Fréttablaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 92
Lífið í
vikunni
11.08.19-
17.08.19
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Aðeins 11.900 kr.
6 laga heilsukoddi frá Simba.
Stærð: 50 x 70 cm.
SIMBA HYBRID®
heilsukoddi
Aðeins 15.900 kr.
6 laga heilsukoddi frá Simba.
Stærð: 50 x 70 cm.
SIMBA HYBRID®
heilsukoddi
með Outlast®
OUTLAST
Háþróað efni sem heldur jöfnum
hita. Jacquard bómull
í Hybrid koddanum.
FÍNN DÚNN
Lag af sérstaklega fín gerðum
og mjúkum anda dúni
sem gefur koddanum
náttúrulega öndun.
HITASTÝRING
3D hitastýringarefni sem tryggir
hámarks öndun og loftflæði
gegnum koddann.
NANOTUBE TÆKNI
Í miðjum koddanum er lag af
smágerðum svamprörum .
Þú getur stillt hæð og stífleika
koddans með því að bæta í eða
taka úr þessu lagi.
MICROFIBRE
Næst er lag af Microtrefjum sem gera þessa
hlið koddans bæði mjúka, endingargóða og
hentuga fyrir þá sem eiga við ofnæmi að stíða.
JACQUARD BÓMULL
Silkimjúk hágæða bómull með frábærri öndun 300 gsm.
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
OUTLAST
KOMINN
AFTUR!
ED SHEERAN Í SKÝJUNUM
MEÐ ÍSLANDSDVÖL
Ísleifur Þórhallsson
segir að Ed Sheeran
hafi verið ánægður
með dvölina. Hann
segir tónleikana hafa
heppnast gífurlega vel
þrátt fyrir vesen með
raðir á laugardeginum.
Það vandamál hafi þó
náð að leysast áður en Ed
sjálfur steig á sviðið. Hann segir að
nú opnist sá möguleiki að fá fleiri
listamenn af svipaðri stærðargráðu
til landsins, fyrst þessir tónleikar
heppnuðust eins vel og þeir gerðu.
MAGNAÐ AÐ FÁ AÐ
VERA PARTUR
AF ÞESSU
Einn vinsælasti
brúðkaups-
plötusnúður
landsins, Atli
Viðar Þorsteins-
son, er þakklátur
fyrir að fá tækifæri til
að deila þessum mikilvæga degi
með brúðhjónum. Hann spilaði í
sínu fyrsta brúðkaupi fyrir tæpum
fimmtán árum. Hann er vanalega
bókaður með árs fyrirvara og er nú
þegar byrjaður að fá bókanir fyrir
næsta sumar.
ALVÖRU SVEITABALL Í
LAUGARDALNUM
Í kvöld fer fram sveitaball í fé-
lagsheimili Þróttar í Laugar-
dalnum. Fram koma kempur
á borð við Helga Björns-
son, Hildi Völu, Bödda
í Dalton og Halldór
Gylfason. Jón Ólafsson,
tónlistar- og sjónvarps-
maður, er einn af þeim
sem standa að við-
burðinum. Hann segir
miðasöluna hafa farið
vel á stað en einnig
verður hægt að borga
sig inn á staðnum.
FLOGIÐ ÚT FYRIR
NOKKRAR SEKÚNDUR
Leikaranum Arnmundi Ernst Back-
man var flogið út til London til að
leika í örsenu í Eurovisi-
on-mynd Wills Ferrell.
Hann fer með hlutverk
sviðsstjóra og segist
vera einungis örfáar
sekúndur á skjánum.
Hann segir Will
Ferrell einkar
mikið ljúfmenni,
sem sé gleðilegt,
enda hafi hann
lengi haft mætur á
leikaranum.
Sara Oddsdóttir er mennt-uð sem lög fræðingur, en býður nú upp á and-lega leiðsögn í Sólum jóga stúdíói. Sara hefur alltaf haft mikinn áhuga
á mannlegri breytni og af hverju
við tökum þær ákvarðanir sem við
tökum. Hún ætlar að leggja stund á
markþjálfun í HR í haust.
„Fólk pantar sem sagt einkatíma
hjá mér og þetta er í raun samtals-
meðferð. Fólk sem kemur til mín er
f lest búið að vera í einhverri sjálfs-
vinnu, en finnst eitthvað vanta.
Mitt hlutverk er að aðstoða það í
að finna hvað það er, þá oft með
því að skoða fortíð þess. Oft á fólk
erfitt með að átta sig á því hvað er
nákvæmlega að orsaka vanlíðan-
ina,“ segir Sara.
Hún segir oft vera um að ræða
einstaklinga sem eru búnir að leita
einhverra ráða en eru samt sem
áður á einhvern hátt fastir í því að
líða ekki nógu vel.
„Vandinn getur verið alls konar
og ólíkir hlutir að plaga fólk. Það
getur til dæmis verið eitthvað úr
æsku sem fólk hreinlega áttar sig
ekki á að sé að hafa þessi áhrif. Mér
finnst það oftar en ekki vera eitt-
hvað gamalt óuppgert úr æsku en
einstaklingarnir átta sig einfaldlega
ekki á því að það sé rót vandans.“
Sara segir fólk oft ekki tengja við
eða átta sig á áhrifunum.
„Áföll eru líka ekki alltaf skyndi-
legir atburðir, heldur einnig endur-
teknir atburðir sem við myndum
ekki f lokka sem áfall því ef þeir
kæmu fyrir einu sinni, jafnvel
nokkrum sinnum, í æsku myndu
þeir ekki hafa áhrif á okkur.“
Að sögn Söru hafa ótti og skömm
mikil áhrif á það hvernig fólk tekur
á málunum.
„Ótti og skömm verða stundum
ráðandi einkenni við ákvarðana-
töku. Við þróum með okkur nei-
kvætt hegðunarmunstur, sem við
erum hugsanlega meðvituð um, en
kunnum ekki segja skilið við,“ segir
Sara.
Hún segist reyna að aðstoða fólk
við að finna af hverju þetta stafar,
og margt fólk upplifi þessa tóm-
leikatilfinningu þrátt fyrir vel-
gengni á ýmsum sviðum.
„Þess vegna er mikilvægt að líta í
baksýnisspegilinn og sjá hvort þessi
vanlíðan okkar stafi hugsanlega af
einhverjum slíkum endurteknum
atvikum. Atvikum sem hafa verið
að móta okkur í langan tíma og
koma í veg fyrir að við getum stigið
að fullu inn í verðleika okkar.“
Sara segir skort á kærleika, nánd
og umhyggju í æsku geta orðið til
þess að fólk telji sig ekki eiga betra
skilið.
„Þá er ég ekki endilega að tala um
heimili þar sem ríkir stríðsástand
eða mikil óregla, heldur eins og
sumir myndu segja: bara dæmigert
heimili, mamma og pabbi voru að
vinna allan daginn og við systkinin
þurftum bara að sjá um okkur sjálf.
Allir hafa þörf fyrir að aðrir sjái þá.“
steingerdur@frettabladid.is
Áföll eru ekki alltaf
skyndilegir atburðir
Sara Oddsdóttir býður upp á andlega leiðsögn þar sem hún hjálpar
fólki að komast að rót vandans í tengslum við tómleikatilfinningu
sem þjaki marga. Að því er Sara segir áttar fólk sig ekki á því hvaða
atvik eða upplifun orsakar þessa vanlíðan. Ólíkir hlutir plagi fólk.
Sara segir fólk oft ekki átta sig á því hvaða atvik eða reynsla valdi því að fólk upplifi vanlíðan. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VIÐ ÞRÓUM MEÐ
OKKUR NEIKVÆTT
HEGÐUNARMUNSTUR, SEM VIÐ
ERUM HUGSANLEGA MEÐVITUÐ
UM, EN KUNNUM EKKI SEGJA
SKILIÐ VIÐ.
1 7 . Á G Ú S T 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
7
-0
8
-2
0
1
9
0
4
:4
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
9
-B
0
8
8
2
3
9
9
-A
F
4
C
2
3
9
9
-A
E
1
0
2
3
9
9
-A
C
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
9
6
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K