Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Sími - 564 0000Sími - 462 3500 - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir Köld slóð kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára Tenacious D in the Pick of Destiny kl. 8 og 10 B.i. 12 ára Artúr & Mínimóarnir kl. 2 (450kr) og 4 Eragon kl. 1.40 (450kr), 3.50 og 6 B.i. 10 ára Köld slóð kl. 3.30 og 5.45, 8 og 10.15 B.i. 12 ára Köld slóð LÚXUS kl. 5.45, 8 og 10.15 Artúr & Mínimóarnir kl. 1.30, 3.40 og 5.50 Eragon kl. 1, 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 10 ára Eragon LÚXUS kl. 1 og 3.20 Casino Royale kl. 8 og 10.50 B.i. 14 ára Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 1.30 Mýrin kl. 8 B.i. 12 ára Hátíð í bæ / Deck the halls kl. 1.30, 3.40 og 5.50 Borat kl. 10.20 B.i. 12 ára e Frábær fjölskyldu- og gamanmynd sem kemur öllum í gott jólaskap Aðeins 500 kr.Hinn ungi og og bráðefnilegi Freddie Highmore úr Charlie and the Chocolate Factory fer á kostum í hlutverki Artúrs. ÍSLENSKT TAL JÓLAMYNDIN 2006 FRÁBÆR ÆVINTÝRA- MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Mynd eftir Luc Besson Þegar myrkrið skellur á...hefst ævintýrið! Stórkostleg ævintýramynd byggð á magnaðri metsölubók M e eee SV MBL 20% afsláttur fyrir alla viðskiptavini Kaupþings ef greitt er með korti frá Kaupþingi ÞAÐ ER HÆTTULEGT AÐ LEITA SANNLEIKANS - ÞÚ GÆTIR FUNDIÐ HANN... eeee V.J.V. - Topp5.is staðurstund Bandarísk list á þriðja árþúsund-inu í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Margir af fremstu lista- mönnum Bandaríkjanna, sem fædd- ir eru eftir 1970, eiga verk á sýning- unni. Sýningarstjórarnir eru í fremstu röð innan hins alþjóðlega myndlistarvettvangs. Sýningin hef- ur farið víða um heim, m.a. til New York og Lundúna. Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsinu var opnað árið 2000. Í safninu er áhersla á fjölbreyttar sýningar af samtíðarlist, bæði innlendri og erlendri. Auk þess er í safninu fastasýning á verkum eftir Errós. Húsakynni safnsins eru einnig notuð undir ýmsa menningartengda starfsemi eins og fyr- irlestra, námskeið og tónleika. Opið alla daga vikunnar kl. 10–17. Frítt inn á fimmtudögum. Sami að- göngumiði gildir í 3 sólarhringa á öllum þremur sýningarstöðum Lista- safns Reykjavíkur, þ.e. Kjarvalsstöðum, Hafnarhúsi og safni Ásmundar Sveinssonar. Söfn Bandarísk list á þriðja árþúsund- inu í Hafnarhúsi Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Tónlist Hallgrímskirkja | Kristinn Sigmundsson óperusöngvari og Trompeteria-hópurinn, Hörður Áskelsson orgelleikari ásamt trompetleikurunum Ásgeiri H. Steingríms- syni og Eiríki Erni Pálssyni, koma fram á hátíðartónleikum í Hallgrímskirkju á gaml- ársdag kl. 17. Á efnisskrá eru m.a. bassa- aríur úr Messíasi og Jólaóratóríunni. Lukku-Láki | Hljómsveitin Signia verður á áramótaballi á Lukku-Láka í Grindavík á gamlárskvöld. Myndlist Art-Iceland.com | Skólavörðustíg 1a er með smámyndasýningu til 14. janúar 2007. Listamennirnir 20 og galleríið gefa 10% af sölu til Barnaheilla. Verkin á sýn- ingunni eru mjög fjölbreytt og áhugaverð. Eftir jól er opið frá kl. 12–18. Allir vel- komnir. Artótek Grófarhúsi | Anna Hallin mynd- listarmaður sýnir teikningar og myndband á Reykjavíkurtorgi í Borgarbókasafni Tryggvagötu 15. Til áramóta. Nánar á www.artotek.is Café Mílanó | Ingvar Þorvaldsson er með málverkasýningu. Sýnd eru 10 ný olíu- málverk. Sýningin stendur til áramóta. Gerðuberg | Gerðuberg á í safni sínu um 1.000 listaverk eftir börn sem unnin voru í listsmiðjunum Gagn og Gaman sem starfræktar voru sumrin 1988–2004. Fyr- irtæki og stofnanir geta fengið leigð verk úr safninu til lengri eða skemmri tíma. Til 21. janúar. Sjá www.gerduberg.is. Sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum 2006. Sýningin stendur til 21. janúar 2007. Tekið er á móti 8 ára skólabörnum í samstarfi við Borg- arbókasafnið. Sjá www.gerduberg.is. Hugarheimar – Guðrún Bergsdóttir sýnir útsaum og tússteikningar. Ein allsherjar sinfónía fjölskrúðugra lita og forma; eins og íslensk brekka þakin berjum að hausti eða brúðarklæði frá Austurlöndum. Verk Guðrúnar vitna um hina óheftu tjáningu sem sprettur fram úr hugarheimi hennar. Sýningin stendur til 21. janúar. Sjá www.gerduberg.is. Hafnarborg | Ljósmyndarinn Spessi til 30. desember. Verkin eru úr bók sem ber tit- ilinn „Locations“ og kom út nú fyrir jólin. Sýningin í Hafnarborg hefur fengið sömu yfirskrift. Þarna er fyrst og fremst um að ræða myndir af stöðum sem bera um- merki mannsfólksins. Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, sýnir í Sverr- issal og Apóteki. Á sýningunni verða steinleirsmyndir og verk unnin á pappír með akrýl, olíukrít, pastel og bleki. Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir sýnir í Menningarsal til 8. janúar. Kaffi Sólon | Elena Fitts sýnir málverk á Sólon. Verkin eru unnin með olíu á striga. Elena fæddist 1984 í Úkraínu, byrjaði að teikna mjög ung. Hún flutti til Íslands 1999 og ári síðar hóf hún að nota olíuliti. Til 5. janúar. Kling og Bang gallerí | Sirra Sigrún Sig- urðardóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Daníel Björnsson sýna í Kling & Bang gallerí, Laugavegi 23. Sýningin heitir Ljósaskipti – Jólasýning Kling og Bang og stendur til 28. janúar. Listasafn Einars Jónssonar | Lokað í desember og janúar. Höggmyndagarð- urinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafn Íslands | Frelsun litarins/ Regard Fauve, sýning á frönskum ex- pressjónisma í upphafi 20. aldar. Sýningin kemur frá Musée des beaux-arts í Bor- deaux í Frakklandi, 52 verk eftir 13 lista- menn. Sýning á verkum Jóns Stef- ánssonar í sal 2. Opið 11–17 alla daga, lokað mánudaga. Ókeypis aðgangur. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Bandarísk list á þriðja árþúsundinu. Marg- ir af fremstu listamönnum Bandaríkjanna, sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýningunni. Sýningarstjórarnir eru í fremstu röð innan hins alþjóðlega mynd- listarvettvangs. Sýningin hefur farið víða um heim, m.a. til New York og Lundúna. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Lokað í desember og janúar. Ófeigur listhús | Skólavörðustig 5. Mál- verkasýning Ómars Stefánssonar. Sýn- ingin stendur til áramóta og er opin á verslunartíma. Þjóðminjasafn Íslands | Á Veggnum í Þjóðminjasafninu stendur yfir jólasýning með myndum tvíburabræðranna Ingi- mundar og Kristjáns Magnússona. Mynd- irnar fanga anda jólanna á sjöunda ára- tugnum. Margt í þeim ætti að koma börnum í jólaskap og fullorðna fólkið þekkir þar vafalaust hina sönnu jóla- stemningu bernsku sinnar. Í Myndasal Þjóðminjasafnsins eru til sýnis þjóðlífsmyndir úr safni hins þjóðþekkta Guðna Þórðarsonar í Sunnu, blaðamanns, ljósmyndara og ferðamálafrömuðar. Myndirnar tók hann við störf og ferðalög á tímabilinu 1946–60. Þær eru eins og tímasneið frá miklu umbrotaskeiði í sögu þjóðarinnar. Þjóðminjasafn Íslands | Í Bogasal Þjóð- minjasafnsins stendur yfir sýning á út- saumuðum handaverkum listfengra kvenna frá fyrri öldum. Sýningin byggir á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson textíl- og búningafræðings. Myndefni útsaumsins er fjölbreytt, m.a. sótt í Biblíuna og kynja- dýraveröld fortíðarinnar. Söfn Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Nú stendur yfir á Bókatorgi í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 1. hæð, sýningin „… hér er hlið himinsins“ sem Borgarskjalasafn Reykjavíkur vann í tilefni af 20 ára vígslu- afmæli Hallgrímskirkju. Sýningin er opin virka daga kl. 11–19 og um helgar kl. 13–17. Aðgangur ókeypis, allir velkomnir. Til 7. jan. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð- leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu- leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á www.gljufrasteinn.is Sími 586 8066. Landsbókasafn Íslands, Háskóla- bókasafn | Í spegli Íslands er lítil sýning í forsal þjóðdeildar safnsins. Þar er sagt frá ferðasögum til Íslands í gegnum ald- irnar. Sjá nánar á heimasíðu: www.lands- bokasafn.is Landsbókasafn Íslands, Háskóla- bókasafn | Sú þrá að þekkja og nema ... Sýning til heiðurs Jónas Jón- assyni frá Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var prestur, rithöfundur, þýðandi og fræðimaður, eins og verk hans Íslenskir þjóðhættir bera vott um. Sýningin spann- ar æviferil Jónasar. www.landsbokasafn.is Landsbókasafn Íslands, Háskóla- bókasafn | Upp á Sigurhæðir – Matthías Jochumsson var lykilmaður í þjóðbygg- ingu 19. aldar. Menn þekkja best sálmana, þjóðsönginn og Skugga-Svein, en skáld- presturinn sá eftir sig 28 bækur, þar af 15 frumsamdar. Sýningin stendur yfir til 31. desember. Sjá heimasíðu safnsins www.landsbokasafn.is Þjóðmenningarhúsið | Að vanda eru fjöl- breyttar sýningar í sölum Þjóðmenning- arhússins. Þær eru: Íslensk tískuhönnun, með fatalínum frá níu merkjum eða hönn- uðum í samhengi við íslenska náttúru. Berlin Excursion, bókagerðarlist frá for- lagi rithöfunda og myndlistarmanna frá Berlín. Fyrirheitna landið og Handritin að auki. Þjóðminjasafn Íslands | Skoðunarferð um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er æv- intýralegt ferðalag gegnum 1200 ár sem hefst í skipi landnámsmanna og lýkur í flughöfn nútímans. Fjölbreyttar sýningar, fræðsla og leikir fyrir alla fjölskylduna. Skemmtileg safnbúð og notalegt kaffi- húss. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Dans Iðnó | Fyrsta tangóball ársins 2. janúar. Byrjendakennsla í argentínskum tangó kl. 20–21. Dansað við ekta argentínskan tangó af diskum frá kl. 21 til 23. Allir vel- komnir. Aðgangseyrir er 500 kr. og kennslan innifalin. Meira á idno.is og tango.is Skemmtanir Kringlukráin | Hljómsveitin Sixties heldur fjörinu uppi alla helgina. Fréttir og tilkynningar Happdrætti bókatíðinda 2006| Númer í Happdrætti bókatíðinda 2006: 1. des. 90691; 2. des. 88144; 3. des. 95685; 4. des. 106130; 5. des. 22269; 6. des. 11721; 7. des. 56451; 8. des.47200; 9. des. 14990; 10. des. 27358; 11. des. 527; 12. des. 61088; 13. des. 66802; 14. des.10799; 15. des. 25279; 16. des.68; 17. des. 72121; 18. des. 30281; 19. des. 74492; 20. des. 794; 21. des. 1573; 22. des. 1925; 23. des. 109542; 24. des. 46978. GA- fundir (Gamblers Anonymous) | Er spilafíkn að hrjá þig eða þína aðstand- endur? Fáðu hjálp! Hringdu í síma: 698 3888. Börn Þjóðminjasafn Íslands | Á Torginu í Þjóð- minjasafninu stendur yfir sýningin Sér- kenni sveinanna. Á sýningunni er lítið jóla- hús og sitthvað sem tengist jólasveinunum, svo sem kjöt fyrir Ketkrók og bjúgu fyrir Bjúgnakræki. Sýningin get- ur hjálpað börnunum til að skilja hin skrýtnu nöfn jólasveinanna. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.