Morgunblaðið - 11.07.1985, Blaðsíða 20
Fjölþætt átak til alþjóðlegr-
ar kynningar á gróandanum
í nútímalistum Islendinga
Hilda hf. og Bókaútgáfan Vaka
hafa tekið höndum saman um
viðamikla kynningu á gróandan-
um í nútímalistum íslendinga.
Kynningin er samsett úr þremur
meginþáttum, þ.e. stórri
Ijósmyndasýningu, kvikmynd og
bók. Hér er um sérstæðan viðburð
að ræða í menningarlífi íslend-
inga.
Ráðgert er að fara með kynn-
ingu þessa víða um lönd á næstu
árum, en forsýning hennar verður
opnuð á Kjarvalsstöðum laugar-
daginn 13. júlí og mun standa þar
fram til 28. júlí, frá klukkan 14 til
22 daglega. Kynningin hefur hlot-
ið yfirskriftina Iceland Crucible.
Ljósmyndirnar
Á kynningunni er sýning á 330
ljósmyndum af um 170 íslenskum
listamönnum úr öllum greinum,
eftir heimskunnan ljósmyndara,
Vladimir Sichov. Hann starfar að
staðaldri fyrir ýmis helstu
myndskreytt viku- og mánaðarrit
vestan hafs og austan og hefur
fengið fleiri myndir birtar en
nokkur annar ljósmyndari í heim-
inum á síðustu sex árum.
Ljósmyndasýningin á Kjarvals-
stöðum er stærsta og fjölbreyti-
legasta mannamyndasýning sem
nokkru sinni hefur verið efnt til
hérlendis.
Kvikmyndin
Annar hluti kynningarinnar er
hálftíma kvikmynd um grósku ís-
lenskra lista í nútímanum. Mynd-
in nefnist Iceland Crucible og er
gerð af tveimur kunnum banda-
rískum kvikmyndagerðar-
mönnum, Hal Calbom og Phil
Davies, sem átta sinnum hafa ver-
ið sæmdir hinum eftirsóttu Em-
my-verðlaunum fyrir sjónvarps-
þætti sína. Til skamms tíma unnu
þeir fyrir bandarísku sjónvarps-
stöðina NBC, en starfa nú sjálf-
stætt.
Kvikmyndin er í litum og koma
þar við sögu ýmsir kunnir lista-
menn á mörgum sviðum. Myndin
verður sýnd a.m.k. tvisvar daglega
meðan á kynningunni á Kjar-
valsstöðum stendur.
Bæði kvikmyndin og ljósmyndir
Vladimirs Sichov voru gerðar að
frumkvæði og á kostnað Hildu hf.
Bókin
í tengslum við sýningarnar á
Kjarvalsstöðum kemur út á veg-
um Bókaútgáfunnar Vöku stór bók
á ensku með úrvalsmyndum Si-
chovs af um 170 íslenskum lista-
mönnum úr hinum ýmsu greinum
og á öllum aldursskeiðum.
Bókin ber heitið Iceland Cruci-
ble, A Modern Artistic Renaiss-
ance. Texta hennar samdi Sigurð-
ur A. Magnússon, rithöfundur, og
rekur hann þróun og helstu afrek
hverrar listgreinar frá öndverðu
fram á þennan dag.
Heimskynning
Á næsta ári er ráðgert að fara
með ljósmyndasýninguna og
kvikmyndina um Bandaríkin og
Kanada og koma bókinni á fram-
færi við lesendur sem allra víðast
vestan hafs. Bókaútgefendur og
forstjórar sýningarsala og sjón-
varpsstöðva hafa sýnt þessu fram-
taki verulegan áhuga. Síðan er
ætlunin að snúa sér að Evrópu og
Asíu og þá fyrst og fremst Japan.
Með því að hefja kynninguna
hérlendis vakir fyrst og fremst
fyrir aðstandendum bókar og sýn-
inga að vekja athygli heimamanna
á þeirri ótrúlegu blómgun, sem átt
hefur sér stað í öllum listgreinum
á undanförnum áratugum. Þar
koma bæði við sögu listamenn sem
unnið hafa afrek á heimavelli og
fjölmargir listamenn sem gert
hafa garðinn frægan með öðrum
þjóðum.
Hvers vegna?
Eðlilegt er að fólk spyrji: Hvers
vegna eru einkaaðilar að ráðast í
slíkt kynningarátak á íslenskri
menningu og listum í útlöndum?
Helsta ástæðan er samt sú, að
sögn útgefenda, að þeir er að út-
flutningi standa og aðrir, sem
tengjast íslandskynningu í út-
löndum telja sig hafa séð að þörf
sé orðin á viðameiri menningar-
kynningu íslendinga erlendis en
verið hefur. Kynning á náttúru,
landslagi, sem tengist menningu
og lífi fólksins í landinu verði yfir-
leitt áhrifameiri fyrir land og þjóð
og um leið fyrir þá sem selja út-
lendingum vöru og þjónustu.
Forráðamenn Hildu hf. sem
hafa stundað viðamikinn ullar-
vöruútflutning um árabil höfðu
frumkvæði að þessari kynningu
sem hlotið hefur yfirskriftina Ice-
land Crucible, sem þýða mætti ís-
lensk deigla. Með henni er ætlunin
að sýna hvernig alþjóðlegir
straumar í listum blandast ís-
lenskum áhrifum og verða til þess
að hér er nú meiri gróandi í listum
en víðast hvar annars staðar.
Bókaútgáfan Vaka annast einn
þátt málsins, sem er gerð og út-
gáfa bókar um þetta efni, en
ljósmyndasýningin og gerð kvik-
myndarinnar er á vegum Hildu hf.
Líklegt er að fleiri fyrirtæki
tengist þessu kynningarátaki á
síðari stigum, jafnframt því sem
það gæti orðið allmiklu víðtækara.
Höfundarnir
Sichov er heimskunnur ljós-
myndari af rússnesku bergi brot-
inn. Hann hefur búið í París síðan
1979 og starfar fyrir ýmis helstu
viku- og mánaðarrit austan hafs
og vestan, svo sem Paris Match,
Stern, Life, People, Vogue og
Esquire. Hann fæddist í Kazan á
Volgubökkum árið 1945. Að loknu
námi í rafmagnsverkfræði gegndi
hann um tveggja ára skeið her-
þjónustu í Baykonur-geimstöðinni
og varð liðsforingi. Eftir lausn úr
hernum starfaði hann á eigin veg-
um sem Ijósmyndari og tók eink-
um myndir fyrir minjakort og
hljómplötukápur. Á þessum tíma
tók hann um 180.000 ljósmyndir
og lánaðist að smygla úr landi til
vina á Vesturlöndum 5.000 ljós-
myndaspólum, áður en hann flutt-
ist úr landi ásamt fjölskyldu sinni.
Þótt bæði Vladimir og kona
hans Aida heyri til rússnesku
rétttrúnaðarkirkjunni (eða
grísku-orþódoxu kirkjunni) fengu
þau vegabréfsáritanir til Israel
með því að „uppdikta" gyðinglega
ættingja og afla sér þannig heim-
boðs frá ísraelsstjórn.
Vladimir Sichov hefur gefið út
einstæða bók um Sovefríkin, Les