Tíminn - 13.09.1960, Blaðsíða 9
T f MIN N, þriðjudaginn 13. september 1960.
9
Á föstudaginn kemur held-
ur Steinunn S. Briem tónleika
í Þjóðleikhúsinu, en hún mun
vera fyrsti íslenzki píanóleik-
arinn, sem hélt þar sjálfstæða
tónleika. Foreldrar Steinunn-
ar eru SigríSur Skúladóttir
(íæknis f Skálholti) og Eggert
F. Briem fulltrúi hjá Eim-
skipafélagi íslands. Steinunn
er ung og glæsileg listakona,
frjálsmannleg í fasi og létt og
f jörleg í viðræðum. Hún tekur
vinsamlega þeim tilmælum
blaðsins, að hún svari nokkr-
um samvizkuspurningum aðal-
lega um lífið og listina.
— Þú ert Reykvíkingur, Stein-
unn?
— Já, ég er fædd og uppalin í
Reykjavík. Reyndar hefur mér
alltaf fundizt ég vera hálfgert
sieitabarn iíka, því að ég var í
sveit á hvcrju sumri, frá því að ég
var átta ása, þangað til ég fór til
London í tónlistarháskóla þar.
— Hvar varstu í sveit?
— Á Hrafnkelsstöðum í Hruna-
mannahreppi. Mér finnst það enn
cins og að koma heim, þegar ég
kem þangao, þó að það sé að ýmsu
leyti orðið breytt núna. Og hús-
móðurina þar kalla ég ennþá
„sveitamömmu" mína eins og áður
fyrr.
— Þú hefur snemma fengið
áhuga á tónlistinni?
— Ja, íyrstu ár ævinnar var ég
algerlega laglaust og hataði allt,
sem tónlist hét, en seinna skipti ég
um skoðun og það svo að um mun-
aöi. Ég bvrjaði að læra tíu ára
gömul hjá íöðursystur minni, frú
Friede P. Briem, en ég er hrædd
um, að ég hafi verið heldur löt við
æfingarnar fyrstu árin.
— Hver var orsökin til, að þú
lagðir út á listabrautina?
— Ég veit það varla. Það kom
bara allt í einu yfir mig, og það
vsr eins og ég yrði að gera það —
eiginlega hvort sem ég vildi eða
ekki. Ég gat. ekki hugsað mér neitt
annað, sem kæmi til greina að
gera, og það þýddi ekkert að reyna
að hugsa málið af skynsemi. Ég
var þrettán ára þá, og ég hef hald-
ið áfram við tónlistarnámið síðan
cg aldrei getað hugsað mér að
hætta.
— Hvað viltu segja mér um
námsferil þinn?
— í stuttu máli sagt: ég byrjaði
í TónlistarsKÓlanum þrettán ára og
var þar sex ár; einn vetur hjá dr.
Már finnst lífiö mesta ævin-
týri, og mig langar til að lifa
þvs eins vei og ég frekast get
Viðtal við Steinunni S. Briem
Urbancic, en fimm ár hjá Árna
Iíristjánssyni Eftir það fór ég til
London og var þrjú ár í The Royal
Academy of Music og loksins til
Rómar, þar sem ég lærði fjögur ár
hjá Maestro Rodolfo Caporali.
— Hvað fmnst þér um tónlist-
arlífið hér heima?
— Ég gat ekki dæmt um það af
nuklu viti ?ða þekkingu, því að ég
hef verið t\c lengi utanlands, en
tg hef ekkert nema gott um það
að segja. Það virðist vera í stöð-
ugri framför og vexti eins og svo
margt annaö á íslandi.
— Eru íslendingar góðir áheyr-
erdur?
— Miklu meira en góðir — al-
v eg dásamiegir. Og þeir eru frægir
fyrir það í öðrum löndum. Að
minnsta kosti hef ég talað við
fjölda af listafólki af ýmsum þjóð-
evnum, sem ber saman um, að
hvergi finnist betri áheyrendur en
á íslandi. Og mér finnst sjálfri,
þegar ég fer á konserta, að hérna
sé hlustað af miklu meiri athygli
en annars siaðar, þar sem ég hef
verið.
Varst þú ekki fyrsti íslenzki
pianóleikavii.n, sem hélt sjálfstæða
tónleika í Þjóðleikhúsinu?
Svo sagði Þjóðleikhússtjórinn
mér. Og j'ka, að ég væri fyrsti
píanóleikannn, sem héldi sálf-
stæða tónleika, eftir að nýi flygill-
inn var fengmn. Rétt á eftir vígði
ég nýjan tlygil á Reykjalundi, og
þá sagði systir mín, Ragnheiður,
að þetta væri réít eins og tekið
upp úr stafsetningaræfingu: Stein-
unn vígir nýjan flygil!
— Hefurðu haldið tónleika er-
lendis?
— Já, i Róm hélt ég þrisvar
sinnum tón. eika — £ Palazzo Flam-
iwa, K.F.U.M.-tónleikasalnum og
Castel S. Angelo.
— Ætlarðu að leika fyrir okkur
riokkur ný tónverk?
— Kannsxe ekki beinlínis ný, en
ný fyrir ísland, eftir því sem ég
bezt veit — það er lagaflokkur
eftir Cyril Scott, hið fræga, brezka
tónskáld, rithöfund og dulspek
ing, og heitir „Poems“.
— Heldurðu, að verk hans finni
hljómgrunn meðal fslendinga?
— Það er nú erfitt að dæma um
slíkt, enda getur það farið talsvert
nukið eftir túlkuninni. Ég veit það
eitt, að mér finnst sjálfri gaman
að spila verkin hans, enda færi ég
ekki að veija lög, sem ég væri ekki
hrifin af sjálf, til að spila fyrir
aðra.
— Hefurðu nokkur verkefni með
höndum auk tónlistarinnar?
— Já, mtkd ósköp, sand af þeim!
Nýjasta atvinnan er að vera ritari
ir.annsins rnins, Kristmanns Guð-
mundssona? — og það meira en
lilið afskiptaramur ritari! Ég vona,
að bækurnar hans stórversni ekki
af þeim sökum í framtíðinni, það
yrði þung ábyrgð fyrir mig. En ég
skemmti rnér prýðilega 1 þessu
nýja hlutverki mínu sem „bók-
menntaráðunautur og gagnrýn-
andi“. Það er svo ágæt tilbreyting
frá æfingunni.
— Og önnur verkefni?
— Ég er að þýða bók um Yoga-
heimspeki og dulræn vísindi —
svona inn milli, þegar ég má
vtra að því. í fyrrasumar þýddi ég
bók, sem kemur út fyrir jólin.
Hún heitir „Vængjaður Faraó“ og
gerist í Forn Egyptalandi og fjall-
ar mikið um dulspeki og vígslurn-
ar í launheigunum fornu.
— Og fleira?
— Ég er alltaf að lesa og læra
eitthvað nýtt og alltaf að fá ný og
rý áhugamái — það er ákaflega
skemmtilegt, en voðalega tíma-
frekt. Svo á ég að heita að vera
eiginkona og húsmóðir í ofanálag,
þó að húsinóðurstarfið sé að verða
eins og „hobby" hjá mér þessa
seinustu daga fyrir konsertinn.
— Já, bú ætlar að fara að halda
konsert. Ekk: megum við gleyma
þvi — það var einmitt tilefni þessa
viðtals. Og hvenær verður hann,
og hvað æclarðu að leika?
Hann verður föstudaginn 16.
september í Þjóðleikhúsinu, og á
efnisskránni verða verk eftir
Haydn, Scliumann, Chopin, Fauré
og Cyril Scott, eins og við töluðum
um áðan.
— Þú nefndir Yogaheimspeki —
htíurðu áhuga á henni?
— Já, óg hef haft brennandi
áhuga á öllum dulrænum og heim-
spekilegum efnum, frá því að ég
man eftir mér. Og yogaheimspekin
hefur gerbreytt öllu lífi mínu og
viðhorfum. Ég hef hvergi fundið
eins fullnægjandi skýringar á til-
verunni og heiminum og í aust-
rænni heirospeki, en eins og þú
veizt manna bezt sjálfur, er yoga
annað og meira en þurr fræðikenn-
ing eða heimspekilegar bollalegg-
ingar út í joftið. Það er hávísinda-
leg aðferð til að læra að hekkja af
eigin reynd þá hluti, sem eru trú-
aratriði fyrir flest fólk.
— Og hefur þú fengið persónu-
lega reynsiu, sem sannfærir þig?
— Ég er bara byrjandi, en samt
get ég hikiaust svarað því játandi.
Eg hef reynt það sjálf, að með því
að fylgja vissum reglum og þjálfa
sig á vissan hátt, er hægt að öðl-
ast persónulega reynslu, sem er
rr.eira sannfærandi en þúsundir
bóka — og þá verður trú að ör-
uggri vissu, og efasemdirnar
hveifa fyrir óhagganlegri sann-
færingu.
— Telurðu, að heimspekin hafi
gildi fyrir iistina?
— Eg get eiginlega ekki greint
á milli listarinnar, heimspekinnar
og sjálfs áfsins. Það er allt sam-
tvinnað hja mér í eina heild.
— Hvaða bækur hefurðu grætt
mest á að æsa?
— Ó, þær eiu margar. Af bók-
um um duifræðileg efni held ég,
að ég hafi kannske lært mest af
verkum Sri Aurobindo og Alice B.
Bailey. Og ég hef alltaf haft sér-
stakt dálæíi á Bhagavad Gita.
— Hvað finnst þér eftirsóknar-
verðast í lífmu?
— Hannngjan góða, hvílíkar
samvizkuspurningar! Ef það
hljómaði ekki óheyrilega hátíðlega,
myndi ég segja: „Sönn vizka“, því
að hún innifelur í raun og veru
ailt, sem hciat verður á kosið. En
cinhvers staðar las ég, að fólki
þætti alltaf ákjósanlegast, það sem
það vanhagaði mest um. Svo að.ég
neita að svsra þessari spurningu!
— Og að lokum, Steinunn —
eriu hamingjusöm með hlutskipti
þitt sem listakona á íslandi?
— Ég er hamingjusöm með hlut-
slripti mitt, hvort sem ég er á fs-
landi eða annars staðar. Mér finnst
lífið mesta ævintýri, og mig langar
tii að læra að lifa því eins vel og
ég mögulega get. Gunnar Dal.
BJ3 BEjiH. Qi0 aiBEÍ f.
Viöbrögðin við rökstuddum
ásökunum Alþýðublaðsins á
hendur póst- og síinamálastjóra
um misnotkun erlends gjald-
eyris í umsjá pósts og síma og
svör hans, loðin og viHandi,
gefa vissulega tilefni til að mál
þetta sé krufið til mergjar
meir en orðið er.
Yfirstjóm pósts og síma hef-
ur vakið á sér kynlega athygli
að undanförnu í sambandi við
svonefnt frímerkjamál, sem
undirréttardómur er nýgenginn
í. Þar átti einkum Iilut að máli
sem sakborningur aðalkcppi-
nautur núverandi póst- og síma
málastjóra um það embætti.
Engum dettur I hug, að póst-
og símamálastjóra hafi af þeim
sökum verið ljúfara en elia að
láta fram fara rannsókn á mis-
ferli keppinautar síns, en hins
vegar hafa tvö stuðningsblöð
póst- og símamálastjóra í gjald-
eyrismáli hans, Vísir og Frjáls
þjóð, látið sér sæma að halda
Ekki sama hver í hlut á?
því fram, að umræður Alþýðu-
blaðsins og Tímans um gjald-
eyrismálið séu sprottnar af
hefndarhug. Það er tilgangs-
laust fyrir skjaldbera pófit- og
símamálastjórnarinnar að Setla
að ræða málið á þeim grund-
velli. Hvorki Tíminn né Alþýðu
blaðið hafa hlífzt við að ræða
frímerkj,amálið o,g í þessum
dálkum mun heldur ekki verða
hlífzt við að krefja póst- og
símamálastjórnina fullrar grein
argerðar um gjaldeyrismálið
og yfirleitt hvernlg liún hefur
rækt það hlutvcrk, sem henni
er falið á þágu almennings.
■ Meginefni þeirrn sa.ka, sem
póst- og símamálastjóri er bor-
inn, er að hafa ráðstafað gjald
eyri stofnunar sinnar án heim-
ildar réttra yfirvalda, m. a. selt
sjálfum sér gjaldeyri fyrir tugi
þúsunda. Svör við þessum ásök-
unum eru þau, að póstur og
sími Iiafi að lögum heimild til
nokkurrar gjaldeyrisráðstöfun-
ar, eftir reglum, sem ráðherra
setji. Slikar regiur virðast hins
vegar atdrei hafa verið settar.
Þessi afsökun póst- og sfana-
mála.stjóra lítur ekki ól.aglega
út á pappír, en þegar betur er
að gáð, felur hún einungis í
sér eitt sakarefnið enn. Það
mun ekki algengt að ráðherrar
setjist sjálfir við að semja regl-
ur um hvað elna, sem þeim er
á hendur falið í lögum. Til
slíks hafa þeir ráðuneyti sér
til aðstoðar, þótt þeir ákveði
sjálfir stefnuna og beri ábyrgð-
ina. Nú víkur svo undarlega
við, að póst- og símamálastjóri
heyrir ekki undir neitt ráðu-
neyti heldur beint undir ráð-
herra, þ. e. póstur og sími er
sjálfur eins konar ráðuneyti.
Það hvflir því sú skylda á póst-
og símamálastjóra að gera ráð-
herra varan við, ef þörf er á
reglum um gjaldeyrismál
stofnunarinnar, en vaða þar
ekki áfram i sukki og óráðssíu
þótt láðst hafi að bind.i hend-
ur hans með gjaldeyrisreglum.
Þetta hcfur póst- og símamála-
stjóri vanrækt, bæði fyrr og
síðar, og má einnig segja að
sök þeirra, sem með gjaldeyris-
málin hafa farið sé þar nokkur.
Nú eru hins vegar, þegar í
óefni er komið vegna aðgerða
póst- og símamálastjóra, boð-
aðar reglur — sem e.t.v. verða
svo laglega smíðaðar, að þær
staðfesti framferði hans.
En það eru fleiri þættir í
stjórn pósts og síma, sem vakið
hafa nokkurn óhug að undan-
förnu. Hvað veldur því, að ein-
ungis sumt af því, sem upp hef-
ur komið í sambandi við frí-
merkjamálið, er rannsakað af
kappi og harðir dómar um það
felldir? Hvað líður t.d. Lund-
gaardsmálinu? Hvað er um
Balbo-merkin? Má e.t.v. gera
ráð fyrir fleiri málum á veg-
um pósts og sfma, sem réttvísin
hafi farð um mjúkum mundum
á sama t£ma og gyðja réttlæt-
isins birtist öðrum hörð og
ströng? Það er efalaust, >að dóm
arniir í frímerkjamállnu cru
svo þungir, sem raun ber vtni,
vegna þess, að háttsettir opin-
berir starfsmenn eíga hlut að
máli, menn, sem gera verður
strangar kröfur til, og þá fyrst
og fremst um óbilandi heiðar
leika. En hvað þá um þann eða
(FramhaJd a 15 síðu)
BigigiiaHaiSHSisiaaaEiBM^igiHaiHafflaiaaisiiigiamMMgMgjsiiaiiiHaiatBrKiCTKMM