanna í Þýska-
landi.
Merkel hefur getið sér góðan
orðstír fyrir að koma á viðræðum
á milli karpandi fylkinga og lýsir
hinn fyrrnefndi þýski miðill henni
sem afar færri í krísustjórnun.
Hún hefur dregið Kristilega
demókrata, alla jafna stærsta hægri-
f lokk Þýskalands nútímans, inn á
miðjuna. Til að mynda með því að
opna dyrnar fyrir f lóttafólki. Það
bauð hins vegar upp á tækifæri
fyrir öfgaflokkinn AfD og þótt útlit
sé fyrir að Kristilegir demókratar
verði stærstir í næstu kosningum,
samkvæmt skoðanakönnunum, er
fylgið langt frá þeim hæðum sem
það náði þegar Merkel sótti 41,5
prósent atkvæða árið 2013. Áður
en flóttamannakrísan náði hæðum
sínum. thorgnyr@frettabladid.is
Þaulsætni kanslarinn
Angela Merkel sækir Ísland heim sem gestur fundar norrænna forsætisráð-
herra. Hefur setið lengur en nær allir Þýskalandskanslarar og getið sér gott orð.
Merkel, með hendurnar í sinni þekktu stellingu. NORDICPHOTOS/AFP
1 7 . Á G Ú S T 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
7
-0
8
-2
0
1
9
0
4
:4
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
9
-8
9
0
8
2
3
9
9
-8
7
C
C
2
3
9
9
-8
6
9
0
2
3
9
9
-8
5
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K