Tíminn - 29.04.1960, Blaðsíða 4
4
T f MI N N, föstudaginn 29. apríl 1960.
ytfjr,?",'-,—rj- ••' •?' yw* ■""/ ' 'V.'VV"""'" '"!
Ferté Gaucher — flugskýlið
er gert úr bárujárni Gamall
notaður strætisvagn frá París
er notaður sem- flugturn.
Þetta er háborg hinnar nýju
skemmtuna*- fransks æsku-
lýðs: Fallhlífarstökksins, sem
á síðustu árum er orSiS hin
sanna þjóðaríþrótt Frakka.
Æskufólk er í meirihluta í fall-
hlífaklúbbnum. Með leyfi föður og
móður getur unga fólkið fengið
inngöngu í fallWífarklúbb, er það
er 16 ára garnalt. Fólk fær skír-
teini eftir 15 stökk. Eftir 30 vel-
heppnuð stökk fær fólk .svonefnt
„veteram próf“.
Á Ferte Gaucher flugvellinum,
60 km. fyrir vestan París er mikið
líf í tuskunum. Hundruð unglinga
eru á stjái í kringum flugskýlin.
Grannvaxin stúlka dregur á eftir
sér útbúnað, sem sýnist mörgum
sinmum stærri en hún er sjálf.
Svífa einn milli himins og jarðar —
fallhlífarstökk þjóðaríþrótt Frakka
Það krefisit mikillar þolinmæði,1
að iðka fallMífarstök. Fyr.st er,
tekur að kvölda, hefur vind lægt,
það mikið, að hægt er að kveikja I
á græna ljósinu, sem táknar það
að nú sé óhætt að stökkva. ,
Tveggja hreyfla De Havilland-;
vél, sem tekur átta manns, veltur
yfir grænan grassvörðinn.
Það er undarlegt, að þessi hóp-
ur kjarkmikilla unglinga, sem án
þess að depla augum kastar sér út
í geiminn í 2300 metra hæð, skuli
daginn eftir sitja við skrifstofu-
borð og vinna í verksmiðju dag-
inn eftir. Hvað hefur fengið þetta
fólk til að velja einmitt þessa
íþrótt?
— Ferskt, loft segir einn.
22ja ára gömul stúlka, rjóð í
kinnum og með úfið hár gaf eftir-
farandi skýringu:
Milli himíns og jarðar
— Ég veit ekkert dásamlegra
en að svífa mulí himins og jarðar,
alein. Mig dreymir um þessar sek-
úndur alla vikuna. Ég skyldi
stökkva á hverjum degi, ef ég
hefði tækifæri til. Þetta er dásam-
legt ástand, sem lýkur fyrst er
jörðin kemur skyndilega á móti
manni, þá vaknar sjálfsbjargar-
viðleitnin eða hvað maður á nú
að kalla það, maður tekur í spott-
ÚTBOÐ
TilboS óskast i að byggja hluta af barnaskóla við
Hamrahlíð.
Uppdrátta og skilmála má vitja í skrifstofu vora,
Traðarkotssupdi 6. gegn 500 kr. skilatryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurbæjar.
Tilkynning
um atvinnuleysisskráningu
Atvinnuleysisskrárung samkvæmt ákvörðun laga
nr. 52 frá 9. apríl 1956, fer fram í Ráðningarstofu
Reykjavíkurbæjar Hafnarstræti 20, dagana 2., 3.
og 4. maí þ. á., og eiga hlutaðeigendur, er óska að
skrá sig samkvæmt lögunum að gefa sig fram kl.
10—12 f. h. og kl. 1—5 e. h hina tilteknu daga.
Óskað er eftir að þeir, sem skrá sig séu viðbúnir
að svara meðal annars spurníngunum:
1. Um atvinnudaga og tekjur síðustu þrjá mánuði.
2. Um eignir og skuldir.
Reykjavík, 29. april 1960.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
ann, fallhlífin breiðist út og nú
hefst nýr spennandi leikur að
stýra sjálfum sér og fallhlíf sinni
að hinu setta marki ...
Hvítur kross
Márkið er merkt sem stór, hvít-
ur kross í grasinu. Hinir æfðustu
lenda hér um bil alltaf í markinu.
Með því að taka í böndin og með
líkamshreyfingum, getur stökk-
maðurinn sjálfur stjórnað hraða
og stefnu. Tveir stökkmenn geta
nálgazt hvom annan í loftinu og
hjálpað hvor öðrum.
Átján ára gömul stúlka var að
stökkva sitt þriðja stökk fyrir ut-
an Lyon fyrir ári .siðan. Kennari
hennar stökk á undan henni. Er
hann leit upp, sá hann stúlkuna
koma þjótandi, en fallhlíf hennar
hafði ekki opnazt. Kennarinn gat
fært sig inn á sömu braut og hún
og gat á síðasta augnabliki gripið
í spottana, er hún og hin lokaða
fallhlíf hennar fóru fram hjá hon-
um. Þau lentu heilu og höldnu í
faðmlögum, en falihlif hans bar
þau uppi. Þau eru nú gift.
Brennivín bannað
En slys teljast til undantekn-
ingatilfella. Þegar fjölskyldan
kveður fallhlífarmanninn, segir
hún ekki: Vertu varkár, þegar þú
stekkur, heldur : Aktu nú varlega.
Seinna um kvöldið, þegar stökk-
um er lokið, safnast fólk saman
og hlustar á gagnrýni kennaranna.
Stranglega er bannað að neyta
áfengis. Einstaka fólk missir
kjarkinn í flugvélinni. Ljóshærð
stúlka um tvítugt hefur misst
kjarkinn. Meðan hinir stukku
einn á fætur öðrum, sat hún og
fól andlitið í höndum sér. Mál
hennar er rætt af miklum ákafa.
Allir þekkja vandamál hennar.
Hún gleymir þyí að skammaist sín
en reynir sjálf að gera sér grein
fyrir hinum undarlega ótta, sem
greip hana. Hún veit að þessi ótti
mun grípa hana aftur á morgun,
en hún veit einnig að eigi hún að
losna við hann, verður hún að
stökkva.
Það er ekki víst að hún sofi
mikið í nótt, en það er alveg ör-
uggt mál, að hún stekkur á morg-
un.
Sumarföt
Drengjaíöt 6—14 ára.
Matrósaföt og kjólar
frá 2—P ára.
Telpnakápur.
Drengjatrakkar.
Drengjabuxui. allar stærðir.
Allt á gamla verðinu
Vesturgötu .12. — Sími 13570.
11 ára drengur
óskar að komast á gott
heimili í sumar. Uppl. í
síma 10147.
0 ára telpa
óskar eftir að komast í sveit í
sumar. Tilboð sendist blaðinu
merkt „D. T.“
Skógrækt ríkisins
Verö á trjáplöntwn voriö 1360
Skógarplöntur
Birki 3/0 pr. 1000 stk. kr. 500,00
Birki 2/2 — — 1.000,00
Skógarfura 3/0 — — 500,00
Skógarfura 2/2 — 800,00
Rauðgreni 2/2 — — 1.500,00
Blágreni 2/2 — — 1.-500,00
Hvítgreni 2/2 — 2.000,00
Sitkagreni 2/2 — 2.000,00
Sitkabastarður 2/2 — 2.000,00
Garðplöntur
Birki, 50—75 cm pr. stk. kr. 15,00
Birki, undir 50 cm. — 10,00
Birki, í limgerði 3,00
Reynir, yfir 75 c m. — 25,00
Reynir, 50—75 cm. — 15,00
Reynir, undir 50 cm. — 10,00
Alaskaösp, 50—75 cm — 10,00
Alaskaösp, yfir 75 cm. • — 15,00
Sitkagreni % — 15,00
Sitkagreni 2/2 — 10,00
Sitkabastarður 2/2 io,00
Hvítgreni 2/2 — 10,00
Blágreni % — 15,00
Runnar
Þingvíðir pr. stk. kr. 5,00
Gulvíðir — 4,00
Sólber io,00
Ribs — 20,00
Ýmsir runnar pr. stk.kr. 10,00—20.00
Skriflegar pantanir sendist fyrir 15 maí 1960. Skógrækt
ríkisins, Grettisgötu 8, eða skógarvörðunum. Daníel
Kristjánssyni, Hreðavatni, Borgarfirði; Sig. Jónassyni,
Laugabrekku, Skagafirði; Ármanni Dalmannssyni. Akur-
eyri, ísleifi Sumarliðasyni, Vöglum. Fnjóskadal; Sigurði
Blöndal, Hallormsstað og Garðari Jónssyni, Tumastöð-
um, Fljótshlíð. Skógræktarfélögin taka einnig á móti
pöntunum og sjá flest fyrir dreifingu beirra til einstak-
linga á félagssvæðum sínum.
Hjartanlega þakka ég ykkur öllum, sem glödduð
mig á fimmtugsafmæli mínu með hlýjum kveðjum.
skeytum, gjöfum og hehívsóknum.
Guð og gæfan fylgi ykkur.
Magnús Hofdal Harfmannsson,
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vlð andlát og
jarðarför konu minnar og dóttur,
Jórlaugar Guðrúnar Guðnadóftur,
Lómatjörn.
Sverrir Guðmundsson,
Sigriður Guðmundsdóttlr.