Tíminn - 21.08.1977, Blaðsíða 9

Tíminn - 21.08.1977, Blaðsíða 9
Sunnudagur 21. ágúst 1977 9 Ný bók: Annað bindi Svæðameð- ferðarinnar er komið út Bókaútgáfan öm og örlygur hefur gefið út annað bindi bókar- innar SVÆÐAMEÐFERÐ eða ZONE TERAPI eftir Eunice D. Ingham i þýðingu Jóns A. Gissurarsonar. Bókin ber undir- titilinn ..Skref til bættrar heilsu.” A bókarkáþu segir að bók þessi sé mikilvægur viðauki við fyrri bók Inghams í henni sé skýrt frá margs konar starfsreynslu, sem áunnizt hafi i áranna rás — ekki hvað sizt á sviði geðhrifa, sem sköpum skipta um vellíðan fólks. Höfundurinn segir meðal annars í inngangsorðum: ,,Ég vona mér auðnist i bók þessari að svara á fullnægjandi hátt: Hvað er svæða-meðferð? Þá verður fjallað um svæða-meðferð og tengsl hennar við fleti taugavið- bragða, en óyggjandi rök verða færð fyrirtilvist þeirra á fótum manna. 011 liffæri og allir líkams- hlutar eiga sér taugasvörun i ein- um eða öðrum þessara flata.” Þetta annað bindi Svæðameð- ferðarinnar og bókin Hvað er tölva, sem Orn og Orlygur gefa einnigút, eru tvær fyrstu bækurn- ar sem dreift er samkvæmt hinu nýja bóksölukerfi, er samþykkt var á bókaþingi siðastliðið vor. Samþykkt þessa nýja kerfis var sögulegur atburður, þvi að þar var vikið frá fyrirkomulagi, sem hafði verið i gildi i hart nær niutiu ár. Bókin SVÆÐAMEÐFERÐ er sett i Prentstofu G. Benediktsson- ar, prentuð hjá Offsetmyndum h.f. og bundin i Arnarfelli h.f. Vatn á borgar svæð um — sýning með skýringum í Norræna húsinu gébé Reykjavik — Anna Kristin Þórsdóttir stendur fyrir skugga- myndasýningu með skýringum, um VATN A BORGARSVÆÐUM, þriðjudaginn 23. ágúst n .k. kl. 20 i fundarsal Norræna hússins. Að- gangur er ókeypis og allir vel- komnir. Anna Kristin lauk meistarastigi i arkitektúr frá University of California i Los Angeles i júni s.l. I lok myndasýningarinnar mun hún kynna lokaverkefni sitt, gos- brunn fyrir göngugötuna i Aust- urstræti, sem hún gerði undir handleiðslu Charles Moore. SÆNSK FURA Allir gæðafíokkor - Allar stærðir - 3ja mdnaða erlendur greiðslufrestur - Til afgreiðslu með fyrstu skipsferð. L. M. JÓHANNSSON & CO. Símar: 20-030 & 20-743 Þingholtsstræti 27 - Reykjavik IsIaíalsIáíalálalalalalalalalálaBIslálálalalálsIalalálalalÉiIalalalalalalsIalslalslsls $ SAMBANDIÐ BYGGINGAVQRUR SUÐURLANDSBRAUT 32- EINNIG INNAKSTUR FRÁARMÚLA29 lálálálálálálálálátáláláláláSIálálálálálálálálálálálálálálálálálálálálálálálálálálálá Anna Kristin Þórsdóttir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.