Tíminn - 22.03.1960, Qupperneq 12
12
TÍMINN, þriðjudaginn 22. marz 1960*
Sextugur:
Einar Skúlason Eymann
Einar Skálason Eymann frá
Giiá í Vatnsdal átti sextugsafmæli
10. f.m.
Einar er fæddur að Hofi í Vatns
dal, sonur Skúla Benjamínsson-
ar járnsmiSs á Blönduósi og Guð-
rúnar Benónýsdóttur. Hún átti
lengi heima i Reykjavík og er ný-
lega dáin.
Einar fór ungur að Gilá í Vatns-
dal til hjónanna Þuríðar Gísla-
dóttur og Davíðs Davíðssonar, er
bjuggu þar ásamt' syni sínum,
Daða, bóka- og fræðimanni. Einar
átti heima á Gilá til fimmtíu ára
aldurs, en þá fluttist hann til
Reykjavíkur og hefur átt þar
heima síðan. Aðalatvinna hans í
Reykjavík nefur verið við húsa-
byggingar og pípulagnir. Árið
1953 varð bann þingvörður og
hefur gegm því starfi síðan um
þingtímann ár hvert.
Á sumrin fer hann oft um stund
norður í átthaga sína og vinnur
þsr að heyskap, af því að honum
eru hinar tornu slóðir kærar.
Einar heíur ebki gengið í ann-
aii skóla en barnaskólann í æs'ku-
sveitinni. Kennari hans var Krist-
ján Sigurðsson frá Brúsastöðum í
Vatnsdal, Þmgeyingur að ætt. Ein-
nr telur það hafa orðið sér til
mikillar gæfu að hafa kynnzt
Kristjáni og notið leiðsagnar hans.
Einar er yfirlætislaus maður og
hljóðlátur. En hann er fljótur til
að vinna verk sín og alltaf á verði
sínum, fyrirgreiðslusamur og á-
reiðanlegur, svo sem bezt verður
á kosið.
Við kynningu kemur í ljós, að
góðlátleg gamansemi býr undir
hljóðlæti og hæversku hans.
Einar S. Eymann á eina dóttur
barna. Hún heitir Sigrún og er
gift. húsfreyja í Reykjavík.
Karl Kristjánsson
MINNING
(Framhald af 6. síðu).
nokki'ar vikur. Hingað til Reykja-
víkur kom hún svo 5. nóvember
á fæðingardeild Landsspítalans.
Eftir það hrakaði heilsu hennar
svo, að hún fékk ekki bót og dó
1. janúar. Var hún flutt til Bakka-
fjarðar og jarðsett þar 6. febrúar.
Ég hugsa til dótturinnar heima á
Bakkafirði og litlu dótturdóttur-
innar, sem ber nafn ömmu sinnar.
— Dýrleif heitin átti því láni
að fagna, að eiga góð .myndarleg
og vel gefin börn, enda var hún
góð móðir.
— Ég lá um tíma á sömu deild
og Dýrleif heitin, í vetur. — Þeg-
ar ég fór, kvaddi ég hana og var
•hún furðu hress. Hún áminnti mig
um að fara gætilega með mig. —
Ég sagði við hana að nú myndi
hún fá bata fyrst hún væri komin
hingað. Hún svaraði: ,,Ég er löngu
búin að sætta mig við mitt hlut-
skipti.“ Við vorum á líkum aldri.
Ég gat ekki vel áttað mig á að
ekki væri batavon, en hún gerði
sér vel grein fyrir því. Þetta er
gangur lífsins. Annar í dag og
hinn á morgun." Áframhaldandi
líf til þroskans. — Svo votta ég
innilega samúð
■
hjónanna
og barnanna. miima, til eigin-
manns, barna og skyldmenna. —
Ó, guð minn vek þá hugsun mér
í huga
við hverja neyð og sorg og
reynslu-sár;
þá styrkist ég og læt mig böl
ei buga,
og brosið skín í gegnum öll
mín tár.
Með vinar kveðju, Dolla mín.
Sigurbjörg Sigurðardóttir
frá Snæbjarnarstöðum.
ORÐSENDING
frá Byggingasamvinnufélagi Reykjavíkur
Önnur hæð húseignarinnar Barmahlíð 13 (austur-
endi) er til sölu.
Eignin er byggð á vegum Byggingasamvinnufé-
lags Reykjavíkur, og eiga félagsmenn forkaups-
rétt lögum samkvæmt.
Þeir félagsmenn, sem vilja nota forkaupsréttinn,
skulu sækja um það skriflega til stjórnar félags-
ins fyrir 31. þ.m.
Stjórnin
Frá Sjúkrahúsinu á Selfossi
Staða yfirhjúkrunarkonu er iaus frá 1 iúlí næst
komandi að telja. Enn fremur vantar aðstoðar-
hjúkrunarkonu nú þegar eða síðar eftir samkomu-
lagi. Umsóknir til stjórnar sjúkrahússins má senda
til sýsluskrifstofunnar á Selfossi. Nánari upplýs-
inga má leita í sýsluskrifstofunni eða hjá Bene-
dikt Tómassyni, lækni, c/o landlæknisskrifstofan,
Reykjavík.
Sjúkrahússtjórnin
Sérhver kona á auðvelt með að
sjá hvenær maðurinn er aftur
sómasamlega rakaður
10 blaða málmhylki með
hólfl fyrir notuð blöð
Og slíkur rakstur fæst aðeins með
Bláu Gillette Blaði í Gilletté rakvél.
Reynið eitt blað úr handhægu málmhylkjunum á
morgun og flnnið mismuninn.
Gillette
Til að fullkomna raksturinn — Gillette rakkrem
*V»V»VV‘
HAUPFÉLÖG
Þar sem nú fara í hönd aðdrættir á helztu byggingarvörum, væri æskilegt, aS
þeir, sem ætla aS fela oss innkaupin, sendi pantanir í eftirfarandi vörur hiS
fyrsta:
TIMBUR
STEYPUJÁRN
KROSSVIÐUR
ÞILPLÖTUR
KALK
ÞAKJÁRN
STEYPUSTYRKTARJÁRN
MIÐSTÖÐVAREFNI
HREINLÆTISTÆKI
GÓLFDÚKAR
RÚÐUGLER
GIRÐINGAREFNI
VATNSRÖR
ASBEST — SEMENTSVÖRUR
OG ÝMSAR AÐRAR
BYGGINGARVÖRUR
Önnumst innkaup á nefndum vörum frá Finnlandi, Sovétríkjunum, Tékkó-
slóvakíu, Póllandi, Austur-Þýzkalandi, Belgíu, Bretlandi, Ítaiíu, Svíþ|óð, Dan-
mörku og U.S.A.
Samband ísl. samvinnufélaga
— Innflutnmgsdeild —
Herbergi
til leigu í Hlíðunum. — Uppl.
í síma 36429.
Nauðungaruppboð
á b.v. Vetti S.U. Í03, sem frestað var 1. marz
1960, fer fram við skipið þar sem það liggur við
Grandagarð, laugardaginn 26. marz 1960, kl. 2,30
síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík