Tíminn - 29.04.1960, Qupperneq 5
TÍMINN, föstudaginn 29. apríl 1960.
5
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. Rit-
stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés
Kristjánsson. Fréttastjóri: Tómas Kaxlsson.
Auglýsingastj.: Egill Bjarnason. Skrifstofur
í Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305.
Auglýsingasimi: 19523. Afgreiðslusími:
12323. — Prentsmiðjan Edda h.f.
Landsbyggðin rænd
Framsóknarmenn héldu því fram. aS „kjördæma-
byltingin“ væri upphaf að allsherjai sókn gegn hinum
dreifðu byggðum. Tilgangurinn með henni væri sá. að
lama hið pólitíska vald landsbyggðarinnar. Að þeim á-
fanga náðum mundi næsta skrefið verða árás á fjár-
hagslegt sjálfstæði héraðanna. Það herhlaup væri ekki
framkvæmanlegt fyrr en að afstaðinni kjördæmabylt-
ingu í þá átt, að skerða stórlega áhrif dreifbýlisins á lög-
gjafarsviðinu.
Andstæðingar Framsóknarmanna viðurkenndu að
sjálfsögðu ekki að þessi væri tilgangur þeirra. Það er
fáránleg fjarstæða að hugsa sér að við förum að krenkja
kosti okkar kæru fylgismanna úti á landsbyggðinni, sögðu
þeir. Fagurt skal mæla en flátt hyggja. Margir trúðu
og var vorkunnarmál Kjördæmabyltingin tókst. En
hvað er svo komið á daginn? Nákvæmlega það, sem
Framsóknarmenn sögðu fyrir. Á fyrsta þingi eftir bylt-
inguna verður fláræðið opinbert. Ríkisstjórn íhalds og
krata undirbýr gripdeildir úti um allt land. Þeir fjár-
munir, sem bændur, verkamenn, sjómenn og aðrir þeir,
sem bólfestu eiga úti um land, hafa sparað saman á
undanförnum árum og áratugum í því skyni að nota þá
til þess að létta sér lífsbaráttuna ýmist í sambandi við
sinn einkarekstur eða til félagslegra framkvæmda, skulu
nú af þeim teknir og fluttir suður i Seðlabanka. Jafn-
vel innlánsdeildir kaupfélaganna mega ekki vera 1 friði.
íhaldsstjórninni er það ljóst, að samvinnufélögin hafa
verið traustasti grundvöllurinn undir fjárhagslegri af-
komu fólksins úti um land og því er það ekki lítilsverð-
ur liður í hernaðaráætlun hennar að lama þáu í sömu
átt miðar það áform, að útsvör skuli vera hærri úti á
landi en í Reykjavík.
í tíð vinstri stjórnarinnar var stórátak gert til þess
að stöðva fólksstrauminn úr héruðunum. Nú er að
því stefnt að opna allar flóðgáttir fyrir honum á ný.
í kjölfar þess fjárnáms, sem ríkisstjórnin undirbýr. kem-
ur fólksflóttinn. Það er eins víst og dagur fylgir nótt.
Og þau straumhvörf verða öllum til ills. Eða finnst Reyk
víkingum, sem nú mega búast við vaxandi innflutningi
fólks í bæinn vegna glánalegra glapræðisverka ríkis-
stjórnarinnar, svo blómlegt um að litast á atvinnusvið-
inu, að þar megi þrengjast um? Er ástandið í húsnæðis-
málum Reykjavíkur sv<"> gott, að það megi við því að
versna vegna aukins aðstreymis í bæinn? Fáir munu
treysta sér til að svara þessum spurningum játandi.
Þannig verða þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar öllum
til meins, einnig þeim, sem hún telur sig þó sjálfsagt
vilja vera væn og góð. Stórgróðamenmrnir gera sér vonir
um meiri peningaráð og ódýrara vinnuafl vegna offjölg-
unar í þéttbýlinu. í þeirri von eru þessir refir skornir.
Nýja haftastefnan
Þótt stjónarliðið leggi nú stund á fjarstæðan áróður,
er fátt fjarstæðara í áróðri þeirra en það, að ráðstafanir
stjórnarinnar stefni að því að draga úr höftunum.
Minnkandi kaupgeta lágíaunafólks og millistétta er vitan-
lega ekki annað en aukin höft. Hækkun vaxtanna er ekk-
ert annað en aukin höft. Sama gildir um samdrátt útlána.
Vitanlega eru það líka aukin höft, þegar allar fram-
kvæmdir eru gerðar dýrari.
Hér er því markvisst stefnt að því að auka höft, sem
draga úr getu og framkvæmdum almennings Stóreigna-
menn fá hins vegar aukið frjálsræöi. Hér er stefnt að því
að þrengja að hinum morgu til hags fyrir hina fáu. Hér
er verið að framkvæma eina þá ranglátustu haftastefnu,
&em til er.
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
?
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'e
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
)
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
ERLENT YFIRLIT ...
* V* V»V»V. V*V»V» V»V*-V> V.V*-V_*
Raunaleg endalok baráttumanns
Stríftsstefina og einræðishineigð urtSu Syngman Rhee atJ falli
ÁRIÐ 1896 gerðu st( ídentar í
Seoul uppþot, er beimlist gegn
keisarastjórn þeirri, s*eun þá sat
að völdum í landinu. ur töldu
stjórnarfar hennar of ófrjáls-
legt og auðsveipni hen nar við
erlent verk ganga úr hófi' fram,
en Kórea var sj'álfstætt rí'ki á
þessum tíma, a.m.k. að nafni
tiil. Segja má, að Kóre:a hafi
verið til sem sjálfstætt ).-í!ki síð-
an nokkru fyrir daga K rists, en
oft í alinánum tengslum við
Kínaveldi. Eftir styrjöld Kín-
verja og Japana 1895—96 viður
kenndu báðir þessir aðilar fuillt
sjálfstæði Kóreu, en hélúu þó
áfram að reyna að tryggja yfir-
ráð sfn þar og einnig ba -ttust
nú Rússar í hópinn, er íunnu
mjög að því á þessum tíma að
treysta aðstöðu sína í hínum
fjarlægari Austurlöndum.1 Sú
útþenslustefna Rússa leiddi til
styrjaldar þeirra og Japnna
1904—05, en Japanir herná mu
Kóreu meðan hún stóð yfir og
innlimuðu hana svo til fufíts í
ríki sitt 1910.
Einn þeirra stúdenta, sem
tók þátt í uppþotinu 1896, var
Syngman Rhee, þá 21 árs' gam-
all. Hann var talinn eijoin af
forustumönnunum og því
hnepptur í fangelsi eftíir að
uppþotið var brotið á bak
aftur. í fangelsinu hlaut hann
hina grimmdarlegustu með-
ferð, m. a. voru sumir fingur
hans brotnir og hann bn ;nnd-
ur undir höndunum. Sa;'t er,
að Rhee hafi aldrei orðið sami
maður aftur eftir þetta, i:ig af-
staða hans jafnan síðan. ein-
kennzt af vægðarlausri hör>ku
og eiubeitni við hvern sein var.
RIIEE, sem var kominn af
þekktri embættismannaa :tt og
hafði hlotið allgóða menntun,
sat í fangelsi eftir þetta þ.angað
til styrjöld Rússa og Japana
hófst 1904. Þjóðernisiunnar,
sem þá náðu völdum í Hóreu í
stutta stund, frelsuðu hainn úr
fangelsinu og skipuðu hann
fuiltrúa í sendinefnd, /ir var
send til Bandaríkjanna li fund
Theodore Roosevelt foraeta og
átti að fá stuðning haias við
sjálfstæða Kóreu. Hernáim Jap-
ana kom í veg fyrir allar1 slíkar
fyrirætlanLr, og Rhee settist
að í Bandaríkjunum og tók að
stunda nám í lögum qg forn-
málum við helztu básk4Vla þar,
Harvard og Prineeton. Nokkr-
um árum seinna fór han n aftur
til Kóreu á vegum anu :rískrar
trúboðsstarfsemi, en len.ti brátt
í því að taka þátt í undirróðri
gegn Japönum. Svo fór því, að
hann varð að fara hulölu höfði
og buðu Japanir frainn fé til
höfuðs honum. Árið 1'312 tókst
honum að komast úr landi og
dvaldi á Hawaii næatu árin.
Árið 1919 skaut honmn upp á
friðarfundinum í Pairís, þar
sem hann krafðist sjiílfstæðis
fyrir Kóreu. Nokkru seinna
setti hann upp útlngastjórn
fyrir Kóreu með aðsetri í
Shanghai og sótti sern fulltrúi
hennar fjölmargar .ráðstefn-
ur næstu tvo áratugÍD.a. Hann
átti drjúgan þátt í því., að vest-
urveldin og Kínv’-jar gáfu þá
yfirlýsingu 1943, aSS Kórea
skyldi aftur fá sjálfstæði sitt,
þegar Japanir hefðu verið sigr-
aðir. Þegar Syngmsm Rhee
kom til Kóreu 1945 e{ tir 33 ára
SYNGMAN RHEE
útlegð, var honum fagnað sem
þjóðhetju og hann þremur ár-
um síðar einróma kosinn for-
seti landsins.
Á RÁÐSTEFNU stórveld-
anna, er haldin var í Potsdam
1945, sömdu vesturveldin og
Rússar um það að fyrst eftir
ósigur Japana, skyldu Rússar
hernema norðurhluta Kóreu og
Bandaríkin suðurhlutann. Land
ið skyldi þó fljótlega sameinað
undir eina stjórn. Hernám
Rússa náði til um 48 þús. fer-
mílna af landinu og eru íbúar
þar nú 10—11 millj., en her-
nám Bandaríkjanna náði til
um 37 þús. fermílna og eru
fbúar þar nú um 23 millj.
Fljótlega eftir að stríðinu
lauk, var hafizt handa um að
reyna að sameina Kóreu undir
eina stjórn, en allar slíkar til-
raunir strönduðu á Rússum.
Suður-Kórea var þá gerð að
sérstöku lýðveldi 1948, Rhee
kjörinn einróma forseti, eins
og áður segir, og hernámi
Bandaríkjanna aflétt. Ári síðar
höfðu Bandaríkjamenn flutt
nær allan her sinn þaðan. Rúss-
ar lýstu einnig yfir ríkisstofn-
un í Norður-Kóreu 1948 og
fíuttu her sinn einnig þaðan. í
júní 1950 réðist svo her Norð-
ur-Kóreu inn í Suður-Kóreu og
hefði lagt undir sig landið, ef
Sameinuðu þjóðirnar hefðu
ekki skorizt í leikinn og Banda-
ríkin stutt ákvörðun þeirra
öfluglega. Styrjöldin í Kóreu
stóð yfir þangað til í júlí 1953,
er samið var um vopnahlé.
RHEE hélt áfram vinsældum
sínum meðan styrjöldin stóð
yfir, en síðan hefur dregið úr
þeim en þó mest seinustu miss-
erin. Efnahagserfiðleikar hafa
verið geysilega miklir, bæði
vegna styrjaldarinnar og skipt-
ingar landsins. Bandaríkin
hafa hins vegar veitt mjög ríf-
lega efnahagslega aðstoð. Þótt
efnahagsstjórn Rhees hafi verið
gagnrýnd, hefur gagnrýnin þó
beinzt mest gegn sívaxandi ráð-
ríki hans og augljósri stríðs-
stefnu. Rhee hefur ekki farið
dult með það, að það væri
megintakmark hans að sam-
eina Kóreu og myndi hann
ekki hlífast við að beita vopna-
valdi í því skyni. Hann hefur
því haldið uppi mjög fjölmenn-
um her eða um 600 þús. manns.
Þetta hefur mælzt illa fyrir,
því að þótt a'llir æski samein-
ingar Kóreu, vilja þó fáir
vinna það til, að það kosti nýja
styrjöld. Hin yfirlýsta stríðs-
stefna Rhee hefur því aflað
honum vaxandi óvinsælda og
andstöðu, en hann svarað með
því að taka sér stöðugt meira
og meira vald en lög og venjur
hafa heimilað. Vaxandi óvin-
sældir Rhees komu strax í ljós
fyrir fjórum árum síðan, er
varaforsetaefni hans féll með
200 þús. atkvæða mun. Engin
kosning varð þó um forsetaem'b
ættið sjálft, þvi að mótfram-
bjóðandi Rhees dó rétt fyrir
kjördaginn og varð hann því
sj'álfkjörinn. í forsetakosning-
unum, sem fóru fram 15. marz
síðast'l., gerðist það einnig, að
mótfram'bjóðandi Rhees dó rétt
fyrir kjördag, svo að hann varð
aftur sjá'lfkjörinn. Við því
hafði hins vegar verið búizt, að
varaforsetaefni Rhees myndi
nú aftur falla með stórum
meiri atkvæðamun en 1956, en
í staðinn fékk það um 80%
greiddra atkvæða eða um 6
millj. fleiri atkvæði en keppi-
nautur hans. Það duldist því
ekki neinum, að hér var um
fölsuð úrslit að ræða, enda
sannað að jafnt ofríki og svindli
hafði verið beitt við kosning-
arnar af embættismönnum
stjórnarinnar.
, EFTIR Þ'ETTA hófust þær
óeirðir í landinu, er nú hafa
leiítt til þess, að Rhee hefur orð
ið að hrökklast frá völdurn.
Bandarfkin hafa og vafaiaust
stutt mjög að því bak við tjöld-
in, enda hlutu þau orðið mikið
óorð af stjórn Rhees. Það er
hins vegar rangt, að Rhee hafi
verið nokkur sérstakur leppur
þeirra, því að hann fór oftast
sínar eigin götur og gerði marga
hiuti þvert gegn ráðum Banda-
ríkjanna. Um Rhee mun það
aldrei verða sagt með réttu, að
hann hafi látið segja ,sér fyrir
verkum.
Rhee er giftur austurrískri
konu, sem er tuttugu árum
yngri en hann. Þau eru barn-
laus, en áttu einn fósturson, er
var sonur Poong þess, sem
var kosinn varaforseti á dögun-
um og var einn mesti vinur
Rhees. Þessi fóstursonur Rhees
hefur nú framið það ódæðis-
verk að myrða foreldra sína og
systkin og steðja því fjölskyldu
raunir að Rhee til viðbótar
öðrum.
Ef Rhee hefði látið af völd-
um fyrir fimm árum eða þegar
hann var áttræður, myndi hann
jafnan hafa átt glæsilegt nafn
í sögu þjóðar sinnar. Seinustu
valdaár hans munu hins vegar
varpa dimmum skugga á fyrri
baráttu hans. Og vissulega er
erfitt að hugsa sér hörmulegri
endalok á sögu miki'ls baráttu-
manns en þau, sem hér hafa
orðið.
Það voru stúdentar, sem
einkum stóðu fyrir uppreisn-
inni gegn Rhee. Þeir héldu
enn á lofti kyndli frelsis og
mannréttinda, eins og Rhee
hafði gert sem leiðtogi stúd-
enta fyrir 64 árum síðan. Full-
yrt er, að þjóðin öll hafi staðið
að baki stúdentunum og Suður-
Kóreubúar hafi hér risið upp
gegn ofrikinu álíka einhuga og
Ungverjar gerðu 1956. Þ. Þ.
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
ý
)
/
/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/