Fréttablaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 76
My nd l i s t a r m að u r -inn Hjalti Parelius Finnsson er fæddur 1979 í Reykjavík. Hann stundaði nám á listnámsbraut við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og lauk síðan BA-prófi frá Danmarks Design- skole árið 2003. Hjalti segir að listin hafi alltaf togað í hann enda alinn upp á listríku heimili. „Ég var að vinna við grafíska hönnun þegar kreppan skall á fyrir áratug. Konan mín, Bergný Theodóra Bald- ursdóttir sem vissi af þessum áhuga mínum, hafði verið að hvetja mig áfram í listum. Ég var að vinna sem grafískur hönnuður þegar hún gaf mér trönur í þrítugsafmælisgjöf og sagði mér að þá hefði ég enga afsökun. Það varð úr að ég setti síðan saman fyrstu sýninguna á Ljósanótt í Reykjanesbæ árið 2009.“ Það kom Hjalta á óvart hvað mynd- irnar á fyrstu sýningunni hafi selst vel. „Í dag er ég henni afar þakklátur fyrir að hafa ýtt mér út í þetta. Án hennar hefði þetta ekki orðið,“ segir hann sem hefur haft málaralistina að fullu starfi síðan. Að sögn Hjalta er þetta fyrsta einka- sýning hans í þrjú ár hér heima, en vegna anna hefur listamaðurinn ekki haft nóg af verkum til þess að halda sýningu þar sem þau hafa selst jafn óðum. „Ég get ekki verið annað en þakklátur fyrir mót- tökurnar sem hafa verið vonum framar.“ Fyrirmyndir Um verk sín segir Hjalti að hann líti á sig sem pistlahöfund sem málar. „Verkin hafa þróast frá því að vera eins konar yfirlýsing yfir í að vera sögur líðandi stundar,“ segir hann og bætir við að hann sæki efnivið oft í fréttir líðandi stundar og önnur mál sem hann hefur skoðanir á. „Ef ég ætti að nefna ein- hverjar fyrirmyndir þá væri það Erró ásamt Roy Lichtenstein, Andy Warhol, Öyvind Fahlström, Mel Ramos og aðrir popplistamenn ásamt gömlum meist- urum eins og Picasso. Þetta eru þær kanónur sem heilla mig mest nú. Mörg verka þeirra falla vel að minni hugsun. Ég er hrifinn af myndmálinu og klippi- myndaforminu. Þegar ég var yngri var maður að dufla við danstónlist og not- aði lagabúta héðan og þaðan og takta og vann svokölluð remix, svo að þetta er nokkurs konar sjálfstætt framhald af því,“ segir Hjalti. Myndefnið byssubardagi „Ég leita að innblæstri í mínu eigin sam- félagi og út í heim. Þema þessarar sýn- ingar í Grásteini er kannski frábrugðið fyrri sýningum því myndirnar eru á vissan hátt meira agressífar. Myndefnið nú er sótt í byssubardaga. Þetta er ádeila á almenna vopnaeign, nokkuð sem er til umræðu alþjóðlega. Þetta var samt sem áður ekki viljandi gert, þetta einfaldlega kom til mín. Ég ákveð sjaldan slíkt fyrir fram. Ég stilli upp ákveðnu leiksviði þar sem áhorfandi getur túlkað á sinn hátt.“ Blaðamaður forvitnaðist um nafnið Parelius. „Þetta er danskt ættarnafn mitt sem ég fékk frá föður mínum, Finni P. Fróðasyni, en hann flutti til Íslands fyrir um 50 árum og hefur kunnað vel við sig hér síðan þá. Móðir mín, Ragnhildur Ásmundsdóttir, er íslensk, svo ég er hálfur bauni. Börnin mín hafa stundum spurt af hverju þau fengu ekki Parelius- nafnið og ég hef svarað því að þeim sé velkomið að taka það upp ef þau vilja. Ég á þrjú börn, Eyþór Atla sem er 18 ára, Benedikt Eystein, 16 ára, og Hörpu Kristínu sem er 8 ára. Svo það er nóg að gera í fjölskyldulífinu. Ég er svolítið eins og húsfreyja á sjötta áratugnum sem vinnur heima og eldar,“ segir lista- maðurinn og hlær. Nýtt gallerí á Skólavörðustíg Gallery Grásteinn er nýtt gallerí við Skólavörðustíg sem var opnað nýverið af tíu list- og handverksmönnum. Þar eru til sölu og sýnis keramik, skartgripir, trévörur, ljósmyndir, grafík, ullarverk og myndlist, allt eftir meðlimi gallerísins. Á efri hæð hússins er síðan fallegur og bjartur sýningarsalur sem leigður er út til ýmissa sýninga og er sýning Hjalta Parelius opnunarsýning salarins. Sýningin verður opnuð í dag, laugar- dag, kl. 16.00 og er opin til kl. 20.00. „Á Menningarnótt 24. ágúst verður síðan seinni opnun þar sem ég bæti nokkrum verkum við sem ég náði ekki að klára fyrir opnun í dag. Seinni opnunin á Menningarnótt verður frá kl. 16-20,“ segir hann. Sýningin stendur til 30. ágúst en þá verður hún færð til Berlínar þar sem Hjalti opnar sýna fyrstu einkasýningu í Berlín í Seven Stars galleríinu í Mitte. david@frettabladid.is Ég er hrifinn af myndmálinu og klippimyndaforminu. Þegar ég var yngri var maður að dufla við danstónlist og notaði laga- búta héðan og þaðan og takta og vann svokölluð remix, svo að þetta er nokkurs konar sjálf- stætt framhald af því. Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is. Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi Elsku mamma okkar, systir, dóttir, tengdamóðir og frænka, Margrét Þórðardóttir lést fimmtudaginn 8. ágúst. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 22. ágúst klukkan 13.00. Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar 12-E á LSP við Hringbraut og A-4 á LSP í Fossvogi fyrir elsku þeirra við umönnun hennar. Eva Hrönn Rúnarsdóttir Emil Hrafn Hildarsson Atli Freyr Pálsson Hrönn Baldursdóttir Vigfús Jónsson Baldur Guðjón Þórðarson Aðalheiður Þórðardóttir og aðrir ástvinir. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Jóna Kristjana Möller Björnsdóttir lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 14. ágúst. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Baldur Árni Beck Friðleifsson Friðbjörn Möller Baldursson Aðalheiður Guðmundsdóttir Steinar Rafn Beck Baldursson Auður Sigurbjörnsdóttir Telma Lind Baldursdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Pistlahöfundur penslar Hjalti Parelius heldur upp á 10 ára starfsafmæli sem myndlistarmaður með opnun sýningar í Gallery Grásteini á Skólavörðustíg 4 í Reykjavík í dag, laugardag. Það eru miklar annir á 10 ára starfsafmæli Hjalta Parelius enda hafa verk hans selst jafn óðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 1 7 . Á G Ú S T 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 1 7 -0 8 -2 0 1 9 0 4 :4 7 F B 0 9 6 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 9 9 -A B 9 8 2 3 9 9 -A A 5 C 2 3 9 9 -A 9 2 0 2 3 9 9 -A 7 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 9 6 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.