Tíminn - 12.04.1960, Page 8

Tíminn - 12.04.1960, Page 8
8 TÍMINN, þriðjudaginn 12. aprfl. 1960. JÓN Þegar gengið er frá borði eftir bryggjunni verður viktarskúrinn á hægri hönd. Þar ráða ríkjum Jón Pétursson og Sigurður Vig- fússon og vega allan afla sem berst á land á Akra- nesi. Starfið er ábyrgðarmikið og krefst nákvæmni, því á skýrsl- um þei'rra félaga byggjast all- ar upplýsingar um aflamagnið. — Skýrslufarganið er alveg að drepa okkur, segir Jón Pét- ursson, og er alltaf að aukast. Það er Sfldar- og fiskimjöls- verksmiðjan sem rekur vigt ina og við þurfum að semja skýrslur fyrir frystihúsin og útgerðirnar. Þar að auki fyrir Fiskifélagið og Útflutningssjóð I og alls kyns stofnanir. Við þurfum líka að svara fyrir- spurnum allan sólarhringinn. Það eru til jafnaðar 200 sím- töl á dag, bæði innanbæjar og utan. Blöðin fá t.d. allar upp- Iýsingar hjá okkur. Sigurðui Vigfússon sýnir okkur siðusíu aflaskýrslur. Frá Akranesi róa 21 bátur og dag- inn áður en blaðamenn Tím- ans voru á ferð, höfðu þeir aflað 407 Iestir. Þá var „Sigrún" aflahæsti báturinn það sem af er ver- tíðinni (7. apríl). Afli hennar var orðinn 735 lestir. Skipstjðri á „Sigrúnu" er Helgi Ibsen, en útgerðarmaður Sigurður Hall- bjarnarson. „Sigurvon" er næst í röðinni, 679 lestir. Skipstjóri er Þórður Guðjónsson en Fiski ver h.f gerir bátinn út. „Sig- urður“ er þriðji í röðinni, nýr nátur sem kom ekki til Akra- ness fyrr en í febrúarbyrjun og hefur þó aflað 635 lestir. Skip- stjóri er Einar Árnason en út- gerðarmaður Sigurður Hall- björnsson. SIGURÐUR l*--------------------------/ HRAEFNI Litast um í frystihúsi HB á Akranesi og rætt við Rafn Péturs- son aðalverkstjóra Ungu stúlkurnar eru í minnl hluta. — ÞaS verSur aldrei hægt að framleiSa fyrsta flokks vöru úr lélegu hráefni, sagði Rafn Pétursson aðalverk- stjóri í frystihúsi Haraldar Böðvarssonar & Co á Akra- nesi í viðtali við blaðamenn Tímans. Við sitjum í skrif- stofu Rafns þar sem hann fylgist með pökkunarstúlk- unum í gegnum stóran glugga. ÞaS er starfað af fullum krafti, færiböndin flytja fiskinn án afláts úr flökun- arvélinni til stúlknanna sem hafa hraðann á og pakka vörunni inn í skrautlegar umbúðir. f gær höðu borizt á land rúmlega 400 lestir. Af þeim afla höfðu bátar Haraldar, 10 að tölu, aflað 116 lestir. Þó var ekki unnt að frysta nema lítinn hluta af því aflamagni, einungis 12 lestir. Það sem eftir er, fór í skréið og salt. — Við flokkum fiskinn eftir fremsta megni, þannig að aðeins úrvalið fer til frystingar, heldur Rafn áfram, — fyrst er fiskurinn flokkaður um borð í bátun- um. Við tökum aðeins lif- andi fisk. Svo er flokkað aftur þegar kúttað er. Loks er tínt úr honum áður en hann fer i flökunarvélarn- ar. Rafn Pétursson er ungur maður, sem hefur starfað við frystihúsið í sex ár og stjórnar rúmlega 120 manns við vinnu. Hann er Skagfirð ingur að uppruna skipasmið ur að iðn, segist hafa kom- ist í núverandi stöðu „fyrir tilviljun“. En jafnvel aðvíf- andi fréttasmali þarf ekki lengi að fylgjast með til að sjá að hér var á ferðinni valinn maður sem leggur sig allan fram um að gera hina dýrmætu útflutnings- vöru okkár sem bezta úr garði. Prystihúsið starfar aðal- lega að síldarframleiðslu, á síðastliðnu ári voru fram- leidd 21 þúsund lestir af sild til útflutnings en á sama tíma 3580 lestir af fiski. — Við gerum allt sem við getum til að hafa vöruna sem bezta, segir Rafn, — en sleppum þó ekki við kvart- anir fremur en aðrix. Það er sérstaklega erfitt að eiga við hringorminn í fiskinum. Hann er samlitur fiskinum og illt að koma augá á hann, Jafnvel þótt við gegnumlýs um fiskinn og tökum visst magn til prófunar. Húsmóð ir í Ameríku sem kaupir fiskinn og finnur i honum hringorm, litur öðrum aug- um á málið en við hér heima. Það má segja með nokkrum 'sanni að við fs- lendingar séum aldir á hringorminum og við höfum aldrei kennt okkur meins af þeim sökum. En við verð um að framfylgja kröfum kaupandans. — Það er við fleiri vanda- mál að stríða, segir Rafn, — það er slagvatnsvandamál- ið. Fiskurinn er afar við- kvæmur og vandmeðfarinn, hann má ekki liggja um- hirðulaus í meir en hálf- tíma. í lestunum drekkur timbrið í sig safann úr fisk- inum ef ekki er farið að öllu með gát. Sjómennirnir verða að gera sér ljóst að þeir hafa undir höndum verðmæti sem rýrnar ef ekki er rétt með farið. Það á ekki að vera neitt leyndarmál hvernig meðferð in hefur verið á okkar dýr- mæta hráefni. Við þurfum einmitt að fá almennings- álitið í lið með okkur, það veitir • aðhald. Við þurfum breyttan hugsunarhátt. — Telur þú að rétt sé að borga sjómönnum jafnt fyrir aflann án tillits til hvernig honum er skilað á land? — Nei, ég tel það óheppi- legt fyrirkomulag, svarað Rafn hiklaust, — sjómenn myndu gæta aflans betur ef um gæðamat væri að ræða og verðflokkun eftir gæð- um. Við erum allir mann- 'legir og hyllumst til að fá sem mest fyrir lítið. Það er ekki neinum sérstökum aðila að kenna. Við eigum sameiginlegá sök. — En að- aðalatriðið er að kippa hlut- unum í lag. Samkeppnin um fisk- markaðina harðnar með hverjum degi. Keppinautar okkar standa betur að vígi, framleiðslustörf þeirra eru betur skipulögð og lögð meiri áherzla á vöruvönd- un. Við gátum fyrir nokkrum árum látið slag standa, því hráefnið okkar var betra. Þess vegna gátum við kom- ið með betri fisk. Miðin voru nálæg og allt veitt á línu. Ástandið hefur stórum versnað síðan netaaukning Frásögn: Jökull Jakohsson Myndir: Kristján Magnússon in varð svona gífurleg. Hrá efnið versnaði um allan helming. Við framleiðum aldrei úrvalsvöru úr lélegu hráefni. Það er furðuleg öfugþró- un að hráefnið skuli hafa versnað á sama tíma og skil yrði hafa batnað. Við búum við betri skilyrði en fyrir nokkrum árum. Miklu betri. Að lokum segir Rafn: Og samt er útkoman svona. — Það hefði einhverntíma verið rannsakað auðvirði- lega reikningsdæmi en það, hvort borgaði sig betur að nota net eða línu. Bátarn- ir hrúga netatrossunum gegndarlaust í sjóinn, allt kostar þetta mikinn gjald- eyri. Netin týnast og bát- arnir leggja meira en þeir ráða við. Fiskurinn orðinn

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.