Fréttablaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 77
Ámorgun, sunnudaginn 18. ágúst, verður opnuð einkasýning myndlistar-konu nnar Marg rét ar Loftsdóttur í Stokk Art Gallery á Stokkseyri.
Margrét Loftsdóttir er fædd 1992.
Hún lauk diplómagráðu frá Málaradeild
Myndlistaskólanum í Reykjavík árið
2018, síðan bætti hún við sig BA-gráðu í
listum frá Háskólanum í Cumbria og er
því nýkomin heim úr námi frá Bretlandi.
Hún tók þátt í samsýningu í „Listamenn
Gallerí“ í Reykjavík vorið 2018.
Á sýningunni sem ber yfirskriftina
„Framtíðin“ eru sýnd útskriftarverk
Margrétar úr Háskólanum í Cumbria
ásamt nýjum viðbótum.
Stefán Hermannsson, sem ásamt
Arnfríði Einarsdóttur veitir Stokk
Art Gallery forstöðu, segir listakon-
una sprengja út málverkið þannig að
rammarnir hverfa út á haf. „Með því
að blanda saman sakleysi barnsins og
grófum málarastíl er leitast við að ná
fram ákveðinni þversögn í málverkinu.
Notast er við gróf efni og skítuga liti
ásamt expressjónískum aðferðum sem
mynda spennu innan málverksins. Hold
barnsins er einstakt og viðkvæmt. Það er
margslungið en samt svo náttúrulegt,“
segir Stefán.
Að sögn Stefáns eru þetta stór verk
sem ögra formi málverksins. „Þau geta
verið í senn fráhrindandi og aðlaðandi.
Lögun þeirra er óregluleg, ýmist úfin og
tætt eða slétt og fellt.“
Stefán segir listakonuna leggja upp
með eftirfarandi orð til að lýsa inntaki
sýningarinnar:
Hversu einstök þessi nýja mannvera.
Lítil viðkvæm sál, andar, nærist, sefur
enga vitneskju hefur um hvað veröldin
tekur og gefur.
Stokkur Art Gallery er rekið af hjón-
unum Stefáni Hermannssyni og Arn-
fríði Einarsdóttur listamönnum sem
hafa verið búsett á Eyrarbakka um
skeið. Þau segja galleríið á Stokkseyri
vera fyrir nútímalist og aðra þjóðmenn-
ingu. Bæði eru þau mikið áhugafólk
um menningu, listir, fólk og samfélag.
Fyrirhugað er að standa einnig fyrir við-
burðum eins og tónleikum, upplestrum
úr bókum, myndlistarnámskeiðum og
öðru sem upp kemur.
Sýning Margrétar í Stokk Art Gallery
verður opnuð á morgun 18. ágúst kl. 15
og er opin til 18. Sýningin mun standa til
18. september. – ds
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is?
Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is.
Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot
Með því að blanda saman
sakleysi barnsins og grófum
málarastíl er leitast við að ná
fram ákveðinni þversögn í mál-
verkinu.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Jóna Jóhannesdóttir
Wedholm
Tjarnarbóli 6,
lést á Hrafnistu, Laugarási, að morgni
15. ágúst. Útförin verður auglýst síðar.
Regína Wedholm Gunnarsdóttir
Bjarney Wedholm Gunnarsdóttir
Helgi Björnsson
og fjölskyldur.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
okkar heittelskuðu dóttur, systur,
mágkonu og frænku,
Örnu Sveinsdóttur
Hátúni 4 og Flókagötu 67, Reykjavík,
sem lést þann 15. júní sl. Sérstakar
þakkir fá þeir sem komu að hjúkrun hennar og umönnun.
Erna Valsdóttir Sveinn Skúlason
Skúli Sveinsson Sigríður Hrund Guðmundsdóttir
Brynjar Sveinsson
og bróðurbörn.
Ástkær vinur okkar, bróðir og frændi,
Sigurjón Símonarson
fv. skipstjóri og öryggisvörður,
lést á Landspítala Háskólasjúkrahús
í Fossvogi þ. 12. ágúst sl. Hann verður
jarðsunginn frá Garðakirkju á Álftanesi
þriðjudaginn 20. ágúst kl. 13.00.
Halla Björk, Guðjón og fjölskyldur
Guðmundur Símonarson
Ester Ágústa, Símon og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Ragnar S. Halldórsson
verkfræðingur
og fyrrverandi forstjóri,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 7. ágúst.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn
2. september kl. 13.
Margrét K. Sigurðardóttir
Kristín Vala Ragnarsdóttir
Halldór Páll Ragnarsson Jóhanna H. Jónsdóttir
Sigurður R. Ragnarsson Þórdís Kjartansdóttir
Margrét Dóra Ragnarsdóttir Hjálmar Gíslason
og barnabörn.
Móðir okkar,
Þorgerður Guðrún
Sigurðardóttir
Grensásvegi 58,
lést fimmtudaginn 15. ágúst.
Útför verður auglýst síðar.
Garðar Sverrisson og Ásdís Sverrisdóttir
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Snorri
Ingimarsson
læknir,
Laugarnesvegi 89,
lést í Landspítalanum við Hringbraut
14. ágúst.
Kolbrún Finnsdóttir
Áslaug Snorradóttir
Ingimar Guðmundsson, Arna Björk Kristinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
afi og langafi,
Sigurður Ólafs Jónsson
verkmenntaskólakennari,
Suðurbyggð 17, Akureyri,
lést 1. ágúst sl.
Útförin hefur farið fram.
Við þökkum hjartanlega frábæra umönnun hans hjá
Heimahlynningu og starfsfólki Sjúkrahússins á Akureyri.
Sigurveig Sigurðardóttir
Kristján Þorgils Sigurðsson
Jón Sigurðsson
Anna María Sigurðardóttir
og fjölskyldur.
Okkar ástkæra móðir, dóttir, systir,
tengdamóðir, mágkona og amma,
Karítas Jóhannsdóttir
lést á heimili sínu í Þorlákshöfn þann
9. ágúst sl. Jarðarförin fer fram frá
Grafarvogskirkju 23. ágúst kl. 13.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, þeim sem
vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Thelma Eyfjörð Jónsdóttir Þór Rúnar Þórisson
Jóhanna Helga Gunnlaugsdóttir Örvar Elíasson
Jóhann Helgason Helga Þórey Jónsdóttir
Jónas Jóhannsson
Helgi Jóhannsson Selma Dröfn Birgisdóttir
Kristjana Laufey Jóhannsdóttir Pétur Ólafur Pétursson
Jóhann Jóhannsson Katrín Ósk Björnsdóttir
Tinna Jóhannsdóttir
Alexandra Guðný og Thelma Björk
Okkar ástkæri eiginmaður og faðir,
Sverrir Hjaltason
lést í Austin í Texas 10. ágúst.
Útförin fer fram í Austin mánudaginn
19. ágúst. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á Krabbameinsfélagið.
Varuni Hjaltason
Kristjana Charmaine Sverrisdóttir
Konráð Víkingur Sverrisson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
vinur, afi og langafi,
Sigurður Vilhjálmsson,
kafari og bílstjóri,
Holtsgötu 42, Reykjanesbæ,
lést á Hrafnistu Hlévangi, mánudaginn
12. ágúst. Útförin fer fram frá Útskálakirkju,
miðvikudaginn 21. ágúst kl. 13.
Steinunn Una Sigurðardóttir Sigurður Haraldsson
Erla Svava Sigurðardóttir
Svala Svavarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, afi og langafi,
Sigurður Jóhann
Kristjánsson
pípulagningameistari,
Skólabraut 3, Seltjarnarnesi, lést á
Landspítalanum 31. júlí sl.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hjördís Ólafsdóttir
Þuríður Sigurðardóttir
Kristján Ívar Sigurðsson
Ásthildur Sigurðardóttir
Ólafur Jens Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ögrar formi málverksins
Margrét Loftsdóttir opnar á sunnudag myndlistarsýningu í Stokk Art Gallery á
Stokkseyri. Þykir sprengja út málverkið svo rammarnir hverfa út á haf.
Myndlistarkonan Margrét Loftsdóttir.
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 37L A U G A R D A G U R 1 7 . Á G Ú S T 2 0 1 9
1
7
-0
8
-2
0
1
9
0
4
:4
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
9
-B
A
6
8
2
3
9
9
-B
9
2
C
2
3
9
9
-B
7
F
0
2
3
9
9
-B
6
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K