Tíminn - 15.07.1960, Qupperneq 2
TlaUJfrN, Mifegto
Stofnað félag
tæknífræðinga
Þann 6. júlí s.l. var haldinn
í Tjarnarcafé stofnfundur
Tæknifræðingafélags íslands,
en það er stofnað af þeim
mönnum, sem lokið hafa
ingeniörpróji frá ríkisviður-
kenndum æðri tækniskólum.
Á seinni árum hefur þeim
stöðugt farið fjölgandi, sem
sótt hafa þessa menntun, og
þá aðallega til norðurland-
anna og Þýzkalands. — Til-
gangur félagsins er m.a. sá
að gæta hagsmuna tæknifræð
inga og auðvelda þeim að-
stöðu til þess að fylgjast á-
vallt með helztu nýjungum,
sem fram koma á sviði hag-
nýtrar tækni. — Pélagig var
stofnað af 30 tæknifræðing-
um og voru þessir menn kosn
ir í stjórn: Formaður: Axel
Kristjánsson, forstjóri. Með-
stj.: Sigurður Flygering,
Sveinn Guðmundsson, forstj.,
Bemh. Hannesson, Baldur
Helgason. — Varastjórn:
Gunnar J. Þorsteinsson, Ás-
geir Höskuldsson.
Nú þegar er hafin undir-
búningur að því að félagið
gerist meðlimur í norræna
t æ k n i fræðilngasambandinu
(Nordisk ingeniörsamfund),
en hingað til hefur ísland eitt
Norðurlandanna staðið utan
þeirra samtaka.
Þessl mynd er frá ferðaskrifstofunni Sunnu og sýntr elnn þeirra staða,
sem dvalið verður við í ferð, sem hefst hér á íslandl hlnn 11. ágúst og
stefnir til Parísar, Rínarlanda og Sviss. Staðurinn er f Svlts og vatnlð sem
glyttlr I yfir handriðið milll klettavéggjanna er hið frœga Viervaldstetter-
vatn. Því miður er okkur ekki kunnugt um, hver myndlna tók.
Kominn í bæinn
farinn til fjalla
hafi ekki auglýst hana enn.
í henni er sameiginlegur mat
ur.
— Ætlarðu ekki að ferðast
meira en þetta það sem eftir
er?
— Jú, maður er allbaf í hóp
ferðum með hina og þessa.
Svo eru nokkrar helgarferð-
ir eftir af áætluninni, svo sem
10.—11. sept. á Hlöðuvelli og
Guðmundur Jónasson fjalla
fari var þreytulegur í fyrra-
dag. Við spurðum hann hvað
ylli þeirri þreytu, og hann
svaraði því til, að hann væri
alltaf slæptur eftir hálendis-
ferðir, það geröi loftslagið.
Hann kom þá um kvoldið áð-
ur úr 10 daga ferð á hreinr
dýraslóðir, en eigi var til setu
boðið, því í gær lagði hann
af stað aftur, i þetta sinn í
7 daga ferg um Fjallabaks-
leið syðri.
— Eru þá margar ferðir
eftir af sumaráætlun þinni,
Guðmundur?
— Ja — nei, þá eru ekki
nema tvær lengri ferðir
ferðir eftir.
— Hverjar?
— Það er þriggja og hálfs
dags ferð um verzlunarmanna
helgina. Þá verður farið frá
Reykjavík til Landmanna-
lauga á föstudagskvöldið, það
an á laugárdag til Eldgjár og
á sunnudaginn úr Eldgjá nið-
ur í Skaftafellssýslu, og loks
heim á mánudaginn. í þess-
ari ferð er ekki sameiginleg-
ur matur, mér finnst það
varla borga sig í ekki lengri
ferð.
Svo er hin vanalega Öskju
ferð 6—17. ágúst. Þá ferð hef
ég nú farig um nokkurt ára-
, bil, og varð fyrstur til þess
! að skipuleggja hópferðir
i þangað. — Öskjuferðin er
nú orðin afskaplega vin-
j sæl, og er nú þegar farið að
panta sæti i hana, þótt ég
Skemmtiför Framsóknarfélaganna
í Reykjavík
Framsóknarfélögin í Reykjavík efna til skemmtiferðar sunnudag-
inn 24. júlí n. k. FariS verður austur Hellisheiffi og austur á Skeið
og f Skálholt, Laugarvatn og um Þingvöll til Reykjavíkur. Leitið upp-
lýsinga strax í skrifstofu flokksins í Edduhúsinu, sími 16066. Nánar
auglýst næstu daga.
gengið á Hlöðufell, svo helg-
ina á eftir á Tindafjallajökul,
þar næstu í Reykjadali og
Hrafntinnusker, og svo fyrstu
helgina í sept. ag Hagavatni
og gengið á Langjökul.
— Hvað var margt í ferð-
inni, sem þú ert að koma úr?
— Það var átján manns.
j — Bar nokkuð til tíðinda í
l ferðinni?
— Onei, 'þag man ég u
Þetta var að visu fyrsta ferð
yfir Sprengisand á sumrinu,
og það var óvenju þurrt. Svo
sáum við óhemju mikið af
hreindvrum inn við Snæfjöll
in. Heila flota. Svo var ekki
stoppandi í veiðivötnum fyrir
flugu. Annað man ég ekki
tíðinda. .—s.
Endurbót á póst
og símastöðinni
Gjörbreyting á stsrfsskilyrðum pósts og síma
í Neskaupstað
Fyrir tæpum 2 árum var
hafin gagnger endurbót á
póst- og símstöðinni í Neskaup
stað. Við gamla húsið var
byggð ný álma og er þar rúm-
góður afgreiðslusalur fyrir
póst, skrífstofuherbergi og
eldtraust verðbréfageymsla.
Gamla húsnæðinu var breytt í
biðstofu og afgreiðslu talsíma.
Eínnig er þar til húsa lítil endur-
varpsstöð fyrir Neskaupsfað. Við
tilkomu hennar bötnuðu hlustun-
arskilyrði í Neskaupstað, en eru
þó hvergi nærri viðhlítandi að
vetrinum.
Dráttarbrautin í Neskaupstað
kcm nýbyggingunni undir þak, en
innréttingar eru smíðaðar á verk-
stæði Jóhanns P. Guðmundssonar
cg sá hann um alla innri smíði
hússins, sem er hin smekklegasta
cg öllu mjög haganlega fyrir
komið.
Með þessum umbótum verður
gjörbreyting á starfsskilyrðum
Árshátíð í
Gimnarshólma
Héraðshátíð Framsóknarmanna
i Rangárvallasýslu að félags-
heimilinu Gunnarshólma verður
haldln laugardaginn 16. júlí n.k.
og hefst ki 9 e.m.
Dagskrá:
1. Skemmtunin sett.
2. Ávörp flytja alþingismennirn
ir Ágúst Þorvaldsson, Björn
Björnsson sýslumaður og Ósk-
ar Jónsson.
3. Einsöngur: Guðmundur Guð-
jónsson. Undirlcikur: Skúli
Halldórsson.
4. Gamanþættir: Haraldur Ad-
ólfsson, Gestur Þorgrímsson
og Jón Sigurðsson
Almennur söngur verður milli
skemmtiatriða.
5. Dans: Biástakkar Ieika. Söngv-
ari með hijómsveitinni: Har-
aldur Sigurðs.
Framsóknarfélögin
pósts og síma í Neskaupstað, en
þessar stofnanir hafa búið við
mjög bágborin húsakynni og að-
staða þeirra hefur farið versnandi
með síauknu starfi.
Stöðvarstjóri er frú Kristín
Ágústsdóttir og við póst- og síma-
aígreiðslu vinna nú 7—8 manns.
Vegna efnisskorts hefur Lands-
síminn ekki getað fullnægt öllum
beiðnum um talsíma. Liggja nú
fyrir um 20 pantanir á síma, sem
e.ru. orðnar 2—3ja ára gamlar, og
ekki er vitað, hvenær úr rætist.
Landssíminn stendur viða í fram
kvæmdum. Á Eskifirði er nýtt
hús í smíðum og þar er áformað
að koma upp sjálfvirkri símstöð,
sem tengir saman Héraðið og ná-
læga firði. Það er framtíðarlausn-
in en hætt er við að hennar verði
langt að bíða. V.S,
Husmæðrafundir
á vegum sam-
vinnumanna
_ í þessari viku leggja þær Olga
Ágústsdóttir. húsmæðrafulltrúi
SÍS og Guðbjörg G. Kolka, hús-
mæðrakennari i fræðsluför um
landið norðan- og vestanvert á
vegum húsmæðrafræðslu SÍS.
Munu þær halda fundi með hús-
mæðrum á vegum kaupfélaganna
við Skagafjörð, Húnaflóa, á
Ströndum og á, Vestfjörðum.
Á fundunum verður einkum
fjallað um hraðfrystingu matvæla.
Hafa fram komið óskir um, að
þetta efni vrði tekið til meðferð-
ar. bæði frá húsmæðrum og frysti
hússtjórum.
Sýnd verður litkvikmynd um
hraðfrystingu og samvinnukvik-
myndin Landií í norðri, en hún
er ein sú f^gursta, er samvinnu-
nrenn hafa gert Er hún í litum
op með íslenzku tali.
Á fundunum verður dreift bæk-
bngi, er inniheldur leiðbeiningar
um hraðfrystingu matvæla. Einnig
vorða flutt stutt ávörp og konun-
uro að síðustu boðið til kaffi-
drykkju.
Þegar hafa verið haldnir þrír
fundir með þessu sniði á Höfn í
Hornafirði, og vöktv þeir almenna
ánægju meðal húsmæðra á staðn-
um.
Kjördæmaþing og Héraðsmót
Framsóknarm. í Vestfj.kjörd.
Kjördæmaþing og héraðshátið Framsóknarflokksins í VestfjarSa-
kjördæmi verSur haldlS aS Vogalandi, KróksfjarSarnesi. Kjördæma-
þingiS: Á laugardag 23. júli hefst kl. 3 e. h.
HéraSsmótlS: Á sunnudag 24. júli. Hefst kl. 3 e. h.
DAGSKRÁ:
1. MótiS sett.
2. Ávörp: Hermann Jónasson, Sigurvin Elnarsson, Markús Stefáns.
3. RæSa: Þórarinn Þórarinsson, ritstjórl.
4. Gamanþættir: Haraldur Adólfsson, Gestur Þorgrimsson og Jón
SigurSsson.
5. Einsöngur: Erlingur Vigfússon meS undirlcik Fritz Weisshappel.
Söngur milli skemmtiatriSa.
Dans.
Framsóknarfélögln.