Fréttablaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 32
13. apríl 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 Þeir lugu að mér að kötturinn yrði settur í poka og skotinn ef ég bjargaði honum ekki. Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is Allt líf Justins Christophers Shouse, sem nú er 31 árs, hefur snúist um körfubolta. Justin, sem er uppalinn í 100 þúsund manna borginni Erie sem stendur við samnefnt stöðuvatn í Pennsylvaníu í Bandaríkj- unum, man varla eftir sér sem krakka öðruvísi en með körfubolta í hönd. „Ef ekki þá var ég að henda upprúll- uðu sokkapari í körfu. Við vorum með körfu fyrir utan húsið, pínulitla körfu í herberginu mínu og svo setti pabbi upp körfu í kjallaranum,“ segir Justin. Veturinn var oft snjóþungur í Erie og þá kom sér vel að geta skotið á körfu í hráum kjallaranum þótt lofthæðin væri ekki nema tveir metrar. Körfuboltaáhugann sækir Just- in til móður sinnar sem var ein ell- efu systkina. Hún, ásamt tveimur systrum sínum, leiddi menntaskóla- lið þeirra í úrslit í Pennsylvaníu á átt- unda áratugnum. Faðir hans er hins vegar bílasjúkur en stóð þétt við bakið á körfuboltasjúkum syni sínum og eldri bróður Justins, sem valdi blak. „Mér var aldrei ýtt út í körfubolta. Þetta var bara val. Mamma og pabbi sögðu mér að ef ég ætlaði að leggja körfuboltann fyrir mig yrði ég þó að gefa mig allan í þetta,“ segir Justin. Lið hans í menntaskóla og háskóla nutu stuðnings stórrar fjölskyldu Justins sem missti ekki úr leik hjá honum. „Við vissum alltaf að við fengjum marga áhorfendur,“ segir Justin sem bjó í Erie þar til hann lauk háskólanámi 22 ára gamall. Myndbandið endursent Justin útskrifaðist með kennara gráðu úr Mercyhurst-háskólanum í Erie. Frammistaða Justins með háskólaliði Mercyhurst-háskólans var sérlega góð. Justin er fimmti stigahæsti leikmaður- inn í sögu skólans, á næstflestar stoð- sendingar og enginn hefur stolið fleiri boltum. Náði hann sérstaklega vel saman við kraftframherjann Joshua Helm. Justin og Joshua sendu myndbönd með brotum úr leik sínum til Sigurðar Hjörleifssonar, sem hefur útvegað fjöl- mörgum íslenskum körfuboltaliðum bandaríska leikmenn í gegnum tíðina. „Joshua fékk stöðu hjá KFÍ og stóð sig vel en Siggi sendi spóluna mína til baka,“ segir Justin og hlær. Hann fékk þó boð um að spila með liði í Þýska- landi og þótt launin hafi verið lítil sem engin ákvað hann að slá til. „Það var ekki eins og ég hafi ætlað að verða milljónamæringur hvort eð er. Fólk sækir ekki í kennarastéttina í von um gull og græna skóga,“ segir Justin. Foreldrar hans hvöttu hann til að slá til. „Sumir vestanhafs yfirgefa aldrei heimabæinn sinn. Ég elska Erie og gæti hugsað mér að búa þar en lang- aði að upplifa eitthvað fleira,“ segir Justin, sem langaði að upplifa ævin- týri og ferðast um heiminn. Kjaftforir Stjörnustrákar Frammistaða Joshua Helm með KFÍ varð til þess að Sigurður Hjörleifsson hafði aftur samband við Justin. Honum stóð til boða að verða spilandi þjálfari hjá liði Drangs á Vík í Mýrdal í næst- efstu deild. „Ég vissi lítið um Vík. Hafði lesið að um fallegan bæ á suðurströndinni væri að ræða en það kom hvergi fram að aðeins 400 manns ættu heima þar,“ segir Justin, sem naut lífsins í eitt ár á suðurströndinni. Óhætt er að segja að Justin hafi verið í lykilhlutverki hjá Drangi. Hann skoraði 44 stig að meðal- tali í leik og man hann sérstaklega vel eftir leikjunum gegn núverandi félögum sínum í Stjörnunni. Stjarn- an lék einnig í næstefstu deild á þeim tíma og mátti sætta sig við tap í Vík, þar sem Justin skoraði 54 stig. „Það er ekki leiðinlegt að geta strítt Stjörnustrákunum í dag með því að mæta í Drangstreyjunni á æfingar og minna þá á stigin 54,“ segir Justin. Hann segist hlæjandi reglulega minna Stjörnustrákana á stórveldið Drang úr suðrinu. Stjörnumenn hefndu þó fyrir tapið í leik liðanna í Ásgarði þar sem foreldrar Justins voru meðal áhorf- enda. „Þeir voru með kjaft og læti við mig. Mamma minntist á það eftir leikinn að þetta hefðu ekki verið vingjarnlegir strákar,“ segir Justin brosandi. Hann segir að það hafi verið sér- staklega fyndið þegar hann til- kynnti mömmu sinni að hann væri að skipta um lið sumarið 2008. Væri á leiðinni í liðið með ókurteisu strákunum. „Núna eru þetta auðvitað góðir vinir mínir.“ Kallaður Jason Frábært tímabil með Drangi fór ekki framhjá Snæfell- ingum í Stykkis- hólmi sem sömdu við Justin. Landi hans, Geoff Kotila, þjálfaði liðið en hann þekkti til Justins frá því úr háskóla- boltanum vestanhafs. „Stuðningsnetið í Stykkis- hólmi var frábært því þar elsk- ar fólkið körfubolta,“ segir Just- in, sem jafnframt tók við þjálfun kvennaliðs félagsins. Honum sjálf- um gekk þó heldur illa til að byrja með. „Frammistaða mín í fyrstu tveim- ur leikjunum með Snæfelli var fyrir neðan allar hellur. Ég var hræðilegur. Mér fannst ég þurfa að sanna mig enda kominn í deild hinna bestu,“ sagði Just- in en fleira var að angra hann. „Svo gat Geoff Kotila ekki lært nafnið mitt. Hann kallaði mig ítrek- að Jason,“ segir Justin. Hann þakkar Snæfellingum fyrir að hafa stutt sig því á þeim tíma voru íslensku félögin dugleg að losa sig við bandarísku Hef unnið fyrir ríkisborgararéttinum Justin Shouse hefur sett svip sinn á íslenskan körfubolta síðastliðin átta ár. Fátt benti til þess að Bandaríkjamaðurinn 23 ára, sem renndi blint í sjóinn á Vík í Mýrdal hausið 2004, yrði kjörinn besti leikmaður efstu deildar sjö árum síðar. Í dag er hann óumdeildur leiðtogi Stjörnunnar, sem margir reikna með að verði Íslandsmeistari í fyrsta sinn áður en apríl er allur. KENNARINN Justin kennir við Alþjóðaskólann í Garðabæ, þar sem um 75 krakkar frá öllum heimshornum eru við nám. Í ár kennir hann leikfimi, sund, stærðfræði og lestur en það breytist á milli ára. „Þannig fer fólk í ný störf, viðheldur ferskleika og áhuga. Ef þú kennir það sama fjögur ár í röð tapast orka og sköpunarhæfileiki.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Justin varð íslenskur ríkisborgari sumarið 2011. Íslenskan hefur verið á uppleið hjá honum undanfarin ár en hann segist þó stoltur skilja allt sem Teitur Örlygsson þjálfari segi við liðið. Aðeins tveir erlendir leikmenn mega vera inni á vellinum hverju sinni í efstu deild karla hér á landi. Justin og liðsfélagi hans Jovan Zdravevski eru báðir með ríkisborgararétt og teljast því eðlilega sem Íslendingar. „Ég veit að fólk fussar og sveiar yfir því. En ég hef verið hérna lengi, ég er skattborgari og hef lagt mitt af mörkum til samfélagsins bæði sem þjálfari og kennari. Mér finnst ég hafa unnið fyrir ríkisborgararéttinum.“ Hann veit þó að sumir munu aldrei sjá hlutina frá hans sjónarhorni. Þannig sé viðhorf margra gagnvart innflytjendum vestanhafs líka. „Kannski er ég ekki jafníslenskur og Jón Jónsson en ég reyni að standa mig.“ Fyrir vikið er Justin gjaldgengur í íslenska landsliðið. Veikindi afa hans komu í veg fyrir þátttöku hans í undankeppni EM síðastliðið sumar. Hann er hins vegar klár ef kallið kemur. „Það verður að koma í ljós hvort þjálfarinn sé tilbúinn að veðja á 32 ára gamlan hund.“ Þurfa að veðja á 32 ára gamlan hund leikmennina ef þeir spiluðu illa. „Ef þú stóðst þig ekki varstu sendur heim eftir tvo leiki. Ég hefði því verið farinn frá Íslandi hefði Snæfell ekki staðið við bakið á mér,“ segir Justin. Einnig hjálpaði að liðið var vel mann- að svo að leikirnir unnust þrátt fyrir slaka frammistöðu leikstjórnandans. Í Stykkishólmi fékk Justin líka tæki- færi til þess að kenna ensku við grunn- skóla bæjarins. „Körfuboltamenn hafa ekki alltaf frábært orðspor fyrir að leggja hart að sér utan vallar. Í Stykkishólmi leið mér eins og ég hefði meira fram að færa en að spila körfubolta.“ Tveimur árum síðar varð Snæfell bikarmeistari í fyrsta skipti en tap- aði gegn Keflavík í úrslitum Íslands- mótsins. Kotila hvarf á braut og Stjarn- an gat nýtt sér óvissuna í Stykkishólmi og fékk Justin í Garðabæinn. Hótað að drepa köttinn Dvöl Justin í Garðabænum hefur haldist í hendur við mikla upp- sveiflu Garðabæjarliðsins. Liðið varð bikarmeistari á fyrsta tíma- bili Justins og tveimur árum síðar komst liðið í úrslit gegn KR um Íslandsmeistaratitilinn en beið lægri hlut. Justin var kjörinn besti leik- maður Íslandsmótsins á síðustu leik- tíð og nýtur lífsins í Garðabæ þar sem hann þjálfar yngri flokka Stjörnunnar og kennir við Alþjóðaskólann. Hann er einhleypur og ólíkt flestum Banda- ríkjamönnum á hann ekki einu sinni hund. „Ég væri svo til í að eiga hund,“ segir Justin. Tíu vikna sumarfrí í Erie gera það hins vegar ómögulegt. „Vinir mínir geta passað upp á gítarinn minn og lopapeysuna en það yrði erfiðara með hundinn,“ segir Justin. Hann seg- ist þó hafa átt kött í Vík í Mýrdal. „Þeir lugu að mér að kötturinn yrði settur í poka og skotinn ef ég bjargaði honum ekki,“ segir Justin, sem skírði köttinn Herra Ha til heiðurs hvatning- arópum Drangsmanna fyrir leiki lið- anna í fyrstu deildinni. „Kötturinn var frábær og fylgdi mér hvert fótmál í Vík og mætti á æfingar. Eftir nokkra mánuði hljóp hann þó út og varð fyrir bíl,“ segir Justin og full- yrðir að kötturinn sé enn þann dag í dag goðsögn í Vík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.