Tíminn - 13.09.1960, Blaðsíða 13
I
! T í MI N-N, þriCjudagínn 13. septcmbcr 1960.
18
Sigurvegararnir í knattspyrnunni. Júgóslafneski fyrirliSinn stendur efst á verSlaunapallinum, og liS hans er í miSjunni. FyrirliSi Dana, Poul Jensen,
er fremstur á verSlaunapallinum, en sá ungverski aftastur. VerSlaunaafhendingin fyrir knattspyrnuna var mjög hátiSleg, og voru verSlaunin afhent
strax eftir leikinn milli Júgóslafa og Dana.
★
Loksins hlutu Júgóslafar
gullverðlaunin í knattspyrnu-
keppni Ólympíuleikanna —
og það ettir fjórar tilraunir í
úrslitaleikjum. Og sigur Júgó-
slafa gegn Dönum á laugar-
dagskvöld á Flamingo-leik-
vanginum i Róm — sem var
aðeins hálfsetinn áhorfend-
um — var fyllilega verðskuld-
aður. Júgóslafneska liðið lék
betri knattspyrnu, þótt það
hefði aðeins 10 leikmönnum
á að skipa í 53 mínútur. Mið-
herji Júgóslafa var rekinn af
leikvellinum fyrir ruddalegt
orðbragð, þegar átta mínútur
voru eftir af fyrri hálfleik,
Gullverö-
launin til
Júgóslafa
Ag vísu byrjuðu Júgóslafar
mjög vel og komu Dönum á
óvart með að skora tvö mörk
áður en 12 minútur voru liðn-
ar af leiktíma, og setti þetta
danska liðið úr jafnvægi. Hin
trausta vöm liðsins, sem
hafði átt svo glæsilega leiki
áður á leikunum var nú tauga
óstyrk og fálmandi í stað-
setningum — og enginn i
minúta, si’ðan tvœr, og þeir
hlupu hlið 'ríð hlið. Abehe
tókst hins vegar að hrista
Marokkómanninn af sér á
siðasta kílómetranum og
kom um 100 m. á undan i
mark, og vann þar með
fyrstu gullverðlaun Afríku
á leikunum i Róm.
Tveir Danir tóku þátt í
þessu hlaupi og varð Thyge
Tögersen í sjötta sæti, þótt
þetta væri í fyrsta skipti, sem
hann hleypur maraþonhlaup.
Hinn, John Lauridsen varð í
39. sæti.
framlínunni gat skorað mark.
Það var því ekki von að vel
færi, og sigur Júgóslafa 3—1
mjög sanngjarn.
Miðherji Júgólslafa skoraði
fyrsta markið í leiknum eftir
að hafa brotizt í gegnum vörn
Dana og skoraði hann án
þess, að Henry From hefði
nokka möguleika á að verja.
Hins vegar hefði From átt að
verja spyrnu hægri innherj-
ans, Matous, á 12. mínútu en
segja má, að það rnark hafi
tryggt sigur Júgóslafa í leikn
um. Júgóslafar sóttu mjög
eftir þessi mörk og voru Dan-
ir heppnir að Júgóslafar skor
uðu ekki eitt til tvö mörk til
viðbótar.
Átta mínútum fyrir hálf-
leikslok skeði það, að dómar-
inn rak hinn ágæta miðherja
Júgóslafanna af leikvelli.
Urðu þá mikil læti á vellin-
um, jafnt meðal leikmanna
júgóslafneska liðsins sem á-
horfenda, og það var ekki
fyrr en miðherjinn var horf-
•inn af leikvellinum, að ró
komst á aftur. Tildrög til
þessa þunga dóms voru þau,
að Júgóslafar höfðu skorað,
en dómarinn dæmdi markið
af vegna rangstöðu. Júgóslaf
nesku leikmennimir mót-
mæltu kröftuglega — en allt
kom fyrir ekki, dómarinn
breytti ekki ákvörðun sinni.
Féll miöherjanum þetta sýni-
lega þyngra en öðrum leik-
mönnum og jós hann úr skál-
um reiði sinnar yfir dómar-
ann — óvitandi um það, að
hann skildi júgóslafnesku, og
þvi fór sem fór.
Siðast í þessum hálfleik
fékk Poul Pedersen tvö ágæt
tækifæri til að skora. í,fyrra
skiptið skallaði hann knött-
inn beint í fvig markmanns-
ins, en í síðara skiptið skaut
hann hátt yfir, eftir að vera
kominn inn fyrir vörn slaf-
anna.
1 síðari hálfleiknum sóttu
Danir miklu meira, enda
lögðust Júgóslafar þá í vörn
sem skiljanlegt er með tvö
mörk yfir og einum manni
færra á leikvellinum. En
sóknarleikmennirnir komust
ekkert áleiðis gegn hinni
sterku vörn Júgóslafa — og
þeim Harald Nielsen og Henn
ing Enoksen var alveg haldið
niðri. Framvörðurinn Flemm
ing Nielsen var hinn eini, sem
átti hættuleg skot á markið
en markmaður Júgóslafa Viv
inc varð mjög vel.
Á 24. minútu hálfleiksins
tókst Júgóslöfum að skora
þriðja mark sitt í leiknum, og
var vinstri útherjinn Kostic
þar að verki eftir mikil mis-
tök hjá Poul Andersen og
Hans Christian Nielsen. Báð-
ir gátu þeir spyrnt knettin-
um af hættusvæðinu, en mis-
skilningurinn milli þeirra
varð til þess, að Kostic skauzt
á milli þeirra og skoraði ör-
ugglega. Og þar með var sig-
urinn öruggur.
Danir börðust vonlausri bar
áttu það sem eftir var leiks-
ins. Nokkru fyrir leikslok
varð Flemming Nielsen, sem
verið hafði bezti maður
danska liðsins, ag yfirgefa
völlinn v^gna smámeiðsla.
Hann kom þó fljótt inn á aft-
ur og tók stöðu sína. Og á síð-
ustu mínútu leiksins átti
hann hörkuskot á markið af
löngu færi, sem júgóslafneski
markmaðurinn hafði ekki
nokkur tök á að verja. Og
þannig lauk þvi leiknum 3—1
og loksins fengu Júgóslafar
gullverðlaunin á Ólympíuleik
unum.
Þrátt fyrir tapið voru
dönsku leikmennirnir ekki
óánægðir eftir leikinn — þeir
höfðu tapað fyrir betra liði
og viðurkenndu það. Flemm
ing Nielsen sagöi: Við gætum
skammast okkar, ef við vær-
um óánægðir með að fá silf-
urverðlaunin. Þetta vg.r dag-
ur Júgóslafa og við verðum
að viðurkenna það. Þannig er
nú knattspyrna einu sinni.
I leiknum um bronzverð-
launin sigruöu Ungverjar
ítali með 2—1 í leik, sem líkt
ist miklu meira slagsmálum
en knattspyrnu.
Skiptast á
að vinna
Handknattleiksflokkar KR,
sem nú dvelja í Danmörku,
hafa tvívegis leikið vorrn
gestgjöfum sínum, He’'' » r
drætsforening, Fyrri leikirn-
ir fóru þannig, að kvenna-
flokkur KR vann með 12—8,
en karlaflokkurinn tapaði
með 31—19. í fyrrakvöld
mættust liðin aftur og nú
varð sú breyting á, að karla-
flokkur KR vann með 31—24,
en kvennaflokkurinn tapaði
eftir mjög tvísýnan leik meö
10—9.
ÚTBOD
Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Reykjavíkur er hér
með óskað eftir hlboðum um byggingu hitaveitustokks
í Hofsvallagötu, frá Hringbraut að Sundlaug Vesturbæj-
ar, svo og jarðvinnu fyrir vatnsæð í götuna frá Hring-
braut að Hagamel.
Útboðslýsing og uppdræltir verða afhcntir í skrifstofu
vorri Traðarkotssundi 6. gegn 1.000,00 króna skila-
tryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavikurbæjar