Fréttablaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 28
Hann var prófessor í klínískri húðsjúkdómafræði við háskólann í Suður-Kaliforníu og yfirlæknir í húðlækningum við USC Medical Center. Virkur Repúblikani Gunter hefur starfað fyrir Repúbl- ikanaf lokkinn í Bandaríkjunum og setið sem formaður bandalags gyðinga innan flokksins. „Ég er úr Demókratafjölskyldu. Það er hefð- bundið að innf lytjendur gyðinga styðji þá. Ég trúi á einstaklinginn og að einstaklingar sjálfir viti betur en stjórnvöld hvað sé þeim fyrir bestu og hverjar væntingar þeirra séu. Auðvitað þarf að samþykka leiðsögn og við höfum áhrif hvert á annað en einstaklingsfrelsi er mér mikilvægt.“ Þetta skilaði sér inn í starf innan Repúblikanaflokksins. „Mér fannst að þessi viðhorf hefðu sterkari rödd við borðið.“ „En ég er ekki hér sem fulltrúi Repúblikana eða Demókrata. Ég er hér sem fulltrúi allra Bandaríkja- manna. Sem sendiherra er ég hér að verja velmegun allra Bandaríkja- manna.“ Stuðningsmaður Trumps Hann segir að það sé eiginkonu hans að þakka að hann sé nú í þess- um sporum. Í júní 2015 hafði hún, þá mjög veik að berjast við krabba- mein, séð Trump tilkynna framboð sitt. „Konan mín var góð í að meta sannleiksgildi hlutanna. Hún sagði mér að það kynni að hljóma undar- lega en hún kynni vel við Donald Trump. Þegar ég spurði hana af hverju sagðist hún telja að hann segði satt. Þú kannt ef til vill ekki við stefnu hans, stíl eða annað, en að heyra þetta frá konu minni hafði mikil áhrif á mig.“ Gunter segist hafa heyrt efa- semdir í garð Trumps en hann vildi fylgja sannfæringu sinni og studdi því Trump í kosningabaráttunni 2016 og starfaði með undirbúnings- teymi Trumps eftir kosningarnar. „Ég var svo lánsamur að eftir mér hafði verið tekið í kosningabarátt- unni og að ég hefði verið farsæll í viðskiptum. Ég kann því vel hvernig stjórnvöld hvetja menn með far- sælan feril og ólíkan bakgrunn til þátttöku í utanríkisþjónustunni.“ Eftir að Trump náði kjöri hafði fólk innan Repúblikanaf lokksins samband við hann. Þau horfðu til forystuhæfileika hans og farsæls viðskiptaferils. Hann var því kall- aður í viðtal þar sem stungið var upp á því við hann að verða sendi- herra á Íslandi. Hann hafði aldrei komið til landsins en þekkti mörg Evrópuríki vel. „Ég var mjög stoltur af þessu boði. Ég hlustaði fyrst með athygli og þakkaði fyrir mig. En því meira sem ég hugsaði um Ísland, því lánsam- ari fannst mér ég vera. Þetta var mér mikill heiður. En í sannleika sagt er eitt að lesa um landið og ræða við fólk um landið og annað að búa á Íslandi og kynnast fólki hér.“ Móttökurnar góðar Hann segir að fyrstu kynni hafi verið góð. Hann hefur bæði fundað með utanríkisráðherra og fjölda fólks úr viðskiptalífinu og heil- brigðiskerfinu. „Að hugsa til þess að land ykkar með tæplega 350.000 íbúa skuli taka á móti 700.000 Ameríkönum sem heimsækja landið ár hvert með svo hýrlegum og auðmjúkum hætti segir mér margt um þjóðina.“ En hvað hefur hann séð til þessa af landinu? „Ég er búinn að sjá goshveri og fossa en á eftir að fara mun víðar.“ Hann segist heppinn að hafa með sér í sendiráðinu fólk sem þykir vænt um landið og elskar dvölina hér. Varnarsamstarfið mikilvægt Á fundum Mikes Pompeo utanríkis- ráðherra með ráðamönnum fyrr á árinu var rætt um að vinna að við- skiptasamráði ríkjanna. Gunter segir að tíminn verði að leiða í ljós með hvaða hætti þetta samráð verði þróað og á hvaða atvinnugreinar verði lagðar áherslur. Hann segir að samskiptin verði meiri vegna þessa og meira af mikilvægum heim- sóknum. Öryggis- og varnarsamstarf hefur verið fyrirferðarmikið í sam- skiptum þjóðanna í áratugi. Þetta samstarf hefur á undanförnum árum verið þróað og nær það til mun f leiri þátta en áður, allt frá málefnum norðurslóða til stríðsins gegn hryðjuverkum. Gunter leggur áherslu á að þrátt fyrir þessar breyttu aðstæður st and i var narsk u ldbind ingar Bandaríkjanna gagnvart Íslandi á grundvelli varnarsamningsins óhaggaðar. „Ég ætla að vitna til orða Bjarna Benediktssonar, utanríkis- ráðherra Íslands, sem hann lét falla í Washington 1949, við undirritun Atlantshafssáttmálans: „Þjóðir þær, sem nú eru að ganga í þetta nýja bræðralag, eru að mörgu leyti ólík- ar hver annarri. Sumar þeirra eru hinar mestu og voldugustu í heimi, aðrar eru smáar og lítils megandi. … Allir trúum við á vinsamlega sam- vinnu þjóða í milli – allir óskum við heiminum friðar og mannkyninu velferðar.“ Gunter segist vilja gera orð Bjarna að sínum. „Við deilum með Íslend- ingum gildum og heimssýn. Við höfum djúpa trú á lýðræði, frjálsu athafnalífi, mannréttindum og frelsi fjölmiðla. Saman geta þjóð- irnar klifið mörg fjöll tækifæranna.“ Jeffrey Ross Gunter, nýr sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, starfaði áður sem yfirlæknir í húðlækningum og rak einnig farsælt fyrirtæki á því sviði. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Það skiptir máli þegar valinn er nýr sendi-herra þeirrar þjóðar sem við Íslendingar eigum hvað mest sam-skipti við. Jeffrey Ross Gunter tók nýlega við sem sendi- herra Bandaríkjanna á Íslandi. Hann virkar ákveðinn í fasi, sjálfsöruggur en einlægur. Það liggur vel á honum þegar hann sýnir glæsilegt húsnæði sendiráðsins við Engjateig. „Þetta er fyrsti fundurinn sem haldinn er hér,“ segir hann. Síðustu misseri hafa verið stór- framkvæmdir við Engjateig þar sem nú rís nýtt sendiráð. Hnausþykkir öryggisveggir umlykja bygginguna og skothelt gler er í öllum gluggum. Sófasettin eru enn í plasti. Enn hefur formleg opnun ekki verið til- kynnt. Ræturnar mikilvægar Gunter er alinn upp á vesturströnd Bandaríkjanna. Eftir nám í Berke- ley-háskóla útskrifaðist hann frá læknadeild háskólans í Suður-Kali- forníu með húðlækningar sem sér- grein. Rætur hans má rekja til hafnar- borgarinnar Ódessu í Úkraínu og til borgarinnar Minsk í Hvíta-Rúss- landi. „Margir forfeður mínir fórust í helförinni.“ Hann segist hafa hitt eiginkonu sína, sem nú er látin, í Ísrael. „Ég var í læknanámi þar. Hún flutti til Ísrael sem hjúkrunar- kona og hitti þar læknastúdentinn. Hann bjó á annarri hæðinni en hún á þeirri þriðju.“ Þau eignuðust tvö börn sem eru nú um tvítugt og í námi í Bandaríkjunum. Jeffrey Ross Gunter er nýr sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Hann þakkar eiginkonu sinni það að vera nú í sporum sendi- herra. Hann ítrekar að varnarskuldbind- ingar Bandaríkjanna gagnvart Íslandi á grundvelli varnar- samningsins standi óhaggaðar. Vill styrkja vinaböndin VIÐ DEILUM MEÐ ÍSLEND- INGUM GILDUM OG HEIMS- SÝN. VIÐ HÖFUM DJÚPA TRÚ Á LÝÐRÆÐI, FRJÁLSU ATHAFNALÍFI, MANN- RÉTTINDUM OG FRELSI FJÖLMIÐLA. Davíð Stefánsson david@frettabladid.is 1 7 . Á G Ú S T 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 7 -0 8 -2 0 1 9 0 4 :4 7 F B 0 9 6 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 9 9 -D C F 8 2 3 9 9 -D B B C 2 3 9 9 -D A 8 0 2 3 9 9 -D 9 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 9 6 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.