Fréttablaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 26
að móðir og faðir séu til staðar. Þær vita að f leiri veggir munu koma síðar. Svo sem vandkvæði með skráningu hjá Íslendingabók og að í mörgum leikskólum er aðeins hægt að skrá móður og föður. Í sumum leikskólum eru einnig svokallaðir pabbamorgnar haldnir á hverju ári í kringum feðradaginn. Það sé úti­ lokandi fyrir fjölskyldur þar sem enginn faðir er til staðar. „Það angrar okkur að þurfa allt­ af að vera að leiðrétta þetta og oft nennum við ekki að standa í því,“ segir Ingileif. „Þetta er öráreiti sem safnast upp og verður á endanum óþolandi,“ segir María. „Við erum stanslaust minntar á að ég eigi ekki heima í þessu skipulagi. Ég veit að þetta er ekki gert viljandi en þetta er útilokandi. Fjölskyldur eru alls konar og öllum á að líða eins og þeir séu hluti af samfélaginu. Það þarf ekki mikið til að breyta þessu.“ Viðburðaríkt ár Síðastliðið ár eða svo hefur verið ákaflega viðburðaríkt í lífi Maríu og Ingileifar. Auk fjölgunarinnar í fjöl­ skyldunni og greiningar Ingileifar hafa þær gift sig, f lutt búferlum, keypt skutbíl og fengið sér hvolp. Ætla mætti að þær væru úrvinda á þessum tímapunkti en svo er alls ekki. „Eftir að ég greindist skiptum við um gír og lærðum að slaka á,“ segir Ingileif. „Ef við værum á sömu keyrslu og við vorum, í vinnu, námi, stjórnmálum og félagslífi, þá værum við búnar á því. Mikilvægasti lær­ dómurinn var að geta sagt nei. Við erum líka búnar að taka aðra hluti í gegn hjá okkur, eins og að sofa, borða og hreyfa okkur reglulega. Við hættum líka báðar að drekka.“ Þær segja að þrátt fyrir að birting­ armyndir flogaveikinnar hafi verið hræðilegar og María hafi óttast um líf Ingileifar, þá hafi sjúkdómurinn haft jákvæð áhrif að þessu leyti. „Við erum frekar úthvíldar en úrvinda,“ segir María. „Við erum orðnar auðmjúkar gagnvart lífinu og tæklum verkefnin þegar þau koma.“ Engar frægar lesbíur María og Ingileif voru með háleitar hugmyndir um að Hinseginleikinn, fræðsluvettvangur þeirra, myndi vera með eigin pall í gleðigöngunni. En óvissan um komudag erfingjans setti strik í reikninginn og það gæti farið svo að þær verði á fæðingar­ deildinni á meðan gangan fer fram. „Ef við verðum ekki búnar að eiga þá mætum við að sjálfsögðu,“ segir María. María og Ingileif eru ungar og komu út úr skápnum eftir að til dæmis hjúskapur samkynhneigðra var leyfður. „Stærstu breytingarnar sem við höfum séð eru viðhorf yngri kynslóðarinnar,“ segir Ingi­ leif. „Þau eru ljósárum á undan okkar kynslóð þegar við vorum á þessum aldri. Þau eru opin og með allar skilgreiningarnar á hreinu.“ Ingileif er ekki nema 26 ára gömul en þegar hún var unglingur ríktu allt önnur viðhorf. „Mér fannst þetta svo mikil skömm, fannst ég ekki hafa neitt pláss og ekki mega hugsa á þennan hátt.“ „Krakkar eru að leita að sjálfum sér til tví­ tugs og þurfa að hafa svigrúm til þess án kvíða, sjálfsefa og haturs,“ segir María sem er þrítug. „Ég faldi mig og fór alla leið inn í gagnkyn­ hneigðina, átti kærasta og afneitaði öllum mínum tilfinningum. Ég var orðin 21 árs þegar ég þurfti að horf­ ast í augu við sjálfa mig. Ég komst ekki lengur upp með feluleikinn því að það var allt að sjóða upp úr.“ Ástæðuna fyrir þessu breytta við­ horfi segja þær vera fyrirmyndirnar og að staðalmyndir um hinsegin fólk séu að falla. Sýnileikinn skipti þar sköpum og einn helsti hvatinn til að þær fóru af stað með Hins­ eginleikann. Sérstaklega hafi þær fundið á eigin skinni að þetta eigi við um lesbíur. „Það voru til frægir hommar þegar við vorum að alast upp og þeir eiga skilið mikið lof fyrir það,“ segir María. „Ég vissi ekki af neinni lesbíu þegar ég var yngri,“ segir Ingileif. „Það eina sem ég sá var þessi fjölda­ framleidda staðalmynd, trukka­ lessan í bíómyndinni. Ég var alveg föst í boxinu og meira að segja eftir að ég kom út úr skápnum fannst mér erfitt að segja að ég væri lesbía, mér fannst orðið mengað.“ Engin handbók um að koma úr skápnum Að koma út úr skápnum er stór stund í lífi hinsegin fólks. María segir að líf hennar hafi í raun byrjað þá. Það er aftur á móti ekki til nein handbók um hvernig skuli fara að því. Bæði María og Ingileif sögðu mæðrum sínum frá því og báðu þær um að koma skilaboðunum áfram til stórfjölskyldunnar. „Ég var svolítið smeyk og ég nennti ekki að kalla saman ein­ hvern fjölskyldufund til þess að tilkynna þetta,“ segir María. „Sem betur fer á ég fjölskyldu sem sam­ þykkti þetta. Það var stærri stund þegar ég fór í fyrsta skipti vestur á Flateyri með Ingileif.“ Ingileif kom út úr skápnum eftir að hafa kynnst Maríu árið 2013 en móður hennar var farið að gruna ýmislegt. „Eftir að ég ræddi þetta við hana var þetta útrætt, svo hringdi pabbi og sagði að það væri gott að þurfa ekki að fást við einhverja leiðinlega tengda­ syni,“ segir hún og hlær. Ekki eru allir svo heppnir að eiga skilningsríkar f jölskyldur og en þeim hefur f jölgað með árunum og almennt er auðveldara að koma út úr skápnum í dag en áður. Sem ungar samkynhneigðar konur segjast María og Ingileif líta til þeirra sem upplifðu útskúfun, of beldi, eyðnifaraldurinn og fleira með mikilli auðmýkt og þakklæti. „Því miður held ég að sorglega stór hópur ungs hinsegin fólks þekki ekki þessa sögu,“ segir Ingileif. „Það er mikilvægt að halda henni á lofti því við værum ekki á þessum stað í dag ef þetta fólk hefði ekki rutt brautina.“ „Þetta er ekki langt síðan,“ bætir María við. „Aðeins nokkrir áratugir. Við sáum í vetur heimildarmyndina Svona fólk eftir Hrafnhildi Gunnarsdóttur þar sem þessi saga er rakin. Við töldum okkur vita margt en þessi mynd var eins og blaut tuska í andlitið. Við hágrétum þegar við heyrðum sögurnar af öllum þjáningunum sem þau upplifðu.“ Láta reiðina ekki ráða för Talið berst nú að þeim sem streitast á móti og viðurkenna ekki rétt hins­ egin fólks. María og Ingileif telja að það verði alltaf ákveðin prósenta af samfélaginu en takmarkið sé að hafa hana sem lægsta. Ingileif segir þetta mest vera fólk af eldri kynslóð sem trúi í blindni á staðalmyndir og bábiljur um hinsegin fólk frá fyrri tíð. Eitthvað sé um þetta hjá yngri kynslóðum líka. „Almennt séð særa ummæli í athugasemdakerfum okkur ekki. En svo lásum við athugasemdir sem snerust um hæfni okkar sem foreldra og það snerti viðkvæmar taugar,“ segir hún. „Það risti djúpt.“ María segir að athugasemdir af þessu tagi dragi síður en svo úr þeim heldur efli. „Fordómar eru afkvæmi vanþekkingar og hræðslu. Í stað þess að fordæma fólk reynum við að skilja hvaðan þessi ótti kemur og uppfræða fólk. Á Hinseginleikanum svörum við öllum spurningum, sama hversu fordómafullar þær eru. Við látum reiðina ekki ráða för.“ Hættu við Rússlandsferð Þegar litið er yfir jarðkringluna er Ísland meðal þeirra ríkja þar sem réttindi og viðhorf til hinsegin fólks eru sem best. Víða er samkyn­ hneigð bönnuð með lögum, jafnvel með dauðarefsingu. Þó að ástandið sé betra en fyrir hálfri öld, þá hefur sums staðar orðið bakslag, til dæmis í Austur­Evrópu. Þetta skiptir líka máli fyrir Íslendinga, sérstaklega þegar þeir huga að ferðalögum. „Þegar við hugum að ferðalögum skoðum við alltaf hvernig það er að vera opinberlega samkynhneigður í viðkomandi landi,“ segir María. „Við höfum hætt við ferðalög út af þessu. Ég er algjör fótboltabulla og missi ekki af leik. Við hættum við að fylgja landsliðinu á heimsmeistara­ mótið af því að það var í Rússlandi. Við vildum ekki þurfa að vera óör­ uggar eða í felum.“ Ingileif segir að þegar þær skipu­ lögðu brúðkaupsferðina hafi þær leitað til ferðaþjónustufyrirtækis til að finna hinseginvæna ferð. „Við vorum búnar að skoða alls konar staði sem okkur fannst spennandi, til dæmis Maldíveyjar.“ Á Maldív­ eyjum er samkynhneigð bönnuð að viðlagðri átta ára fangelsisvist og dráp á samkynhneigðum látin óátalin af lögreglu. „Við elskum að ferðast en þetta er mjög hamlandi. Í brúðkaupsferðinni, okkar ástar­ fögnuði, vildum við ekki þurfa að þykjast vera systur eða eitthvað annað en við erum.“ Nýlega fóru María og Ingileif til Ungverjalands. Eftir að f lokkur Viktors Orban komst til valda hefur réttindum og viðhorfum til hins­ egin fólks hrakað þar í landi. „Við fundum glöggt fyrir þessu og vorum varar um okkur,“ segir María. „Þegar við lendum í spjalli við fólk erlendis þreifum við aðeins fyrir okkur og sýnum ekki spilin alveg strax, til þess að finna hvar hugarfar viðkomandi er,“ segir Ingileif. „Það er auðvitað leiðinlegt að þurfa að standa í svona leikjum.“ „Við sjáum afturför víða í Austur­Evrópu og í Bandaríkjunum að einhverju leyti líka. Það þarf aðeins einn brjálæð­ ing til að snúa við þeim góða árangri sem hefur náðst,“ segir María. „Ég veit ekki hvort þetta gæti gerst á Íslandi, en þetta kennir okkur að við megum ekki sofna á verðinum.“ Klukkan 02.42 aðfaranótt 15. ágúst eignuðust María og Ingileif stálhraustan son. ÞEGAR VIÐ HUGUM AÐ FERÐALÖGUM SKOÐUM VIÐ ALLTAF HVERNIG ÞAÐ ER AÐ VERA OPINBERLEGA SAMKYNHNEIGÐUR Í VIÐKOMANDI LANDI. María 1 7 . Á G Ú S T 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 7 -0 8 -2 0 1 9 0 4 :4 7 F B 0 9 6 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 9 9 -C 9 3 8 2 3 9 9 -C 7 F C 2 3 9 9 -C 6 C 0 2 3 9 9 -C 5 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 9 6 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.