Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 1
112 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 39. TBL. 86. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Sá ekki flugbrautina Talið er að dimm þoka hafl orðið til þess að lending þotunnai- mis- heppnaðist. „Fyrst heyrði ég mikla sprengingu og himinninn lýstist síð- an skyndilega upp,“ sagði sextug kona sem varð vitni að slysinu. „Flugvélin sundraðist," sagði ljós- myndari Reuters á staðnum. „Brak- ið dreifðist yfir stórt svæði og líkin eru úti um allt. Mörg líkanna eru án útlima og illa brunnin. Það sjást engin merki um líf.“ Björgunarsveit fann ungbarn í Reuters BJÖRGUNARSVEIT að störfum við hús sem urðu fyrir logandi braki úr tævanskri farþegaþotu sem sprakk í loft upp í lendingu á alþjóðaflugvellin- um í Taipei f gær. Allir um borð í þotunni, 197 manns, biðu bana í slysinu auk að minnsta kosti tveggja íbúa í húsunum. Taoyuan. Reuters. TÆVÖNSK farþegaþota sprakk í loft upp í lendingu á alþjóðaflugvell- inum í Taipei í gær. Allir um borð í þotunni, 197 manns, létu lífið. Eldar kviknuðu einnig í nokkrum húsum, sem urðu fyrir logandi braki úr þot- unni, og að minnsta kosti tveir íbúar þeirra biðu bana. Ungbam fannst á lífi í húsarústunum. Talið er að dimm þoka hafi stuðlað að slysinu. Þotan var af gerðinni Airbus 300 og í eigu tævanska flugfélagsins China Airlines. Flestir farþeganna voi-u á heimleið úr orlofi á eyjunni Balí í Indónesíu en á meðal þeirra sem týndu lífi voru einnig seðla- bankastjóri Tævans, Sheu Yuan- dong, eiginkona hans og þrír starfs- menn bankans, sem höfðu fylgt hon- um á fund seðlabankastjóra í-íkja Suðaustur-Asíu á Balí. Nokkrir er- lendir farþegar vora í vélinni en ekki var vitað um fjölda þeirra og þjóðerni. 182 farþegai- voru í vélinni auk fimmtán manna áhafnar og embætt- ismenn á Tævan sögðu að litlar líkur væru á því að einhver þehra hefði komist lífs af. Þetta er mannskæð- asta flugslys sem orðið hefur á Tæv- an og hið annað mesta í sögu China Airlines, stærsta flugfélags lands- ins. 264 manns fórast árið 1994 þeg- ar Airbus 300-þota flugfélagsins flaug á fjall í Japan. rústunum um tveimur klukkustund- um eftir slysið. Talið er að barnið hafi ekki verið í þotunni, heldur í einu húsanna sem urðu fyrir braki hennar. Nokkrir íbúa húsanna slös- uðust alvarlega, þeirra á meðal tíu ára drengur sem lést á sjúkrahúsi. Óstaðfestar fregnir hermdu að allt að fimm menn hefðu beðið bana í bílum sem urðu fyrir braki úr þot- unni. „Svarti kassinn", sem gæti veitt upplýsingar um orsök slyssins, fannst í gærkvöldi. Talsmaður China Airlines sagði að svo virtist sem flug- mennirnir hefðu lent í vandræðum í aðfluginu. „Skyggnið var mjög slæmt,“ sagði hann. „Flugmaðurinn sagðist ekki geta séð flugbrautina í aðfluginu og óskaði eftir heimild tO að reyna aftur að lenda þotunni. Þegar hann hafði óskað eftir annarri lendingartilraun rofnaði samband hans við flugumferðarstjóra." 100 km •^vvv’’ KINA ^ vW <§> Talið er að þoka hafí stuðlað að mannskæðasta flugsiysinu í sögu Tævans 199 manns biðu bana er þota fórst í lendinfm Líkur á að, Annan reyni að leysa Iraksdeiluna Loiulon, París. Reuters. LIKLEGT er að Kofi Annan, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, ræði við Saeed al-Sahaf, utanríkis- ráðherra Iraks, í París á morgun til að freista þess að leysa deiluna um vopnaeftirlitið í írak. Talsmaður Jacques Chiracs, forseta Frakk- lands, sagði að hann teldi að frið- samleg lausn deilunnar væri í sjón- máli og því væri mikilvægt að Kofi Annan ræddi við íraska ráðamenn í Bagdad. „Annan hyggst ræða við Sahaf í París svo framarlega sem hann verður fullvissaður um að Irakar fallist á drög að lausn deilunnar og heimili ótakmarkaða leit á stöðum sem tilheyra íraska forsetaembætt- inu,“ sagði heimildarmaður sem hefur tekið þátt í samningaviðræð- um um hugsanlega ferð Annans til Parísar og síðan til Bagdad. „Ef hann fer til Parísar er það 99% ör- uggt að hann fer til Bagdad," sagði hann. Talsmaður Chiracs sagði að for- setinn teldi að hægt yrði að knýja á íraka um að standa við ályktanir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna án þess að beita hervaldi. Chirac hyggst ræða við íraska utanríkis- ráðherrann í París í dag. Sahaf kvaðst ætla að færa forsetanum skilaboð frá Saddam Hussein Iraks- forseta. Vilja ströng skilyrði Annan ræddi í gærkvöldi við sendiherra ríkjanna fimm, sem eiga fasta aðild að öiyggisráðinu, og sagði fyrir fundinn að líkurnar á því að hann færi til Bagdad hefðu aukist. Stjórnarerindrekai- sögðu að Bandaríkjamenn og Bretar gætu fallist á að Annan færi til Bagdad að því tilskildu að öryggisráðið næði samkomulagi um hvaða skilyrði hann ætti að setja írökum. Breskur embættismaður sagði að á meðal þeirra skilyrða, sem Bandaríkja- menn og Bretar beittu sér fyiár, væri að írakar féllust á að heimila leit að gereyðingarvopnum á öllum þeim stöðum sem deilt hefur verið um, að eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna fengi að ákveða hvar og hvenær leitað yrði og að fulltrúar hennar sæju um leitina. ■ 1.500 frakar gætu fallið/26 Viðræðurnar um frið á N-írlandi Bretar vilja ut- hýsa Sinn Fein Dublin. Reuters. BRESKA stjómin lagði til í gær að Sinn Fein, stjórnmálaflokki Irska lýðveldishersins (IRA), yrði meinað að taka þátt í viðræðum um frið á Norður-írlandi vegna tveggja morða, sem lögreglan tel- ur að IRA hafi staðið fyi-ir. Tímabundin brottvísun? Mo Mowlam, N-írlandsmála- ráðherra Bretlands, lagði fram formlega beiðni um brottvísunina þegar þriggja daga samningavið- ræður hófust í Dublin í gær. For- ystumenn Sinn Fein bragðust ókvæða við beiðninni og sögðu að ekki yrði hægt að semja um var- anlegan frið á Norður-írlandi nema Sinn Fein tæki þátt í við- ræðunum. Mitchel McLaughlin, formaður Sinn Fein, sagði að flokkurinn myndi reyna til þrautar að koma í veg fyrir brottvísunina. Sinn Fein væri meðal annars að íhuga að leita til dómstóla á Norður-írlandi og Irlandi. Stærsti flokkur mótmælenda hefur hótað að sniðganga viðræð- urnar ef Sinn Fein fær að taka þátt í þeim. Hugsanlegt er talið að Sinn Fein verði vísað úr viðræð- unumum sinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.