Tíminn - 04.06.1987, Blaðsíða 3

Tíminn - 04.06.1987, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 4. júní 1987 Tíminn 3 lilllllilllllllllllllllll SPEGILL llllllllllillillllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllilillllllllllllillllllllillllllllllllllllllllllllll Formaður Alþýðuflokks hefur formlegar viðræður: Jón Baldvin reynir við Steingrím og Þorstein „Ekki sjálfgefið að ég verði í forsæti,“ segir Jón Baldvin Jón Baldvin Hannibalsson for- maður Alþýðuflokksins, sem nú hefur umboð forseta til sjórnar- myndunar, tilkynnti á blaða- mannafundi í gær að ákveðið hafi verið að hefja formlegar viðræður við forystumenn Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks um ntyndun ríkisstjórnar. Fyrsti fund- urinn í þessum viðræðum verður í dag í fundarsal Verkamannafélags- ins Dagsbrúnar. Að sögn Jóns Baldvins hefur hann Iagt til, í samráði við forystumenn hinna flokkanna að meginefni viðræðn- anna verði fjórskipt: „I fyrsta lagi, meginmarkmið fyrirhugaðs stjórn- arsamstarfs. t öðru lagi, fyrstu aðgerðir nýrrar ríkisstjórnar. í þriðja lagi verkefnaskrá fyrir kjör- tímabilið. I fjórða lagi verkaskipt- ing milli ráðuneyta og skipting starfa milli ráðherra." Formaður Alþýðuflokksins sagði að nánari útfærsla á því hvernig viðræðum verði háttað yrði ákveðin á fundin- um í dag, en á þann fund mæta formennirnir einir. Hins vegar munu þrír frá hverjum flokki taka þátt í viðræðunum en það eru þessir: Frá Alþýðuflokki Jón Baldvin, Jón Sigurðsson og Jó- hanna Sigurðardóttir. Frá Sjálf- stæðisflokki, Þorsteinn Pálsson, Friðrik Sophusson og Ólafur G. Einarsson. Frá Framsóknarflokki Steingrímur Hermannson, Halldór Ásgrímsson og Guðmundur Bjarnason. Á blaðamannafundinum í gær sagðist Jón, aðspurður um þá af- stöðu Steingríms Hermannssonar að framsóknarmenn vildu ekki taka þátt í stjórn undir hans for- sæti, hafa skilið afstöðu hinna formannanna þannig að allir þessir flokkar gengju til þessara viðræðna án skilyrða. Hann sagði jafnframt að jafnaðarmenn vildu í þessum viðræðum ræða um málefni, verka- Á fundi þingflokks Framsóknar-. flokksins í gær var samþykkt með semingi að ganga til viðræðna við Alþýðuflokk og Sjálfstæðisflokk um möguleika á ríkisstjórn. Það var hins vegar alger einhugur innan þingflokksins að Framsóknar- flokkurinn settist alls ekki í ríkis- stjórn undir forystu Alþýðuflokks- ins og þá sérstaklega Jóns Baldvins Hannibalssonar. J>ó töldu þing- menn ekki réttlætanlegt að hafna skiptingu og forystu á þeim grund- velli að semja mætti um öll þessi atriði. Jón Baldvin sagði það ekki sjálfgefið að hann yrði forsætisráð- herra þó hann hefði umboðið í höndunum. Aðspurður um landbúnaðarmál og stjórnun fiskveiða og hvort hann byggist við að sameiginlegur flötur fyndist á þessum málunt hjá Alþýðuflokki og Framsóknar- flokki sagði Jón það Ijóst að ekki væri þingmeirihluti til að breyta samningi ríkisvaldsins við bændur. Hins vegar sagði hann að unnt væri að hafa áhrif á framkvæmd búvöru- verðs samningsins. Hann kvað kvótakerfið í sjávarútvegi ekki þurfa að vera Þránd í Götu, og minnti á að þeir vestfjarðaþing- menn Alþýðuflokks hefðu einungis sagt að þeir styddu ekki ríkisstjórn sem héldi kvótakerfinu „óbrcyttu". Af orðum alþýðu- flokksformannsins mátti skilja að mikilla breytinga væri ekki þörf til að fá stuðning þeirra Karvels Pálmasonar og Sighvats Björgvins- sonar. -BG þó sá áhugi virðist fara minnkandi. Ennfremur virðist áhugi á fjög- urra flokka stjórn vera þverrandi, en sá möguleiki hefur reyndar aldrei verið talinn vænlegur kostur innan Framsóknarflokksins. Það kom einnig fram hjá Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra að hann telur myndun stjórnar fara verða aðkallandi, þó svo að allt aðrar aðstæður og betri væru nú í þjóðfélaginu en 1983. ÞÆÓ Þingflokkur Framsóknar: Stjórnarforysta krata kemur ekki til greina - en lýsir sig reiöubúinn til viðræöna viðræðum við Alþýðuflokk án þess að kanna betur málefnalegar for- sendur. Treysta þingmenn Framsóknar- flokksins sér ekki til að styðja stjórn með Jón Baldvin sem for- sætisráðherra eftir að hafa þurft að sitja undir stanslausum árásum hans á Framsóknarflokkinn allt síðasta kjörtímabil og fram á síð- ustu daga. Þá er nokkur vilji í þingflokkn- um til að mynda minni hluta stjórn með Sjálfstæðisflokki og þá jafnvel með stuðningi Stefáns Valgeirsson- ar. Hins vegar var það afdráttar- laust viðhorf að Stefán Valgeirsson yrði aldrei keyptur til að ljá stuðn- ing sinn, og það allra síst með ráðherraembætti. Nokkur vilji er einnig til að fhuga þann möguleika að fá Borg- araflokkinn inn í þriggja flokka stjórn með Sjálfstæðisflokknum, I kartöflugarðinum Flestir þeir sem eiga kartöflugarða eru nú farnir að huga að görðum sínum. Fjölmenni hefur verið í görðum Reykvíkinga á Korpúifsstöðum síðustu daga. Eru margir þegar búnir að setja niður. Víðast drífa heilu fjölskyldurnar sig og setja kartöflur niður á einni heigi. Viðbúið er margir muni nýta sér hvítasunnuheigina til þessara hiuta. Timamynd pjctur Aö tveimur umferðum tefldum: Enn ómögulegt að spá um sigurvegara Áfram er teflt á Egilsstaðamótinu og eftir tvær umferðir var talsverður fjöldi skákmanna með tvo vinninga. Litlu er því hægt að spá um hver taki forystuna á þessu móti enn þá. Hannes Hlífar Stefánsson, heims- meistari unglinga, hefur enn ekki sýnt tennurnar, en hann tapaði í annarri umferð fyrir Elvari Guð- mundssyni og hefur engan vinning fengið. Teflt er í tveimur riðlum, A og B riðli. Með fullt hús vinninga í A riðli eru Finninn Antti Pyhálá, sem vann Ólaf Kristjánsson nú síðast, Anna Gulko, sem bar sigurorð af Gerhard Wunde frá Þýskalandi. Tveir íslend- ingar eru í þessum hópi sigurvegara, þeir Róbert Harðarson og Pálmi Pétursson eru einnig með tvo vinn- inga í þessum riðli eftir tvær umferð- ir. f B riðli eru Þráinn Vigfússon, Haraldur Baldursson, Páll Á. Jónsson, Sigurður Ægisson, Friðgeir Hólm, Brade Lovric og Dragojnovic með tvo vinninga. Tveir síðast- nefndu eru Júgóslavar. Fastlega er búist við, að þessi röð riðlist verulega í þriðju umferð. Einn umsjónarmanna mótsins, Ottó Jónsson, sagði að allt gengi ágæt- lega. Hinsvegar þætti honum sem fjölmiðlar skeyttu þessu skákmóti minna en það ætti skilið. Á Egils- stöðum væri stórmerkur viðburður að eiga sér stað. þj Jónsmessan í Reykjavík: Synt fram á miðnættið? Jónsmessan hefur um langan aldur skipað veglegan sess í lífi íslendinga enda sólargangur þá hvað lengstur. Á Jónsmessunótt hefur verið til siðs að velta sér upp úr morgundögginni og fá þannig bót allra meina sinna. En munu Reykvíkingar verða stórtækari í þessum málum um næstu Jónsmessu og svamla um í sundlaugum borgarinnar í stað þess að velta sér upp úr dögginni? Svo gæti vel orðið því Katrín Fjeldsted hefur lagt til í borgar- ráði að helgina 19.-21. júní verði sundstaðir borgarinnar opnir fram til miðnættis í tilefni af Jónsmessu og lengstum sólar- gangi. íþrótta- og tómstundaráð hefur nú hugmyndina til um- fjöllunar og ef að líkum lætur mun fólk þar leggja blessun sína yfir þetta sérstaka og skemmti- lega tillegg í Jónsmessustemm- ninguna. -HM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.