Tíminn - 12.04.1960, Síða 9

Tíminn - 12.04.1960, Síða 9
igyfcMJNN,. Jþriffiudagúm 12.ajBril 1960. 9 Ofan: í hópnum eru margar húsmæður. NeSan: Leltað a3 hringorminum. of gamall þegar í land er komið. Viff höfum meiri mögu- leika en allar þjóöir aðrar til að framleiða úrvalsvöru úr fiskinum okkar og þess vegna er sárgrætilegt hvern ig málum er komið. Þetta verður að breytast til batn- aðar. Að endingu göngum við um frystihúsið í fylgd með Rafni. Hann sýnir okkur fyrst geysistóran sal þar sem tekið er á móti fiskin- um. Bílarnir aka fiskinum úr bátunum og skiia hon- um af sér í móttökuna. Það an fer hann eftir færibandi í þvottavél og síðan upp á efri hæð hússins í afhaus- unarvél. — Leiki einhver minnsti vafi á því að fisk- urinn sé hæfur til frysting- ar er hann látinn j skreið. En úrvalsfiskurinn heldur síðan áfram í flökunarvél- ina, sem stillir sig sjálf eft- ir stærð fisksins, síðan í roð flettingarvél og að lokum inn í salinn þar sem stúlk- urnar vinna við pökkunina. Þar er hann gegnumlýstur til að ganga úr skugga um að hringormar leynist ekki í honum, síðan látinn í um búðir, mismunandi eftir því hvort hann á að fara til Ameríku eða Rússlands, Hollands eða Svíþjóðar. Það fer ekkert til spillis af fiskinum, allt er notað og komið í verð á einhvern hátt. Beinin eru möluð í þar til gerðri kvörn, síðan fryst í stórum hellum og flutt út sem loðdýrafóður. Fiskúrgangurinn er hakkað ur í „fars“ og flutt út til manneldis. Þama er unnið af miklu kappi, karlar og konur leggj ast á eitt að gera vöruna sem bezta úr garði. í frysti RAFN húsinu vigna rúmlega 120 manns eins og áður er sagt. — Það er mest kvenfólk, sem starfar hér, segir Rafn, — það er hörgull á karl- mönnum í frystihúsin en það er óhætt að fullyrða að kvenfólkið á Akranesi hef- ur bjargað þessum atvinnu vegi. Og mestur hlutinn er giftar konur sem eiga fyrir heimili að sjá og mörgum börnum. Þær leggja mikið að sér. Eg á bágt með að skilja hvernig þær geta stundað starfið hér jafn- hliða heimilisstörfunum. En þær slaka aldrei á. Okkur lék hugur á að rabba við eina úr hópi pökk- unarkvennanna og gáfum okkur á tal við frú Halldóru Halldórsdóttur. Hún er elzt þeirra sem starfa við pökk- unina, 70 ára að aldri en rösk í hreyfingum og kvik í fasi og engin ellimörk á henni að sjá. — Hvað ert þú búin að starfa hér lengi, Halldóra? — Ég fór að vinna árið 1951 þegar ég varö ekkja, svarar frú Halldóra, — ann- ars byrjaði ég miklu fyrr hjá Haraldi Böðvarssyni, ég var um tvítugt minnir mig. Þá var hann rétt að byrja hér og umsvifin ekki eins mikil og nú, blessaður vertu. En alltaf hefur verið jafn indælt að vinna fyrir hann. Þá unnum við í saltfiski og breiðslu. — Hvernig stendur'á því að hér er svo lítið af ungum stúlkum? — Þær fara allar í burtu, svarar Halldóra, en sumar koma bær aftur. Svoleiðis var það með mig, ég fór suð ur á Kirkjusand að vinna þegar ég var ung. — En þú hefur snúið heim? — Já, ég kom aftur heim og maðurinn minn var héð- an úr plássinu. — Þú hefur kannski ver ið búin að hitta hann áður en þú fórst? — Jæja, svarar Halldóra og lætur það svar nægja. — Hvernig var að vinna á Kirkjusandi í gamla daga? — Kaupið þætti ekki hátt núna, 10 krónur á viku og af því urðum við að kaupa fæði. Við áttum að fá frían fisk og hafragraut. Þá var fiskurinn kýldur sem kallað var, tekin hnakkakúlan og við fengum þær að borða. Meðan beðið var eftir skipunum með aflann, urð- um við stúlkumar að bera möl í börum og búa til stakk stæði. Og nú er búið að eyði leggja þetta allt fyrir okk- ur. Það er furðulegt að sjá- Þarna var ég í fjögur sum ur. Eg man að eitt sumarið átti ég 120 krónur afgangs af kaupinu mínu eftir 22 vikur, þá hafði ég auðvitað keypt mér sitthvað af föt- um. Eg dubbaði mig upp, blessaður vertu. Og þetta þótti gott þá. Þá kostaði far gjaldið milli Akraness og Reykjavíkur 25 aura . Vinnuveitandi okkar var Th. Thorsteinsson, var van- ur að bjóða okkur tvisvar í bíó og kaffi á eftir. Og þá voru böll í Bárunni og ekki má gleyma pakkhúsböllun- um. Þau voru nú aldeilis fjörug. Þau voru haldin að lokinni vinnunni áður en fólkið tók sig upp og fór heim. Það var nóg að gera og engin kvartaði þótt starf- ið væri erfitt. Við vorum látnar gera skúturnar hrein ar. Annað árið sem ég vann á Kirkjusandi var stofnað Verkakvennafélagið Fram- sókn, og þá átti að reka all- ar heim, sem voru utanbæj- ar. En það varð ekkert úr þvi. Frú Halldóra Halldórs- dóttir er fulltrúi þeirra kvenna á Akranesi sem hafa HALLDÓRA ekki látið sér nægja að halda heimili og ala upp tápmikil börn, heldur tekið fullan þátt í atvinnulifinu sjálfu og lagt sinn skerf að mörkum til þess að afla í þjóðarbúið. Þrátt fyrir há- an aldur er hún kát og hress og gengur glöð að verki sínu enda getur hún litið ánægð um öxl. Maður hennar var einn af dugmestu skipstjór um á Akranesi og þau hjón hafa átt fimm börn sem hafa fetað ósleitilega í fót- spor foreldra sinna. — Son ur hennar einn, Einar Árna son, skipstjóri á Sigurði, nýju skipi, sem kom til Akraness í byrjun febrúar- mánaðar, en er samt sem áður þriðja aflahæsta skip ið á vertíðinni. Og frú Halldóra er því fegnust þegar hún getur byrjað verk sitt aftur og hefur svarað spurningum forvitins blaðamanns. Silungsveiðin er hafin Silungsveiði hófst 1. apríl s 1. Lítið mun þó hafa veiðst af silungi ennþá, en margir hafa rennt, sumár þegar 1. apríl, en ekki hlupu allir samt 1 apríl. Veiðin er mjög háð hita- stigi og er enn ekki komin í gott horf, þrátt fyrir hin ein- stöku hlýindi og blíðviðri und anfamar vikur. Mest mun sókn veiðimanna Ölfusi, en rennt mun hafa verið í flestar sprænur, og veiði hefur verið misjöfn. Veiði er þó ekki leyfð í Rang ám — nema í efri hluta ytri Rangár — fyrir ofan Árbæj- arfoss. Tvær tegundir Gæði fisksins eru misjöfn, en aðallega er um tvær teg- undir af silungi að ræða: Fisk, sem hrygndi í fyrra- haust og er á leið til sjávar horaður og slæptur — og svo ; geldfisk, sem gekk upp í j árnar í fyrra, og er hann bet- ur á sig kominn — hinn ágætasti fiskur. Litið hefur verið farlð í Þingvallavatn enn þá. Vatn- ið er kalt og lítil veiðivon, enda tiltölulega stutt síðan ísa leysti að fullu af vatninu. — Óvenju lágt er í vatninu núna. —t.— Afli GrundarfjarSarbáta Grundarfirði, 4. apríl. Afli Grundarfjarðarbáta frá ára- mótum til 31. marz er 2663 tonn í 321 róðri. Aflahæstur er Grundfirðingur II, með 459 tonn í 59 róðrum. Skip- stjóri á Grundfirðingi II er Elís Gíslason. Þá kemur næst- ur Blíðfari með 469 tonn í 59 róðrum, Farsæll með 379 tonn í 28 róðrum. Þess ber að gæta, að Farsæll hóf ekki róðra fyrr en í byrjun marz, svo í rauninni er hann lang aflahæstur. Farsæll á einnig mestan afla eftir eina nótt, 43 tonn. Skipstjóri er Sgurjón Halldórsson. Næstur er Sæ- fari með 355 tonn í 56 róðr- um, Ingjaldur með 320 tonn í (Framhald á 15. síðu).

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.