Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982 3 Búvöruverð frá 1. mars: Nautasteikin í 124,95 kr. kílóið HINN 1. MARS tekur gildi nýtt verð á landbúnaðarvörum eins og Mbl. hefur greint frá, en síðast breyttist verð þeirra hinn 1. febr. sl. er niður greiðslur voru auknar á nokkrum vörutegundum. Hér á eftir verður greint frá smásöluverði nokkurra vara og í sviga er fyrra verð: Mjólk í 1 lítra fernum kr. 6,40 (5,75), í 2 lítra fernum kr. 12,65 (11.40) , í 10 lítra kössum kr. 63,70 (57.40) , rjómi, fjórðungur lítra í fernu, kr. 12,60 (11,25) og lítri af rjóma í fernum kostar kr. 49,50 (44,30), 1. flokks smjör kostar kr. 64,90 kg (56,50) og ostur 45%, kostar nú kr. 79,00 (71,30). Smásöluverð á 5 kg poka af kartöflum er nú kr. 21,55 (20,55) og hálfu minni skammtur kostar kr. 11,10 (10,60). Kindakjöt, heilir skrokkar, skiptir að ósk kaupanda, kostar í úrvalsflokki kr. 47,15 kg (42,80), súpukjöt kostar í 1. flokki kr. 47,25 (42,90), lærissneiðar úr miðlæri kr. 67,64 (61,70) og fram- hryggir kr. 66,05 (60,25). Nautakjöt: hryggstykki úr aft- urhluta kostar í 1. verðflokki kr. 124,95 (112,65), miðlæri kr. 100,10 (90,30) bógstykki, frampartar kr. 76,25 (67,90), en heilir og hálfir skrokkar kosta kr. 59,25 (53,40). Samningurinn hefur ekki öðlast gildi og Færeying- ar eru því ekki brotlegir - segir Guðmundur Eiríksson, þjóðréttar- fræðingur, um laxveiðar austur af landinu SAMKVÆMT samningsdrögum um laxveiðar í sjó, sem samstaða varð um á fundi í Reykjavík síðari hluta janúarmánaðar, verða veiðar bannaðar utan 12 mílna að tveimur svæðum undanskildum. l»að er 40 mílur út frá vesturströnd Grænlands og í færeyskri fiskveiðilögsögu. Sjö þjóðir stóðu að samkomulag- inu, sem gert var á fundinum í Reykjavík og er það nú til umfjöllunar hjá stjórnvöldum og liggur m.a. fyrir Alþingi íslendinga. Samningurinn verður til undirskriftar frá 2. marz til 31. ágúst í sumar, en þá er eftir að fullgilda hann. Vart er við því að búast, að hann öðlist gildi fyrr en eftir eitt ár í fyrsta lagi. Síðustu daga hefur Morgunblað- ið greint frá laxveiðum Færeyinga austur af landinu og var Guð- mundur Eiríksson, þjóðréttar- fræðingur, spurður hvort Færey- ingar og Danir hefðu með þessu gerzt sekir um lögbrot eins og haldið hefur verið fram. „Alls ekki. í fyrsta lagi er það samkomulag, sem gert var í Reykjavík ekki orðið að fullgildum samningi og hefur ekki öðlast gildi gagnvart nokkru ríki. Það er ekki Sérkjarasamningur: Samningum lokið við átta félög Fjármálaráðuneytið hefur nú gengið frá sérkjarasamningum við átta félög rfkisstarfsmanna og hafa aðildarfélagar viðkomandi félaga fengið að meðaltali um \% kjarabót í þcssum samningum. Þorsteinn Geirsson, skrifstofu- stjóri fjármálaráðuneytisins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að samningarnir hefðu geng- ið nokkuð vel, enn væri eftir að ganga frá samningum við fimm félög. „Eg er bjartsýnn á að ekki muni líða langur tími, þar til tek- ist hefur að semja við öll félögin," sagði Þorsteinn. Þorsteinn sagði að nú væri búið að semja við Tollvarðafélag ís- lands, Félag sjúkrasamlags- starfsmanna, Starfsmannafélag sjónvarps, Félag flugmálastarfs- manna, Landssamband lögreglu- manna, Félag stjórnarráðs- starfsmanna, Póstmannafélag ís- lands og Starfsmannafélag ríkis- útvarps. Þá sagði Þorsteinn, að samn- ingar ættu eftir að takast við Fé- lag ísl. símamanna, Hjúkrunar- féiag íslands, Ljósmæðrafélag ís- lands, Kennarasamband íslands og Starfsmannafélag ríkisstofn- ana, en samningaviðræður við þessi félög standa nú yfir. hægt að brjóta eitthvað, sem ekki er til. Þessir bátar hafa verið að veiðum utan 200 mílna frá íslandi, Færeyjum, Jan Mayen og megin- landi Noregs þannig að um út- hafssvæði í ströngustu merkingu er að ræða. Það er reiknað með, að þessi samningur taki gildi eftir eitt ár í fyrsta lagi og þá verða engar laxveiðar utan 200 mílna. Það segir ekkert um stöðuna í dag. Varðandi danska bátinn, sem sást fyrir innan íslenzku 200 mílna mörkin, þá var hann ekki staðinn að veiðum. Munurinn frá því í fyrravetur er hins vegar sá, að þá var afli, sem fékkst utan við færeysku 200 mílna lögsöguna ekki tekinn með í kvóta einstakra skipa. Því fyrir- komulagi hefur nú verið breytt og ekki er lengur hægt að auka kvót- ann með veiðum utan 200 mílna," sagði Guðmundur Eiríksson. Fundur í norsk- íslenzku fisk- veiðinefndinni A MIÐVIKIJDAG og fimmtudag í næstu viku, 3. og 4. marz, verður haldinn í Keykjavík fundur í norsk- íslenzku fiskveiðinefndinni. Rætt verður um veiðar úr íslenzka loðnu- stofninum og einnig þau viðhorf, sem skapast ef Grænlendingar segja sig úr Kfnahagsbandalagi Evrópu. Þá hafa Norðmenn óskað eftir þrí- hliða viðræðum íslendinga, Norð- manna og annað hvort EBE eða Grænlendinga um fiskveiðar á haf- svæði þessara aðila og sameiginlega fiskstofna. Þar er fyrst og fremst um loðnuna að ræða, en í hafinu milli íslands og Grænlands einnig karfa og rækju. Eskifjörður: 3 skip á trolli 5 stórar bátar á netum í vetur HskiHröi, 25. febrúar. ALLS verða gerð út héðan þrjú togskip í vetur, auk togaranna Hólmaness og Hólmatinds verður loðnuskipið Jón Kjartansson á tog- veiðum. Um þessar mundir er verið að breyta skipinu í Færeyjum, en að því loknu fer það á troll og verður aflinn saltaður um borð. Fimm stórir bátar róa héðan með net, Vöttur, Votaberg, Sæljón, Sæberg og Guð- rún Þorkelsdóttir. Auk þess verða nokkrir minni bátar á netum og hefja þeir róðra fljótlega. Ævar 1NNLENT Félög í ASV hafa samþykkt kjarasamninga Verkalýðsfélög á Vestfjörðum hafa samþykkt samninga þá, sem ASV og Vinnuveitendafélag Vest- fjarða undirrituðu fyrir nokkru með venjulegum fyrirvara. Svo dæmi séu tekin, þá voru samningarnir sam- þykktir samhljóða á Bolungarvík og Súðavík. Á ísafirði samþykktu félag- ar í Baldri samningana með 101 at- kvæði gegn 11 á fjölmennum fundi, en fulltrúar Baldurs í samninga- nefnd ASV skrifuðu ekki undir samningana. í Verkalýðsfélaginu Súganda á Suðureyri voru þrír fundarmenn á móti samningunum, en mikill meirihluti fylgjandi þeim. Eitt er þó það félag innan ASV, sem er með lausa samninga vegna félagsmanna sinna, það er Verka- lýðsfélagið Brandur á Reykhólum. Þar hefur verið boðað til verkfalls 4. marz næstkomandi takist samningar ekki áður. Ólíku er saman að jafna á Reykhólum og í kauptúnum og kaupstöðum á Vestfjörðum, annars vegar er Þör- ungavinnslan helzti vinnuveitand- inn á Reykhólum, en hins vegar fiskvinnslufyrirtæki. Heizta krafa starfsmanna í Þörungavinnslunni er að fá sambærileg laun og starfsfóik í ríkisverksmiðjunum. Ljósm: KOK. Einar Hákonarson er hér við verk sem hann nefnir Á Valhúsahæð. Einar Hákonarson sýn- ir að Kjarvalsstöðum Einar Hákonarson myndlistarmaður opnar í dag sýningu í vestursal Kjarvalsstaða, en síðast sýndi hann fyrir þremur árum og þá á sama stað. Einar sýnir nú 56 myndir, allt olíumálverk, sem hann hefur málað undanfarin ár. — Auðvitað er minni tími til að mála, en hins vegar var aldrei ætlunin að hætta því þótt ég gerðist skólastjóri Myndlista- og handíðaskólans, sagði Einar Há- konarson er Mbl. ræddi stuttlega við hann. Hann sagði verk sín nú vera mannlífsmyndir, það væri reyndar jafnan höfuðviðfangs- efni sitt, maðurinn í umhverfi sínu. Sagði hann nokkra breyt- ingu á verkum sínum nú með þessari sýningu, en þróunin væri samt hin sama og áður. Sem fyrr segir eru þetta 56 olíumálverk og eru nöfn þeirra t.d. „Dr. Stefán yfirgefur sam- kvæmið" og „Umræður utan dagskrár" og má á þeirri mynd þekkja umhverfi Alþingis og ber þar margt fyrir augu. Nokkrar myndanna eru í einkaeign, en flestar eru til sölu. Sýning Ein- ars Hákonarsonar er opin dag- lega kl. 14 til 22 og lýkur henni 13. mars. Páskaferð til Mexicó Brottför 3. apríl — 17. dagar. Örugg sólskinsparadís. fagurt landslag og framandi þjóðlíf. Aðrir brottfarardagar meö íslenskum fararstjóra: 20. marz, 1. maí og 15. maí. Athugið — hagstæð greiðslukjör. MALLORKA: Glæsileg gistiaöstaöa í ibúöum og smahýsum (bungalows). Viku- legar brottfarir. KORSÍKA: Undurfögur sumarleyfisparadís. Góð gisting í smáhýsum alveg við strönd. Vikulegar brottfarir. RHODOS: Þessi gríska ævintýraeyja er rómuð fyrir náttúrufegurð. Góð gisting í íbúðum og hótelum. PARÍS: Vikulegar Brottfarir frá 12. júni. AMSTERDAM: Vikurlegar brottfarir frá 28.maí. Miklir ferðamöguleikar. ALMENN FERÐAÞJÓNUSTA: Við veitum alla almenna þjónustu við ferðamenn — útgáfa flugfarseðla um allan heim — útvegum gistingu og aöra þjón- ustu, sem óskað er eftir. VERÐLISTAR FYRIRLIGGJANDI. Feröaskrifstofan Laugavegi 66 101 Reykjavik, Simi 28635

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.