Tíminn - 27.03.1960, Blaðsíða 11

Tíminn - 27.03.1960, Blaðsíða 11
TÍMINN, sunnudaginn 27. marz 1960. 11 cázg. a£z< ^c cécti Fréitamaður blaðsins frétti af æfingu hjá Karla- kór Reykjavíkur nú fyrir fáum dögum og brá sér á vettvang í þeirri von aS fá að hlusta á og ef til vill rabba eilítið við söngstjór- ann. Ekið var í loftköstum vestur að Melaskóla, en þar æfa þeir, Er inn var komið var ekki nokkra sálu að sjá. Hvað var nú á seyði? Vor- um við einum degi of fljót- ir á okkur eða einum degi of seinir??? Brátt bar að húsvörðinn, er sagði Tímamanninum að hann væri nú einu sinni mættur í tíma. Eftir að hafa dokað við litla stund fóru söngmenn að tínast inn einn og einn, þar til þeir voru allir mættir 36 að tölu. Sigurður Þórðarson söngstjóri gaf fréttamanni fús- lega leyfi til að vera á æfing- unni. Rétt áður en æfingin hófst vatt einn söngmaðurinn sér að fréttamanni og spurði: — Ert þú nýr maður í kórn- um? Hvaða rödd syngur þú? — Strigabassa, vinur, bara strigabassa, sagði ég og eru það orð að .sönnu, en þar sem ekki var hægt að láta manninn fara með það bætti ég við að ég væri frá Tímanum. Hvar eru bassarnir? Píanóið stóð úti í horni á salnum og allt of langt frá svo að það varð að færa það nær. Sigurður brá sér þá fram í and dyrið og kallaði: — Hvar eru bassarnir, ég vil fá fjóra bassa, þeir eru sterkastir og ættu þar af leiðandi að geta flutt eitt smá píanó. — Var þarna rétt til getið, þeir voru fljótir að koma píanóinu á sinn staS, en ef satt skal segja voru þeir ansi rauðir í framan. Síðan hófst æfingin og stóð lengi kvölds. Á þeim tíma varð frétta maður að hafa ofan af fyrir sér sjálfur. Meðal þess sem honum kom í hug þá var hve ósköp söngmennirnir gátu spennt upp á sér munninn án þess að fara úr kjálkaliði. í hópnum mátti sjá menn frá hinum ýmsu stétt um þjóðfélagsins svo sem: bak- ara, bónda, verzlunarmann, heildsala, iðnaðarmann, lög- regluþjón o. m. fl. Hafa sungi'ð 100 konserta í þremur heimsálfum Iílukkan var langt gengin í miðnætti er æfingunni lauk og fréttamanni gafst kostur á að ræða við söngstjórann. Einn kórmaðurinn skaut því að frétta manni áður en hann fór heim: — Ertu ekki með hellu? — Nei, en ert þú ekki hás? — Nei, ekki aldeilis, gæti sungið í aíla nótt. Eftir að söngurinn var þagnaður og söngmenn horfnir út í nóttina einn og einn spurði undirritaður: — Segðu niér Sigurður, hvað er langt síðan Karlakór Reykja- víkur var stofnaður? — Kórinn var stofnaður 3. janúar árið 1926 og voru söng- mennirnir þá eitthvað um 37. — Hvað eru margir af stofn- endum I kórnum nú eftir þessi 34 ár? — Við erum aðeins þrír eft- ir: — Hefur þú stjórnað kórn- um frá stofnun? — Já, en það er að segja að undanskildu einu ári, en þá Þeir syngja í 30 til 40 borgum Iagið, nema það að við munum syngja um 40 konserta í 30 til 40 borgum á sjö vikna ferða- lagi um Bandaríkin og Kanada. — Hvað syngið þið mörg lög á hverjum konsert? — Ja, eitthvað svona um 20 lög á rúmum tveim tímum. Sigurður sýnir fréttamanní tvö blöð frá Bandaríkjunum, „Musical America‘“ og „Music of America“. í báðum þessum ritum eru heilsíðu auglýsingar um ferð karlakórsins auk aug- lýsinga um heimsfræga kóra, hljómsveitir og balletta, sem Colombia hefur á sínum snær- um á þessu ári. Langar og strangar æfingar — Eruð þið að æfa nú undir Ameríkuferðina? — Nei, eiginlega ekki, held- ur erum við að æfa nú undir konsertana fyrir styrktarmeð- limina, en sá fyrsti verður á mánudaginn 4. apríl og verða þeir fimm í þetta sinn í Gamla bíói. Æfingarnar fyrir Ameríku ferðina byrja eftir páska og verða fram á haust með litlu hléi á milli. — Hvað eru styrktarmeðlim ir kórsins margir? — Þeir eru nú á milli 13 og 14 hundruð og fylla þeir því auðveldlega húsið í öll fimm skiptin, sem við .syngjum. Styrktarmeðlimirnir eru uppi- staða kórsins og byggist öll starfsemin á þeim og vil ég hér koma á framfæri' alúðleg- ustu þökkum til þeirra allra. Kórinn hefur aldrei fengið neina opinbera styrki til starf- seminnar. Þrír sólóistar með f förinni — Svo við snúum okkur aft- ur að Ameríkuförinni. Hvað Þessa mynd tókum vlð á æfing. unni í Melaskólanum. Við píanóið situr Fritz Weisshappel, en Sig- urður Þórðarson söngstjóri er fyrir aftan hann. verðið þið margir, sem farið vestur? — Við verðum alls 40, þar af þrír einsöngvarar, þeir Guð- mundur Jónsson, Kristinn Haljs son og Guðmundur Guðjónsson og Fritz Weisshappel.píanóleik ari. — Komu ekki margir Vestur íslendingar á konsertana, þegar þið voruð í Bandaríkjunum 1946? — Jú, t. d. 1 Winnipeg héld um við tvo konserta og í bæði skiptin fyrir fullu húsi eða um 10 þús. manns í allt og ég held að ég megi segja. að megnið af þeim væru íslendingar. Ég vissi dæmi um það að Beir kæmu nokkur hundruð mílur til að fá að heyra í okkur að heiman. Fréttamaður sér að hann er farinn að tefja Sigurð og þakk- ar fyrir sig um leið og hann óskar honum og kórnum góðs gengis i Vesturheimi. Er upp á blað var komið fletti undir- ritaður upp 1 Lögbergi frá 1946 og í blaði útgefnu 21. 11. stend ur neðst 1 grein einni: „Hópur- inn að heiman kom, söng og sigraði", og eflaust verður það eins nú. — jhm. Guðmundur Guðjónsson verður einsöngvari með kórnum var dr. Páll Ísólfsson stjórnandi kórsins. — Hvað heldur þú að þið hafið sungið marga konserta á ári síðan? — Við höfum gefið að meðal tali fimm konserta á ári fyrir utan það að syngja í útvarpið og fleira þess háttar. — Hvað heldur þú að Karla- kórinn hafi sungið oft á er- lendri grund? — Ég hef nú verið að taka það saman. Hann hefur sungið um 100 konserta í þrem heims álfum, þar af 56 konsertar í Bandaríkjunum og Kanada ár- ið 1946. Fara til Ameríku í október í haust — Hvenær fer kórinn til \meríku og hvað haldið þið marga konserta þar? — Við fljúgum héðan til New York 1. okt. í haust. Ferð in er farin á vegum Colombia Artists Management Inc. í New York, en þeir hafa ekki sent okkur áætlunina ■ enn, svo að við vitum harla Iítið um ferða- Linnea Hermannsson heitir sænsk kona, sem býr til tusku- brúður af slíkri snilld, að mörg söfn hafa keypt af henni brúð- ur, sem lýsa liðnum tímum og atburðum, og kirkjur hafa keypt af henni brúður, sem tákna trúarlega atburði. Hún hefur gert margar brúður, sem lýsa lífi fiskimanna í þorpinu, þar sem hún ólst upp og úr „Lancaster“-skólunum svoköll- uðu, sem áttu uppruna sinn í fátækrahverfum Lundúna, en voru teknir til fyrirmyndar um skólahald sums staðar í Sví- þjóð á síðustu öld. Þar voru saman nemendur af ýmsum ald ursflokkum og þeir eldri kenndu hinum yngri undir eft- irliti kennarans. Til frekari um vöndunar og uppörvunar voru hengd spjöld á nemendurna, sem á stóð t. d. „Iðin og dygg“, „Latur og lúsugur", eða „Heimskur, óhreinn og latur“. Þarna var börnunum kennd skrift á þann hátt að þau sóttu sjálf fjörusand, sem rennt var í kassa og valtað yfir með hjóli, sem strikaði Iínur i sandinn. Svo skrifuðu börnin í sandinn með fingrinum eða spýtu. Brúðumyndirnar, sem Linnea Hermannsson hefur gert af þessum skóla, eiga að vera á skólasafni í húsakynnum þar sem einmitt svona skóli var . fyrir um það bU hundrað árum. Snillingur í brúðugerð

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.