Tíminn - 23.04.1960, Síða 4

Tíminn - 23.04.1960, Síða 4
4 TÍMINN, laugardaginn 23. aprfl 1960. SJÖTUGUR: Magnús Kjaran, stórkaupmaður Auglýsing FRÁ BÆJARSÍMA REYKJAVÍKUR Ekki alls fyrir löngu fregn aði ég, að Magnús Kjaran, bókasafnari og stórkaupmað- ur, yrði sjötugur 19. apríl. Það kom mér satt að segja á óvart. Maðurinn er svo ung legur, og fáa þekki ég, sem mér finnst jafn hressilegt að blanda geði við um bækur og menn. En Magnús Kjaran er einn með bókfróðustu mönn- um hérlendis, og gildir það jafnt um íslenzkar sem er- lendar bókmenntir. Einkabókasafn hans er bæði stórt og vandað, þar er að finna bækur, sem alls ekki eru til annars staðar, og nefni ég til gamans bók, sem hann lét eitt sinn prenta sem handrit í aðeins einu ein- taki, er það nokkurs konar ævisaga hans fram að fert- ugu, og nefnist hún „Létt- skýjað". Slík útgáfustarf- semi er víst ekki leyfileg lengur. Landsbókasafnið krefst réttar síns. Já „léttskýjað“ er einmitt táknrænt fyrir Magnús Kjar an. „Heldurðu, að þú náir í nr. 1 af þessari eða hinni bókinni“. Eitthvað á þá leið hefi ég stundum spurt hann. „Já, já, blessaður vertu, það kemur allt“. Þannig og því- umlík eru svör hans, það er ávallt léttskýjað! Magnús Kjaran safnar nr. 1 af tölusettum bókum og á þeg ar álitlegt safn þeirra. En þeir munu vera fáir, sem binda sig við ákveðið númer tölusettra rita. Sigurður próf essor Nordal sagði mér frá því vorið 1938, að hann safn- aði nr. 7, og sá ég hjá hon- um nokkrar bækur með bví númeri. Undirritaður hefur s.l. 23 ár safnað nr. 9. En margri bókinni missir maður af, það eitt er víst. Magnús Kjaran er meira en venjulegur bókasafnari, hann er líka lærður bókfræð ingur, og hefur skrifað rit- gerð um tölusettar , bækur sem birtist í Árbók Lands- bókasafnsins fyrir árin 1957 —1958, sem kom út s.l. haúst. Minnist ég með ánægju sam skipta okkar varðandi þá rit gerð. Eg vona, að Magnús Kjaran fyrirgefi þó, að ég geti þess, að hann hefur í smíðum ritgerð um íslenzk tímarit, útgáfur þeirra etc. Bókamaður — Kaupsýslu- maður: „Tveir eru heimar hsyla ólíkir“, segir Grímur Thomsen í upphafi Búa- rímna. Eg hefi stundum hug- leitt með sjálfum mér það einstæða fyrirbrigði, að til skuli vera j stétt kaupsýslu- manna annar eins maður og Magnús Kjaran. Hann þekk- ir innihald bóka sinna. Það á því miður við um alltof fáa, og slíkt væri alveg óhugs- andi annars staðar en á ís- landi. Að undangengnu verzlunar námi gerist Magnús árið 1918 meðeigandi verzlunarinnar Liverpool í Reykjavík, en einkaeigandi hennar árin 1925—30. Árið 1930 stofnaði hann hina landskimnu heild vérzlun sína, og á hún um þessar mundir 30 ára starfs- afmæli. Einkum er Magnús Kjaran mikill ávaxtainnflytj andt. En honum nægði ekki að flytja inn það, sem í ask- ana er látið. Hann vildi líka hasla sér völl á sviði menn- ingarmála, og því var það lýðveldishátíðarárið 1944 að mig minnir, sem hann stofn aði Bókfellsútgáfuna, sem er með stærstu bókaútgáfufyrir tækjum hérlendis og hefur gefið út mikið af góðum bók um, um sögu, ættvísi og fl. þjóðlegan fróðleik. Þetta átti að vera stutt af- mælisgrein, og verð ég því að slá botninn í hana, ég skrifa hana sem fyrr undan prent- aranum, margt er þó ósagt, sem bíður síns tíma. Þess skal þó getið, að árið 1930 var Magnús Kjaran framkvæmda stjóri Alþingishátíðarinnar og gegndi því starfi af mik- illi prýði. Kvæntur er Magnús Kjar- an Sofíu dóttur Franz sýslu manns Siemsen, og eiga þau nokkur mannvænleg börn. — Þau hjón eru nú stödd i Kaup mannahöfn. Það er mikil gæfa fyrir hvert þjóðfélag að eiga slíka menn sem Magnús Kjaran. Hann hefur hafizt af sjálf- um sér, traustur afkomandi fornrar bændamenningar, sem nú er liðin undir lok. — Drakk ungur í sig safann úr íslenzku þjóðlífi, jafnt bók- lega sam verkelga. Gamall ungmennafélagi. í einu orði sagt: hugsjónamaður. Megi hann lengi lifa! Reykjavík, 19. apríl 1960. Stefán Rafn. (Grein þessi hefur beðið hjá blaðinu vegna þrengsla, í þrjá daga). Athygli símnotenda skal vakin á því að þegar símnotandi hringir í símanúmer og leggur heyrn- artólið á áður en símtali er lokið rofnar sam- bandið samstundis. Munið að leggja ekki heyrnartólið á fyrr en sím- tali er lokið. Bæjarsfmastjórinn Leiguskip óskast Vita- og hafnarmálaskrifstofan óskar eftir að taka skip á leigu næstu mánuði til að annast vöru- flutninga vegna vitanna og til annarrar þjónustu fyrir vita- og hafnamálin. Tilboð óskast sent vita- og hafnamálaskrifstof- unni fyrir næstu mánaðamót. þar sem tilgreint er nafn skipsins, stærð þess og annað, sem máli skiptir. Vita- og hafríamálastjóri HAGSÝN HÚSMÓÐIR pnarar heimili sínu mikil útgjöld með því að sauma fatn- aðinn á fjölskylduna eftir Butterick sniðum. BUTTERICK-SNIÐIN flytja mánaðarlegar tízkunýj- ungar. BUTTERICi? 5Mil»IN err og mjög auðveld í notkun. ei aiað á karla, konur og oorn. Nokkra góða verkamenn vantar á Reykjavíkur- flugvöll. Trygg atvinna til hausts. Enn fremur vantar nokkra bifvélavirkja á vélaverkstæði flug- vallarins. — Upplýsingar í slma 1-7430. Flugvallarstjóri Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við fráfali og jarðarför móður okkar Ólafíu Einarsdóttur frá Tannstaðabakka. Elín Brynjólfsdóttir, Hanna Brynjólfsdóttir, Einar Brynjólfsson, Ragnar Brynjólfsson, Bragi Brynjóifsson. Sölti'-t^íSír: S.I.S. Austurstræti og kaupfélögin um land allt. Atvinna að pii úr 600 gerð- um aí Buttenck-sniðum hverju

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.