Tíminn - 22.03.1960, Síða 14

Tíminn - 22.03.1960, Síða 14
14 TÍMINN, þriðjudaginn 22. mar* 19«®. hugsaBi ég meira um skauta- svellið í Southampton en nokkuð annað. Það varð mér tákn um það líf, sem liðið var — eitthvað fast að halda sér í. Hún þagnaði. — Strax þeg ar ég komst heim til Eng- lands aftur, fór ég til South ampton. Eg átti eitthvert er- indi þangað; en raunveru- lega ástæðan var sú, að ég hafði lofað sjálfri mér öll þessi ár, að einhverntíma skyldi ég aftur fara þar á skauta. En skautahöllin hafði orðið fyrir sprengju. Hún var svört brunarúst — nú er engin skautahöll í Southampton. Eg stóð þar á gangstéttinni leigubíllinn beið fyrir aftan mig — ég hélt á skautunum í hendinni og skældi af vonbrigðum. Ekki veit ég hvað bílstjórinn hefur hugsað um mig. Bróðir hennar hafði farið til Malaya árið 1937 þegar Jean var sextán ára. Saut- ján ára hætti hún í mennta- skóla og fór í verzlunarskóla og tók þaðan próf í vélritun og hraðritun eftir sex mán- uði. Hún vann á lögfræðings skrifstofu næsta ár, meðan verið var#að undirbúa jarð- veginn til að hún fengi starf í Malaya. Móðir hennar hafði samband við forstjóra Kuala Perak félagsins og hann .var mjög ánægður með þær fregnir, sem bárust af Don- ald frá ekrustjóranum, Aldrei var mikið af ógiftum, enskum stúlkum í Malaya og þegar frú Paget fór fram á það við forstjórann, að hann léti Jean hafa starf í aðal skrifstofunni í Kuala Lump ur, þá tók hann það þegar til alvarlegrar athugunar. Félag ið taldi óæskilegt ^ð starfs- menn þess kvæntust eða byggju með malayakonum, en einasta vörnin gegn því var að hvetja ógiftar stúlkur til að ráðast til starfa hjá félaginu. Og það var sjaldan sem félaginu bauðst skrif- stofustúlka frá Englandi, sem kunni malayisku. Svo Jean fékk atvinnu. Stríðið brauzt út meðan vertö var að kippa þessu í lag. í fyrstu urðu menn þess lítt varir í Englandi og frú Paget sá enga ástæðu til þess að láta slíka smámuni trufla framtíðarhorfur Jean. Hún áleit líka, að Jean yrði miklu betur sett í Malaya, ef einhver órói yrði í Englandi. Jean fór til Malaya veturinn 1939. í röska átján mánuði skemmti hún sér dásamlega. Skrifstofa hennar var rétt hjá stjórnarskrifstofunum, sem eru í voldugu húsi, sem byggt hafði verið til að sanna veldi hins brezka konungs. Sú bygging girðir knattleiks völlinn á einn veg og and- spænis henni er klúbburinn, en til annarrar hliðar er kirkja, sem hefði getað stað- ið í ensku sveitfe-þorpi. Þarna bjuggu menn við alenskar venjur í hitabeltisþægind- um, nægar frístundir, margs konar leiki og skemmtanir veizlur og dans, en fjöldi þjóna sá fyrir öllum þörfum. Jean leigði hjá einum af deildarstjórum félagsins í rofið, þá fór útlitið að verða dálítið alvarlegt. Einn morg- un kallaði húsbóndi Jean, herra Merriman, á hana inn á skrifstofu sína og sagði henni, að skrifstofan væri að loka. Henni var sagt að.láta föggur sínar í eina tösku, fara á járnbrautarstöðina og taka fyrstu lest til Singa- pore. Hann fékk henni heim ilisfang umboðsmanns félags ins þar og sagði henni að sækja þangað farseðil heim. Fimm stúlkur aðrar, sem líka unnu á skrifstofunni, fengu Framhaldssaga hefmsótt þau oft síðan og eitt sinn, er hún var lasin, dvaldi hún þar vikutíma sér til hress ingar. Daginn áður hafði hún frétt, að herra Holland hefði komið með fjölskyldu sína á járnbrautarstöðina, en ekki fengið far og þau snúið aft- ur heim. Jean fannst að hún ekki geta farið án þess að kveðja þau hjónin og bjóða Eileen aðstoð. Eileen var góð móðir og fyrirmyndar húsmóð ir, en greinilega ófær um að ferðast ein með þrjú börn í þeirri ringulreið , sem fólks- flutningum fylgir á stríðstím um. Jean gekk all vel að komast litlu gistihúsi hjá enskri konu. Eiginlega var það eins konar heimavist fyrir ógift ar stúlkur, sem unnu á skrif jstofum eða í stjórnardeildun um. j — Við höfðum það allt of gott, sagði Jean. — Á hverju einasta kvöldi var boð eða dansleikur. Við urðum að neita einhverri skemmtun til þess að hafa tíma til að skrifa bréf heim. Hún og vinir hennár tóku lítið mark á því að hætta væri í aðsigi þegar farið var í stríð við Japani. Bandarík in fóru líka í stríðið 7. des- ember 1941 og það var ágætt. Það hafði engin önnur áhrif á heimboðin í Kuala Lumpur en að ungir menn fóru að segja upp stöðum sínum og koma í einkennisbúningum, sem var í sjálfu sér æði skemmtilegt. Jafnvel þegar Japanir gengu á land norðan til í Malaya, hugsuðu fáir um hættu í Kuala Lumpur. Þrjú hundruð mílna vegalengd, fjöll og frumskógur, lá þar á milli og hlaut að vera örugg vörn gegn innrás. Þegar her skipunum Prince of Wales og Repulse var sökkt fékk það ekki mikið á nítján ára stúlku, sem nýbúin var að neita sínu fyrsta bónorði. Ekki leið á löngu þar til skipað var í orði kveðnu að flytja giftar konur og börn til Singapore. Þegar Japanir þokuðust niður skagann og ruddust gegn um frumskóg, sem enginn her hafði áður Sigríður Thorlacius þýddi 7. sömu fyrirmæli. Þá voru Japanir sagðir vera hjá Ipoh, um eitt hundr að mílur frá Kuala Lumpur. Öllum voru orðnar Ijósar horfurnar. Jean fór í bank- ann og tók út alla sína pen- inga, um sex hundruð doll- ara. En hún fór ekki á braut arstöðina og þó að hún hefði gert það, var vafamál að hún hefði komist til Singapore. Umferðin hafði verið stöðvuð af herflutningum til vígstöðv anna. Hún hefði getað slopp- ið eftir akbrautinni. En hún fór til frú Holland í Batu Tasik. Batu Tasik er um tuttugu mílur norðvestur af Kuala Lumpur. Holland var forstjóri tinnámu og bjó í fallegu ein- býlishúsi rétt hjá námunni á- samt konu sinni Eileen og þremur börnum þeirra, Fredd ie, sjö ára, Jane fjögurra og Robin, sem var tíu mánaða. Eileen Holland var ljúf og móðurleg kona, rösklega þrí- tug. Þau hjón sóttu hvorki samkvæmi né dansleiki, held ur sátu heima í ró og næði og létu heiminn sigla sinn sjó. Þau höfðu boðið Jean heim skömmu eftir að hún kom til borgarinnar og hún hafði kunnað vel við þau. Hún hafði til Batu Tasik með áætlunar- bíl. Hún kom þangað um há- degisbil og var frú Holland þá ein heima með börnin. Her- inn hafði tekið alla bíla, sem við námuna voru og hjónin höfðu ekki annan farkost en lítinn Austinbíl og einn hjól barðinn var slitinn inn í striga, en á öðrum var stór- eflis blaðra. Þetta var ekki glæsilegur farkostur til að koma allri fjölskyldunni til Singapore. Holland hafði far- ið til Kuala Lumpur í dögun til að reyna að fá nýja hjól- barða og kona hans var orð in hrædd um hann. í húsinu var allt á ringul- reið. Barnfóstran var farin, allsstaðar voru hálfullar tösk ur. Freddie hafði dottið í poll og var allur leirugur, Jane sat grátandi á pottinum innan um allar töskurnar, frú Hol- land gaf barninu pela, sagði fyrir um matargerð, huggaði Jane og fjargviðraðist út af eiginmanni sínum. Jean tók Freddie og þvoði honum, hjálp aði Jane og brátt settust þau öll að matborðinu. Bill Holland kom ekki fyrr en um sólsetur og hann kom tómhentur. Herinn var búinn að leggja hald á alla hjól- barða. Hann hafði frétt, að á- ætlunarbíll fyrir heimamenn myndi fara klukkan átta næsta morgun og hafði pant að sæti í honum handa konu sinni og börnum. Hann hafði orðið að ganga síðustu fimm mílurnar, þá var ekkert farar tæki sjáanlegt, og það er ekkert spaug að ganga fimm mílur á malbikuðum vegi um hádag í hitabeltinu. Hann var rennvotur af svita, örmagna af þorsta og þreytu. Það hefði verið betra fyrir þau að leggja af stað til Kuala Lumpur þá um kvöldið, en þau gerðu það ekki. Herinn bannaði umferð eftir að dimmt var orðið. Þau ákváðu að leggja af stað í dögun, þá myndu þau hafa nægan tíma til að komast fyrir klukkan átta til Kuala Lumpur. Jean var um kyrrt hjá þeim, varð andvaka og óróleg. Um miðja nótt heyrði hún Bill Holland fara út á svalirnar og sá hann standa þar hreyfingarlausan og bera við stjörnubjartan himininn. Hún skreið undan mýflugnanetinu, brá yfir sig slopp og fór út til hans. — Hvað er að? hvíslaði hún. — Ekkert, anzaði hann. Mér fannst ég heyra eitthvað. — Er einhver í garðinum? — Nei, — það var ekki það. — Hvað? — Mér fannst ég heyra skot hríð langt í burtu, sagði hann. — Það hlýtur að vera ímynd- un. Þau stóðu spennt og hlust- uðu gegn um hávaðann í eng- isprettunum og froskunum. — Guð minn góður, hvíslaði hann. — Eg vildi það væri kominn dagur. Þau fóru aftur inn. Þessa nótt komust Japanir að baki okkar mönnum í Bidor, alla leið að fljóti, sem var tæpar fimmtíu mílur i burtu. Fyrir dögun voru þau öll á fótum og tóku að hlaða á Austinbílinn í grárri morgun- skímunni. Bílgarmurinn var vel hlaðinn: þrír fullorðnir, þrjú börn og allur þeirra far- angur. Bill Holland greiddi þjónunum laun og þau héldu af stað niður veginn til Kuala Lumpur, en ekki voru þau komin tvær mílur þegar hjól barðinn, sem slitinn var inn í striga, sprakk. Það varð ó- notaleg þögn meðan þau bösl- uðu við að koma varahjólinu á — þessu með blöðrunni. Á því komust þau hálfa mílu. í örvæntingu sinni ók Holland ......öparift yöur Maup A .railli margra. verzlanat -Austurstiaetá EIRIKUR víðförli Töfra- sverðið 92 Eiríkur og Yark ráðast á Mongól ana. Eiríkur slær mann niður og þrífur sverð hans. Taktu hestana, hrópar hann til Yarks. Ég bjarga þessu einn. Gráúlfur og lið hans hafa um- kringt björninn, sem snýst til varn ar og drepur nokkra menn. Þá heyra þeir hávaða frá tjaldbúðun- um og hlaupa strax til hjálpar fé- lögum sínum. En Þorkell og menn hans hafa einnig heyrt hávaðann. Rolf rífur sig skyndilega af Eiríki og leggur af stað og geltir ákaf- lega. — Á eftir honum, hrópar Þorkell. Hann hefur meira vit í kollinum en við hinir. Haldið áfram.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.